Vikan - 12.05.1960, Qupperneq 2
Flugfélag íslands
mun annast það á-
byrgðarmikla hlut-
verk að koma yður
landa á milli — og
gera það af mikilli
snilld. Þér munuð
njóta fyrsta flokks
þjónustu, og ferðin
verður á allan hátt
mjög þægileg. Við
getum fullvissað yð-
ur um, að þér verð-
ið í sólskinsskapi
drottinsdaginn, sem
lent verður á Kast-
rup-flugvelli, og eigið
ævintýrið fram und-
an. Skrifstofa Flug-
félags fslands í Kaup-
mannahöfn er við
Vesturbrúargötu,
eina aðalgötu borg-
arinnar. Skrifstofan
er til sóma um allan
frágang og góð land-
kynning. Hún er
beint á móti aðal-
járnbrautarstöðinni,
og sést sú bygging á
myndinni hinum
megin við götuna.
VIKAN GEFVR YÐUR KOST Á
KAUPMANNAHAFNARFERÐ FYRIR TVO
---------------------1
Frestur til þess
að skila
getraunaseðlum
er 3 vikur.
k.---i________________J
Þið sjáið liér Vesturbrúar-
götu um nótt, og Ijósadýrðin
speglast i regnvotri götunni.
Þið sjáið líka sporvagns-
brautirnar til liægri. Spor-
vagnarnir eru ein helztu sam-
göngutæki borgarinnar. I
Kaupmannahöfn býr nú rúm-
lega ein milljón manna, og
borgin er hin stærsta á Norð-
urlöndum.
— OG UPPIHALDI I VIKU
f þessu blaði lýkur verðlaunasamkeppni, sem staðið hefur yfir í þremur síðustu blöðum, — það er
að segja, einn þáttur í hverju blaði, og hér er hinn síðasti. Verðlaunasamkeppnin hefur að vonum
vakið geysilega athygli, og það er von okkar, að þáttakan verði góð eins og jafnan áður. Nú, þegar far-
gjöld til útlanda hafa hækkað að mun, verður sá hópur fámennari, sem getur leyft sér að sigla. Það
þykir þess vegna mikið happ að hljóta vinning sem þennan. Flestir ala með sér einhverja löngun til
þess að kynnast útlendum þjóðum og löndum, en fyrir fjöldann er það beinlínis fjárhagslega ókleift.
Að lokum má geta þess, að reynt verður að fá ljósmyndara til þess að fylgjast að einhverju leyti með
hinum ljónheppnu ferðalöngum. Þær myndir, sem hann kann að taka, munu síðan birtast í Vikunni
ásamt viðtali við þann, sem vinninginn hlýtur.