Veðrið - 01.09.1978, Blaðsíða 30

Veðrið - 01.09.1978, Blaðsíða 30
Eins og sjá má af þessu eru ofviðri áberandi algengust i janúar og febrúar, sárasjaldgæf í júní, júlí og ágúst, en þó ekki alveg óþekkt. En hvernig er þá svona veður? Sem dæmi um ofviðrisdag, sem þó ekki fellur í aftakaveðursflokkinn valdist af handahófi 18. nóvember 1967 (suðvestan- veður), en sem dæmi um aftakaveður varð 17. janúar 1957 fyrir valinu (vest- anveður). I \ eðráttunni i nóvember 1967 stendur þetta: „Um kvöldið þ. 18. urðu miklir skaðar á Isafirði vegna hvassviðris og sjávarflóða. Sjór gekk yfir eyrina og í marga kjallara. Bát rak á land, og fleiri löskuðust og bryggjur skemmdust. Eitthvað fauk af járni af húsþökum á Isafirði og i Hnifsdal og rúður brotnuðu. I Hrísev sukku 3 trillur og þá fjórðu rak á land, fiskhjallar fuku þar og á Arskógsströnd og sjór gróf undan bryggjuhaus, og seig hann um 30 cm. I Olafsfirði fuku þakplötur af húsum.“ Nú, þetta er allnokkuð, en i veðráttunni í janúar 1957: „Þ. 17. urðu aftur (innsk. gífurlegir skaðar urðu þ. 14.) margvislegir skaðar af sjógangi og veður- ofsa á \ estur- og Norðurlandi. Brimið braut steinsteypta varnargarða á Flat- cyri, og sjór flæddi inn i kjallara húsa. Fiskvinnsluhús fauk, stórskemmdir urðu á skreiðarhjöllum og fiskimjöl eyðilagðist í geymslum í þorpinu. Utihús fuku í Skápadal í Patreksfirði, og nokkrar skcmmdir urðu á öðrunt bæjurn þar. Þinghúsið i Gufudal í Barðastrandarsýslu fauk af grunni og brotnaöi í spón. Vegur sópaðist burt á alllöngum kafla á Rauðasandi, og viðar á Vestfjörðum braut brimið vegi. Á Suðureyri varð mikið tjón á hafnarmannvirkjum og húsum i Bolungarvík urðu nokkrar skemmdir. Á Isafiröi fór hafnarbakki og bryggjur í kaf og skemmdir urðu á bátum. Bryggja brotnaði á Arngerðareyri. Miklar skemmdir urðu á mannvirkjum á Straumnesfjalli og í Aöalvik. Á Reykjanesi og Gilsbakka á Ströndum fuku hlöður. Bátur tókst á loft úr vetr- arstæði á Kjörvogi, fauk til og skemmdist nokkuð. Þak gistihúss í Haganesvik fauk og einnig þak af samkomuhúsi i Berufirði. Stórt fjárhús fauk i heilu lagi á Eundi í Holtshreppi. Víða fuku hey og þakjárn af húsurn og síma- og raflinur slitnuðu. V'b. Fjölnir strandaði við Rifshöfn og skemmdist litiö eitt og vb. Báran slitnaði upp og eyðilagðist. Brim braut sjóvarnargarð á Álftanesi og nokkrir bæir urðu umflotnir sjó og grjót barst á tún.“ Af ýmsum áttum Jafnframt þvi að athuga hvaða dagar væru ofviörisdagar, reyndi ég að ákveða hver hefði verið ríkjandi vindátt á landinu þessa daga. Því er ekki að leyna að þetta reyndist crfitt og stundum varð óhlutlægt mat að ráða meiru en æskilegt má telja. Eg vonast til að á næstu árum verði liægt að flokka ofviðris- dagana og þar með ofviðrin betur á áttir en ég hef hingað til getað gert. En þangað til verður þetta ófullkomna mat að nægja. Ég skipti sem sagt þessunt 634 dögum á 8 höfuðáttir auk flokks með dögum sem útilokað var að koma í flokk (ofviðri af ýmsum áttum sama daginn). Mynd 1 sýnir skiptingu daganna á áttirnar sem cins konar vindrós. Svipuð skipting 66 --- VEÐRIÐ

x

Veðrið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veðrið
https://timarit.is/publication/369

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.