Vikan - 12.05.1960, Blaðsíða 5
Það á að banna plötuna —
ast sagt, lélegt „come back“ fyrir viðkomanda.
Það er að segja textinn er helbert klám og ekk-
ert annað. „Því miður“, sem betur fer, kann ég
ekki textann og ekki veit ég deili á höfund-
inum. En sem sagt, textinn er einn hryllingur
frá upphafi til enda og hæfir sízt kvenmanni
að syngja hann — og það meira að segja inn
á plötu. Ég er handviss um, að hann Rocco
Granada liefur áreiðanlega ekki ætlazt til þess
að fallega stúlkan hans, hún Marina, sem var
i hans augum sakleysið sjálft og bliðan, yrði
gerð að vændiskonu á Rónastíg í Reykjavík. Og
að iokum — að mínum dómi ætti að banna
þessa plötu, eins og „Vagg og veltu“ á sínum
tfma.
Vinsamlegast.
Marina.
Kæra, saklausa og blíða Marína. Einhvers-
staðar munu þau orð standa skrifuð, að
hreinum sé allt hreint. Samkvæmt þeirri
kenningu hafa svo rökfaslir náungar komið
fram með afleidda kenningu — að óhreinum
sé allt óhreint. Sem sagt, að það fari eftir
innræti viðkomanda sjálfs hvað hann sjái
og heyri f hverju atriði. Ekki kemur mér þó
til hugar, mín blíða og saklausa Marína, að
geta mér þess til að það standi að nokkru
leyti í sambandi við nefnda, afleidda kenn-
ingu, þegar þér hefur misheyrst varðandi
nefndan texta — Rónastræti í staðinn fyrir
Rómarstræti, og þótt ótrúlegt sé, Reykjavík
í staðinn fyrir ítalfu — og má raunar segja
segir Marína í bréfi —
að sú misheyrn muni vera óþörf, þvf að eftir
því, sem þú segir, mun textinn nógu sóðalegur
samt, að minnsta kosti ef sá skilningur er
lagður í hann. Við erum á sama máli og þú,
það á að banna þessa plötu, tafarlaust, svo
að blíðar og saklausar Marínur, eins og þú,
rjúki til þúsundum saman og kaupi hana og
geri að metsöluplötu, til þess að hlusta á
óþverrann — og misheyri og misskilji eins
og hugur þeirra stendur til.
INNFLUTNINGUR BLAÐA.
Kæri póstur.
ÞaS er alltaf verið að tala um nauðsyn þess
að spara gjaldeyri, og það mun mála sannast,
að gjaldeyrisviðskipti okkar séu langt frá því
að vera i sæmilegu lagi. En hvernig stendur á
innflutningi allra þessara útlendu myndablaða,
sem yfirleitt eru nauðaómerkileg og verra en
það, nema hvað sum þeirra eru mjög vel prent-
uð, einkum þau þýzku. Mörg af þessum blöðum
eru líka hrein og bein giæparit og siðspillandi,
þvf að það er fleira siðspillandi en klámið, þótt
alllaf sé verið að klifa á því. Og öll eru þau
yfirleitt svo nauðaómerkileg, að það kemur
ekki fyrir, að þar sjáist grein eða saga, sem
nokkrum heilvita manni er fengur í að lesa.
Til hvers er verið að eyða gjaldeyri i þetta —
þvi að eitthvað lilýtur það að kosta? Væru flutt
inn erlend blöð og tímarit,' sem einhver fengur
væri i, mundi það horfa öðruvisi við. Er ekk-
ert eftirlit með slikum innflutningi? Eða eru
gjaldeyrisviðskipti okkar svo stórum hagstæðarí
en af er látið, að okkur muni ekkert um þetta?
Með þökk fyrir birtinguna.
Andri.
Ég er bréfritara sammála, og vil bæta því
við, að manni finnst það oft stangast illilega
á, sem sagt er um þessi gjaldeyrismál, og
óþarfa innflutningurinn, sem maður sér í
búðargluggunum, því að þessi blöð og tíma-
rit, sem hann gerir að umtalsefni, eru ekki
nein undantekning. Væri ég spurður ráða —
sem stjórnarvöldin gera vafalaust ekki frem
ur en skaparinn spyr mig ráða um veður-
farið — mundi ég setja allan þann innflutn-
ing, sem þjóðin kemst prýðilega af án, á kol-
svartan lista á meðan verið er að rétta efna-
haginn við, þar á meðal öll þessi blöð og
tfmarit, en leyfa innflutning á betri tímaritum
og bókum og öllu því, sem með þarf, til að
lifa mannsæmandi nútíma lifi. Burt með allt
þetta skran, sem við höfum ekki neina þörf
fyrir ...
OG ENN ÞURFUM VIÐ AÐSTOÐAR.
Kæra Vika.
Gelurðu gefið mér heimilisföng þeirra Ricky
Nelson, Gordon Scott og Rock Hudson ...
Mattý.
Vikan snýr sér enn til hjálpsamra lesenda
og biður þá að hlaupa undir bagga. Hver veit
nema það sé einhver meðal þeirra sem viti
það, sem um er spurt. Og ef einhver þeirra
gæti bent okkur á einhverja upplýsingabók,
þar sem heimilisfang leikara og dægurlaga-
söngvara er að finna, væri okkur mikil þökk
á þvf.
Var þetta lítið eða stórt eyra?
If ít is Bordens it got to be good.
Fæst f flestum verzlunum
VIKAN
i