Vikan - 01.05.1958, Qupperneq 14
„3f5g er hrædd. Það stendur á miðanum, að það komi eitthvað hræðilegt
fyrir Tommy, ef ég næ í lögregluna. Skilurðu ekki — það er búið að ræna
Tommy!" Georgia sló með kreptum hnefanum í uppandlegg hans. Hún
kjökraði með samanbitnar tennur: „Þú verður að hjálpa mér að finna hann,
Max. Tomy er sonur þinn!“
Eftir stundarkorn andvarpaði hún og gekk frá honum. Hann stóð eftir
við gluggann, þar til hann heyrði málmhljóð fyrir aftan sig. Hann sneri
sér við. Georgia sat á rúminu og opnaði og lokaði tösku sinni án afláts.
Hún var full örvæntingar, en hún var hætt að gráta.
„Hann er sonur þinn,“ endurtók hún lágri röddu. „Þú ert og verður
faðir hans — þótt við séum ekki gift lengur — þótt Tommy hafi nú annað
ættarnafn. Ég hélt að þú myndir hafa miklar áhyggjur út af þessu. Ég
hélt, að vegna þess að þú varst einu sinni leynilögreglumaður, gætir þú
komizt að því hvar Tommy er niðurkominn, ég hélt þú gætir farið til þeirra,
sem hafa hann í haldi og grátbeðið þá um að skila honum heilum á húfi.
Eða, ef þú gætir aðeins komizt að því hvar hann er. Ég myndi fara til
þeirra — ég myndi grátbæna þá um að skila mér Tommy — ég myndi gefa
allt mitt."
Hún hætti. Thursday leit á fallegt andlit hennar afmyndað af angist.
Hann neri á sér skeggjaða vangana hugsandi og fann, að kjálkavöðvarnir
voru samanherptir. Hann gekk að rúminu og fékk sér aðra sígarettu.
Thursday sagði: „Jæja, við skulum þá byrja á byrjuninni."
„Max!" hvíslaði hún og axlir hennar sigu af feginleik.
„Við skulum sleppa öllu þakklætisþvaðri. Þetta er krakkinn minn.
Hvernig er Tommy núna?"
Georgia rótaði í tösku sinni, og horfði á manninn, eins og hún væri að
reyna með rökum augunum, að fá hann til þess að skipta ekki um skoðun.
„Ég er með nokkrar myndir. Hann verður sex ára í júní — manst það?"
„Áttunda júní," sagði Thursday.
Hann rétti upp hendina og tók í brúnan streng, sem hékk neðan úr
perustæði í loftinu. Georgia skalf.
Hann settist á rúmið við hlið hennar og horfði á myndirnar. Ein var
rauðlitur lappi." Við létum taka þessar I síðustu viku," sagði hún. „Þessi er
næstbezt. Við urðum að láta ljósmyndarann fá þá beztu."
Hinar þrjár voru skyndimyndir rifnar út úr ljósmyndaaalbúmi. Svart
pappírsslitur loddi við afturhliðina. Thursdy virti son sinn fyrir sér.
Fram.ha.ld í nœsta blaði.
I'ENIMAVIIMIK
Sölvi Helgason, (við stúlkur 15—
18 ára), Nóatúni 26, Reykjavík. —
Sigríður Gréta Þorsteinsdóttir, Elín
Hrefna Hannesdóttir og Elísabet Víg-
lundsdóttir (við pilta eða stúlkur 18
—25 ára), allar á Húsmæðraskólan-
om á Eaugalandi, Eyjafirði. — Ölöf
Guðm. Kristmundsdóttir (við pilta
15—17 ára), Grundargötu 6, lsafirði.
— Birgir Friðriksson (við stúlkur 17
—19 ára), Vallargötu 26, Keflavik.
— Hjördís Hannesdóttir (við pilt eða
stúlku 15—17 ára), Skorradal (bæj-
arnafnið ólæsilegt) Borgarfirði. —
Ester Hallgrímsdóttir, Læknisbú-
staðnum og Júlíana Pálsdóttir, Lög-
reglustjórabústaðnum (við pilta 15—
20 ára), báðar á Bolungavík. —
Bjöm Björgvinsson (við pilta og
stúlkur 17—19 ára) og Gunnar
Björgvinsson (við pilta og stúlkur
20—25 ára, báðir á Ytra-Núpi,
Vopnafirði. — Guðlaug Þorstelns-
dóttir, Þernunesi (við pilta 17—18
ára), Halla Guðjónsdóttir, Kotmúla
(við pilta 16—17 ára) og Jórunn Ste-
fánsdóttir, Berunesi (vlð pilta 16—
17 ára), allar á Reyðarfirði, S-Múl.
— Hermann T. Einarsson, Sogamýr-
arbletti 46 (við stúlkur 18—15 ára),
Reykjavík. — Guðfinna Friðriks-
dóttir, Margrét Jóhannsdóttir, Krist-
in B. Sigurbjörnsdóttir og Margrét
Friðriksdóttir (við pilta og stúlkur
18—22 ára), allar á Húsmæðraskól-
anum á Laugalandi, Eyjafirði. — Ás-
rún Gunnlaugsdóttir (við pilta eða
stúlkur 15—17 ára), Eiríksstöðum,
Jökuldal, V-Múl., pr. Egilsstaðir. . .
Enn er barist um þýfi nasistanna — Framhaid af biaesiðu 9.
Nú liðu enn tveir mánuð-
ir. Þá rakst austurrískur
varðflokkur á lík mann-
anna. Mayr lá á bakinu og
kviður hans hafði verið rist-
ur opinn. Skammt frá var
lík Piehlers. Hann hafði
verið stunginn fimm hníf-
stungum.
Morð Þjóðverjanna hefur
styrkt þann grun austur-
rísku lögreglunnar, að
nazistaþýfið, sem enn er ó-
fundið, sé í vörslu ofstækis-
manna, sem hyggist nota
gullið til þess að vekja upp
r.azisman.
1 grend við líkin sáust
þess merki, að grafið hafði
verið í jörðina. Og för eftir
átta kassa, sem greinilega
höfðu verið mjög þungir,
fundust á staðnum.
Lögreglan er með skrýtna
tilgátu um hversvegna hol-
skurðurinn hafi verið gerð-
ur á Mayr. Hún giskar á,
að meðlimur ofstækis-
flokksins hafi svikið heit
sitt og selt Þjóðverjunum
uppdrátt sem felustaður
gullsins hafi verið merktur
á. Uppdrátturinn kann að
hafa verið í vörslu Mayrs
þegar morðingjarnir þustu
að þeim félögum. Það er nú
tilgáta lögreglunnar, að
Mayr hafi haft tíma til að
gleypa uppdráttinn og
morðingjarnir orðið að gera
á honum holskurðinn tll
þess að koma í veg fyrir að
uppdrátturinn lenti í hönd-
um yfirvaldanna þegar lík-
in fyndust.
— HARRY GREENWALL
Svör við „Veiztu?“
á bls. 5:
1. Gísli HaUdórsson.
— 2. Hann var sonur
Óðins og hann drap
Baldur. — 8. Bern-
hard Shaw. — 4.
Drómedarinn. — 5.
Kristlnn Guðmunds-
son, fyrrv. utanríkis-
ráðherra. — 6. 1846
fann ameríkumaður-
inn Elias Howe upp
fyrstu nothæfu
saumavélina. Hann
fann þá upp náUna
með auganu og notk-
un skyttunnar. — 7.
Vilhjálmur Tell. — 8.
Það er nafnkunnur
bær úr Sturlungu.
Þar bjó' Sighvatur
Sturluson, þar var
Smiður Andrésson
drepinn og þar var
stofnaður heitdagur
Eyfirðinga árið 1477.
— 9. Tara. — 10.
Köngtdó.
Kona með klær og hala —
Framhald af blaðsíðu 11.
inni. Ýms pyndingatæki voru fengin að
láni úr frönskum söfnum, og áhorfandinn
sá söguhetjuna kvalda með þessum tólum.
Seinni helmingur myndarinnar lýsti svo
fangelsissögu stúlkunnar, eftir að hún
hafði verið dæmd til æfilangrar þrælk-
unar, og í myndarlok var unga laglega
stúlkan, sem bíógestir höfðu kynnst í upp-
ha.fi, orðin að hlekkjaðri ófreskju, sem
jafnaðist á við það óhugnanlegasta sem
Hollywood hefur boðið upp á.
Hrollvekjumar á sýningartjöldum kvik-
myndahúsanna valda ýmsum hugsandi
mönnum áhyggjum. Það er óumdeilanlegt,
að myndir af þessu tagi hafa hin verstu
áhrif á börn. Myrkfælni og óeðlileg
hræðsla getur átt rætur sínar að rekja til
svona mynda.
Verst er ástandið þó í Bandaríkjunum,
þar sem sjónvarp er komið á nærri hvert
heimili. Sjónvarpsstöðvamar sækjast
einmitt eftir að sýna gamlar hrollvekju-
myndir, og foreldrarnir eiga erfitt með að
halda börnunum frá tækjunum.
— ROBERT MULLER
Lausn á krossgátu nr. 902.
LÁRIÉTT: 1 undanrennunni — llbrá — 12 sár — 13 kim — 14 óðs
— 16 óður — 19 elna — 20 mór — 21 hor — 22fró — 23 MB — 27 nn —
28 err — 29 sputnik — 30 vei — 31 nú — 34 sn — 35 leiðarhnoða — 41
tvenn — 42 fruma — 43 minnihlutar — 47 sk — 49 RE — 50 töf — 51
klastur — 52 MlR — 53 es — 56 kk — 57 kóð — 58 sum — 59 hró —
61 nein — 65 unun — 67 arn — 68 net — 71 Sem — 73 enu — 74 undan-
látssemin.
LÓÐRÉTT: 1 urð — 2 náum — 3 as — 4 nál —• 5 rr — 6 NK — 7 Níl
— 8 um — 9 nóló — 10 iðn — 11 bókmenntastefna — 15 sannindamerkinu
— 17 rós — 18 rottur — 19 err — 24 brú — 25 opið — 26 kinn — 27 nes
— 32 Lenin — 33 iðran — 35 lem — 36 inn — 37 ami — 38 Hel — 39 oft
— 40 aur — 44 núll — 45 hestur — 46 unun — 48 kös — 49 rík — 54
bón — 55 æru — 57 kind — 60 ónei — 62 eru -— 63 vel — 64 nes — 66 unn
■— 68 nn — 70 tá — 71 ss — 72 me.
Blaðamannafélagið 60 ára
Blaðamannafélag Islands er að-
ili að samtökum blaðamanna á
Norðurlöndum og einnig í Al-
þjóðasambandi blaðamanna, sem
aðsetur hefur í Brussel. Félagið
hefur tekið þátt í ýmsum mótum
blaðamanna erlendis og einnig
hafa norrænir blaðamannafundir
verið haldnir hér á landi.
I júní í sumar er ákveðið, að
fjölmennt, norrænt blaðamanna-
mót, eða pressumót verði haldið
hér á landi, og mun það standa
eina viku. Sækja það fulltrúar
frá öllum Norðurlöndum, og verða
erlendir gestir 60—80.
Blaðamannafélag Islands hefur
látið ýmis framfaramál þjóðar-
innar til sín taka á síðari árum
og stutt þau af megni. Félagar
þess eru nú um 60.
í stjórn Blaðamannafélags Is-
Frh. af bls. 13.
lands eiga nú sæti: Sigurður
Bjarnason, formaður, Jón Magn-
ússon, varaformaður, Andrés
Kristjánsson, ritari, Atli Steinars-
son, gjaldkeri, og Jón Bjamason,
meðstjórnandi.
1 stjórn Menningarsjóðs blaða-
manna eiga sæti: Sigurður
Bjarnason, formaður, Ingólfur
Kristjánsson, gjaldkeri og Hend-
rik Ottóson.
1 stjórn norræna pressumótsins
og norræna blaðamannasambands-
ins eru Högni Torfason, Haukur
Snorrason og Bjarni Guðmunds-
son.
Þrír menn eru heiðursfélagar I
Blaðamannafélagi Islands, Árni
Óla, ritstjóri, Skúli Skúlason,
ritstjóri og Valtýr Stefánsson, rit-
stjóri.
MORÐIÐ — Framhald af bls. 5.
Hann kenndi innilega í brjósti um mig, þar sem ég stóð ein uppi ■—- og
brátt fannst honum alveg upplagt að ég kæmi hingað með honum og
léki mitt hlutverk.
— Féllst hann líka á það að þú héldir áfram að mata lögregluna á
lygum ?
— Vertu nú ekki svona harðbrjósta, Letty. Skilurðu ekki, að þegar
þessi fjárans árás var gerð — eða réttara sagt eftir að hún var gerð
— þá fór mér að skiljast að ég væri í fjandans mikilli klípu. Við verðum
að horfast í augu við það, að ég hef fulla ástæðu til að vilja ryðja þér
úr vegi. Nú hefurðu aðeins mín orð fyrir því, að ég hafi ekki reynt það.
Þú getur ekki búizt við því af mér, að ég færi að sakfella sjálfa mig af
fúsum vilja. Jafnvel Patrick hugsaði öðru hverju ljótt um mig, og úr
því hann gat gert það, hvað mundt lögreglan þá gera? Mér sýndist
lögreglufulltrúinn ákaflega tortrygginn náungi. Nei, ég gerði mér grein
fyrir því að það eina sem ég gat gert, var að sitja sem fastast í gerfi Júlí»
og hverfa svo ofur hljóðlega, þegar minn tími væri kominn.
14
VIKAN