Veðrið - 01.09.1978, Blaðsíða 5

Veðrið - 01.09.1978, Blaðsíða 5
Sjöfn Kristjánsdóttir. Hafliðt Helgi Jónsson. Starfaði á Veðurstofu íslands frá hausti ’64 til hausts ’65, tók þar próf sérhæfðs aðstoðarmanns vorið ’65. Sjöfn útskrifaðist frá Háskóla íslands vorið 1973 með B. A.-próf i íslensku, sagnfræði og bókasafnsfræði. Vann á Landsbókasafni íslands frá þeim tíma og til hausts ’74. Dvaldi síðan í Englandi til hausts ’77 og hóf þar þýðingar fyrir loftslagsstofu Umhverfisvísindadeildar Háskólans í Austur-Anglíu — CRU School of Environmental Sciences, UEA, Norwich. Sjöfn er gift Jóni Eiríkssyni jarðfræðingi og eiga þau tvo syni. Þór Jakobsson veðurfræðingur, f. í Kanada 5. okt. 1936. Foreldrar hjónin Jakob Jónsson prestur og Þóra Einarsdóttir. Stúdentspróf frá Menntaskólan- um í Reykjavík 1956. Nám í Osló og Bergen. Cand.mag. í jarðeðlisfræði 1964. Cand.real. í veðurfræði (Bergen) 1966. Starfaði síðan við Háskólann í Bergen, en flutti árið 1968 til Kanada. Rannsóknir við McGill háskóla í Montreal. Ph.D. (doktorspróf) þaðan árið 1973 (í veðurfræði). Starfaði við Rannsókna- deild Veðurstofu Kanada (Atmospheric Environment Service) á tímabilinu 1973—1979. Deildarstjóri hafísrannsóknadeildar Veðurstofu fslands frá 1979. Kona Þórs er Jóhanna Jóhannesdóttir og eiga þau tvö börn. Hafliöi Helgi Jónsson, f. 13. april 1954 á Siglufirði. Stúdent frá M.A. 1974. M.S. próf í veðurfræði frá Ríkisháskóla New York í Albany, Bandaríkjunum árið 1978. Starfar á Veðurstofu Islands frá janúar 1979. Kvæntur Naremon Thepchai og eiga þau eitt barn. VEÐRIÐ --- 41

x

Veðrið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veðrið
https://timarit.is/publication/369

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.