Vikan


Vikan - 01.05.1958, Blaðsíða 2

Vikan - 01.05.1958, Blaðsíða 2
ATHYGLISVERÐ tillaga tft lausnar efnahagsvanda- málum okkar Islendinga gekk milli manna hér í ' Reykjavík í síSastliðinni viku. Hún er svona: 1) Að Islendingar gefi Pser- eyingum Austfirði og flytji þá þangað. 2) Að Islendingar fái F»r- •yjar í skiptiun. S) Að Islendingar leigi Bandaríkjamönnum Fœr- •yjar. 4) Að tslendingar noti leigugjaldið til þeas að halda áfram að lifa eins •g greifar. Bottnr NYJASTA bragð banda- rlskra svikahrappa «r anrona (að sögn Lundúna- blaðsins Daily Mirror): í»eir klæðast samfest- xngi, berja að dyrum hjá aaklausum (og auötrúa vaentanlega) borgurum Og •egjast vera frá ,,reyk- háfaeftirlitinu* ‘. Þeir hafa heyrt að það væru rottur í reykháf húseig- anda. Einhver þeirra opnar sót- lokuna og þuklar upp í reykháfinn — og sleppir Úr ermi sér taminni rottu. „Viasi ég ekki!" hrópar hann sigri hrósandi, þeg- ar hann er aftur búinn að handsama rottima; og hampar dýrinu framan í húsráðanda. Og síðan taka svikahrapp- arnir að sér að „eyöa rottunum" — fyrir tíu doilara. Brjóst ÖLL hafið þið vonandi heyrt getið um Anitu Ekberg. Hún er sænsk leikkona og kvað vera óskaplega fall- ega vaxin. Að minnsta kosti er vöxturinn tromp- ið í leik hennar. Hollywood klófesti Anitu eins og vænta mátti og hún hefur sést í nokkrum myndum síðustu árin. Um daginn gerðist óvæntur atburður í lífi hennar, at- burður sem vakti aðdá- endur hennar til réttlátr- ar reiði. Hún var að koma fram í leikhúsi með Bob Hope. Ein setningin, sem Anitu % xSÁ's'afs/rjQ&u tf/ri 'unnar var lögð í munn, hljóðaöi svona: ,,Eg er bara ósköp venjuleg stúlka." Þá spratt upp kvenmaður á fremsta bekk, hrópaöi: „Þar sagðirðu sannarlega satt!" seildist í töskuna sina, dró upp tómat og kastaði af afli í Anitu. Ávöxturinn sprakk á hinni óviðjafnanlegu mjöðm leikkonunnar, og allt komst auövitað í uppnám. NO var sökudólgurinn f jar- lægður með valdi og færður á lögreglustöðina og tekinn til yfirheyrslu. Lögreglunni lék forvitni á að vita, hversvegna kon- an væri að kasta tómötum í bráðsaklaust fólk. Og þá kom á daginn að tómatkastarinn er í heil- ögu stríði við leikkonuna. Anita segist hafa stærstu og glæsilegustu brjóstin í allri Hollywood. En konan með tómatinn aegir, að það sé hauga- lygi; brjóstmál hmtnar Bé þremur tommum viðara. Morðtól FALLÖXIN (sjá mynd) er frönsk uppfinning. Hún kom i kjölfar frönsku byltingarinnar, líkt og gasklefarnir fylgdu Hitl- er. Það þurfti að finna upp hraðvirkari aðferðir til þess að aflífa menn. Nú eru uppi raddir um það í Frakklandi, að fallöxin þurfi að hverfa. Þetta er reyndar ekkert ný bóla. Sannleikurinn er sá, að Frakkar eru misjafn- lega hrifnir af þessari uppfinningu sinni. Nú er svo komið, að þeir eru einá Evrópuþjóðin sem heldur í drápstækið. Þjóðverjar öpuðu það eftir þeim og þýzkar fallaxir voru notaðar allt til styrjaldarloka, en dauðarefsingin hefur nú verið afnumin í Vestur- Þýzkalandi. Kanínur ST J ÓRNAR V ÖLDIN 1 Washington eru búin að leggja blátt bann við því, að kanínuskinn séu kölluð annað en — kanínuskinn. Ástæðan er sú, að í Banda- ríkjunum hafa skinnin gengiö undir nálega öll- um nöfnum nema því eina sanna. Fyrir þessu stóðu loðkápu- framleiðendur. Við síð- ustu talningu voru þeir búnir að skíra kanínu- skinn 96 nöfnum. Varan gekk betur út, ef kanínuskinnin í henni voru ekki kennd við vesalings íórnarlambið. Vinsælt nafn: baltneskir ljónsfeldir. Tunglin Hér er það nýjasta úr heimi gerfitunglanna: Rússar eru að búa sig und- ir að senda á loft tungl, aem á að ganga kringum jörðina og gamla tvmglið okkar. Þyngd rússneska mánans —- að sagt er: fjögui- tonn. Bandaríkjamenn vænta þess að geta sent eldflaug til tunglsins fyrir áramót. Sú fyrsta yrði væntanlega ekki látin lenda á tungl- inu, heldur kanna að- stæður og „slma" þær tU jarðar. Númer tvö í röð- inni verður væntanlega send í kringum tunglið, til þess að kanna bakhlið þess. Og svo yrði sú þriðja látin lenda á tunglinu. Kristur PlSLARLEIKRIT, sem brezka ríkissjónvarpið færði upp um páskana, var með spánýju sniði. Það var i nútímabúningi. Dæmi: Kristur var imgur maður i nankinsbuxum. Pílatus var í stifpressuðum gráum jakkafötum og kveikti sér makindalega í sígarettu, þegar hann var búinn að undirskrifa af- tökuskipunina. Hermennirnir voru í brezk- um vígvallarbúningi. Uppgjör LOKS er þess að geta, að Bandaríkjamaður nokkur, sem stunginn var hníf- stungu af öðrum Banda- ríkjamanni, sem hann skuldaði um 18.000 krón- ur, neitaði að ljóstra upp um nafn árásarmannsins. Ástæða: „Hann sagði mér, að ef ég kæmi upp um hann, mundi hann aldrei oftar skrifa hjá mér.“ Fyrir Guönýju, Ollu og Möggu og Stellu birtum við „Stungiö af,“ sem Erla Þorsteinsdóttir hefur sungiö inn A hljómplötu. Lagiö er eftir Jóhannes Jóhannessan, m text- inn eftir Núma Þorbergsson. Allt, sem ég reyni, illa gengur mér, aldrei þó liœtti, sem aö betur fer; það er þaö eina, gœfan sem mér gaf, gleöin mun áldrei stungiö geta af. Ég var meö Önnu, en hvaö hún var góð, alltaf á kvöldin flutti ég henni Ijóö. Keypti svo hálsmen, henni þetta gaf, hún samt meö öðrum stungið gat mig af Ég fór til Stínu, meyjan var mér kœr, mikiö þö var hún slcem viö mig % gær; því hún á dansleik öðrum auga gaf, og svo um síöir stakk hún mig þó af Ég er meö Dísu, dásamlegt það er; dularfullt hvaö hún skotin er i mér. Aldrei neinn strákur auga henni gaf; á ég aö fara aö stinga hana af. Amma! Viö getum þvi miður ekki svaraö spurn- ingu þinni. Myndin var bara keypt sem faileg mynd framan á blaöið. Gunnar Anton! Vtaná- skrift ensku leikkonunnar Diana Dors mun vera Coiumbía Studios, 1438 North Gower Street, Holly- wood 28, Gálif. U.S.A. Sigriður! Utanáskrift Roberts Wagners er 80th Fox Studios, 10201 West Pico Bouleward, Los Ange- les 35, Cálif. U.S.A. Nýjasta myndin með honum mun vera „Stopover Tokyo." G. L.! Harry Belafonte leikur Uka hjá Fox (sjá bréfið hér fyrir ofan). Hann er kvasntur. Flugfarið til Bandarikj- anna kostar meö flugvélum Loftleiöa kr. 3081,00 aðra leiðina, en 5561,00 báðar, nema flogiö sé á timanum frá 1. okt. til 30. maí, þá er veittur tœpra þúsund króna afsláttur. Viltu segja okkur hvert við eigum að skrifa til Pier Angeli og helzt að segja okkur eitthvað um hana. Pier Angeli leikur hjá Metro-Goldwyn-Mayer, svo þú getur skrifað þangaö. Hún heitir réttu nafni Anna María Pierangeli og er fasdd á Sardínu. Hún lauk prófi í málaraskóla heima á ltáliu og þar fundu kvikmynda- stjóramir hana, fyrst franskur og síðan amerisk- ur. Síöan hefur hún leikiö í heilmörgum myndum, eink- um í Ameríku, en hefur yf- irleitt ekki haft tœkifasri til að sýna að hún hafi yfir öörum hœfileikum að ráða en þarf til aö hrífa kvik- myndahúsgesti með heill- andi útliti. Pier Angeli er gift og á eitt bam. Framhald á bls. 15. HEILSURÆKTARKERFIÐ „Verið ung“ gerir vöxtinn falleg- an, stæltan og brjóst- in stinn. Með því að æfa kerfið verðið þér grennri, fegurri og hraustari. Kerfið þarfnast engra á- halda. Æfingatími 5 mínútur á dag. „Verið ung“ ásamt skýring- armyndum kostar að- eins 40 kr. Biðjið um kerfið strax í dag, það verður sent um hæl. Utanáskrift okk- ar er: — VERIÐ UNG Pósthólf: 1115, Rvík. Otgefandi VIKAN H.F, Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Gísli J. Ástþórsson, Tjamargötu 4, sími 15004, pósthólf 149.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.