Veðrið - 01.09.1978, Blaðsíða 6

Veðrið - 01.09.1978, Blaðsíða 6
JOHN A. KINGTON OG SJÖFN KRISTJANSD(>7"I'IR: Veðurathuganir Jóns Jónssonar eldra og yngra og gildi peirra við daglega veðurkortagerð eftir sögulegum gögnurn. Ágrip Unmd er að rannsóknum á veðurlagi og vindafari við NA-Atlantshaf á níunda tug átjándu aldar ( / 780— 90) með daglegn kortlagningu eftir sagnfrœðilegum gögnum. Hér er fjallað um mikilvœgi daglegra veðuralhugana á Islandi með þessar rannsóknir i huga, og þá einkum veðurbóka, sem fœrðar voru í Eyjafirði á öldinni 1747 til 1846 af þrestunum og feðgunum Jóni Jónssyni eldra og yngra. Kaidir marsmánuðir einkenndu veðurfar Englands og meginlands Evróþu á áratugnum 1780— 90, og í því skyni að mela gildi íslensku veðurathugananna við daglega korllagn- ingu, hefur verið gerð samanburðarathugun á svæðinu við NA-Atlantshaf þ. e. a. s. á marsmánuðunum 1785 og 1786. Nefnd er frekari hagnýling daglegra veðurkorta fyrn tíma þar sem notaðar eru hinar íslensku alhuganir; l. d. við langtímaathugun á hafís og lengslum veðurfars auslan og vestan N-A tlantshafs. Gerð daglegra veðurkorta frá 1781 er hluti verkefnaáætlunar Loftslagsstofu Háskólans í Austur-Anglíu. Verkefnið er kostað af Veðurfræðirannsóknanefnd bresku Veðurstofunnar. Verið er að teikna röð elstu daglegra veðurkorta eítir sagnfræðilegum heimildum og mælingum og auk þess yfirlitsskrár um vindafar Evrópusvæðis NA-Atlantshafs 200 ár aftur í tímann. Tugurinn 1780— 1790 var valinn sem hentugur upphafstími, ekki aðeins af hagkvæmniástæðum, þar sem vitað var að veðurfræðilegar heimildir væru til frá þeim tíma og til þessa dags, heldur einnig vegna þess að fyrri rannsóknir höfðu vakið grun um, að á síðari hluta 18. aldar hafi mikil frávik í veðurfari verið algeng. Þá, sem og í dag, olli aukinn breytileiki mönnum áhyggjum og menn lögðu sig fram við að skrá og safna daglegum veðurathugunum í vísindalegu skyni. Töluvert af þessum athugunum sem gerðar voru um alla Evrópu og víðar er sem betur fer enn til staðar í bóka- og skjalasöfnum, opinberum og í einkaeign. Þó svo að tímabilið sem hér um ræðir sé 80 árum fyrr en opinber dagleg kortlagning hófst, með stofnun veðurstofa hinna ýmsu rikja, þá var samt sem áður farið eftir gildum aðferðum við veðurathuganir og í mörgum tilvikum notuð samræmd mælitæki. Það sem helst skorti, var að senda upplýsingarnar nægilega fljótt til miðstöðvar og að leggja út af upplýsingunum svo vit væri í. 42 ---VEÐRIÐ

x

Veðrið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veðrið
https://timarit.is/publication/369

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.