Vikan - 23.02.1961, Síða 12
Draumspakur maður ræður drauma
fyrir lesendur Vikunnar.
Kæri draumráðningamaður.
Mér fannst í draumi, að ég opnaði útidyra-
hurðina hérna heima hjá mér og fyrir utan
stæði einhver kona, sem ég fagnaði mikið. Ég
bauð henni að koma inn fyrir, en hun þáði
aðeins að koma i ganginn og brosti góðlátlega
til mín, um leið og hún pataði eitthvað út í
ioftið. Tók ég samstundis eftir því, að hún var
mállaus. Hún benti mér á pappakassa, sem
hún hafði komið með, fullan af kjöti, bæði
reyktu og nýju. Mér skildist það vera frá ann-
arri góðri konu, sem ég þóttist þekkja. Ég rétti
konunni höndina brosandi, og þóttist ég kann-
ast óskö'p vel við þetta allt saman. En þegar
hún ætlaði að rétta fram höndina, sá ég, að
höndina vantaði alveg upp að úlnlið, og starði
ég furðu lostin á hana og vaknaði.
Hvað merkir draumurinn? Ellý.
Svar til Ellýjar.
Þér mun áskotnast verkefni, sem þú munt
verða lengi önnum kafin við, en þú munt
verða fyrir miklum vonbrigðum og leiðind-
um í sambandi við það, þó að allt öðruvísi
hafi á horfzt í fyrstu, þegar þú byrjaðir.
Kæri draumráðandi.
Mig dreymdi að ég var að ganga niðri i bæ,
þegar ég mætti mörgum strákum, sem ég þekkti.
Þegar ég ætlaði að ganga fram hjá þeim fóru
þeir fyrir mig svo að ég gat ekki haldið áfram.
Þeir fóru með mig að spákassa, en það þurfti að
láta pening til að spámiðinn kæmi. Fyrst setti
strákur, sem ég þekkti pening í og á hans miða
stóð: „Lifðu í dag.“ Hjá mér kom: „Lifðu hvern
dag.“ Svo fórum við að rífast þangað til að
tveir komu og leiddu hann burt á millj sín.
Með fyrirfram þökk,
Hollý.
Svar til Hollýjar.
í draumi þessum kemur glögglega fram að
þú vilt meir en pilturinn vill í té láta. A hinn
bóginn merkir spámiði að því er talið er
velgengni í ástamáluin. Merking draumsins
yrði því á þann veg að umræddur piltur
verður e-kki til viðtals um ástalíf til nema
eins dags, eða með öðrum orðum aðeins
tjaldað til einnar nætur. Ég álít hins vegar
rð þú munir hitta fyrir þér annað makaefni
seki þér mun falla betur við.
D -";iráðandi Vikunnar.
?úig dreymdi nýlega draum. Ég þóttist vera
stödd í herbergi og liggja í bláum sófa, og
fannst mér eins og rauðum bjarma s’ægi á her-
bergið. Svo fannst mér piltur, sem ég þekki og
er hrifin aí, ltoma til mín og krjúpa fyrir framan
mig. Svo byrjaði hann að faðma mig og kyssa,
en mér fannst eins og varir hans krcmu aldrei
við mínar, en samt kyssti hann mig. Ég vona,
að þetta komi sem fyrst.
Með fyrir fram þökk.
Henný.
Ev: r til Hrnnýiar.
Hin rauði bjarmi í herberginu er tákn
ástarhvatanna. Itautt er litur Marzorkunnar,
þegar hún beinist að ástarleikjum. Ek':i v?rð-
ur betur séð en þú fáir eigi fullnægingu
þeirrar þrár þinnar, því að, þú finnur ekki
fyrir vörum vinar þíns. Þetta mundi því
nerkja, að hann væri ekki þörfutn bínim
vaxinn.
Framhald á bls. V.!,
Klippið hér
Frægur atburður úr
Islendingasögunum.
Atburður sá, er myndin sýnir, er einn af hinum kunnu úr
íslendingasögum: Tveir afrenndir að afli takast á fangbrögð-
um og hefur þeim átökum lengi verið við brugðið. Annar var
„ólíkur nökkurri mannligri mynd“, hinn sterkari en aðrir
menn á íslandi. Fundum þeirra bar saman um nótt, og þeir
tókust á í skálanum, svo að allt lauslegt brotnaði. Sá, er „ólíkur
var nökkurri mannligri mynd“ reyndi að koma hinum út úr
bænum og tókst það, en í bæjardyrunum varð hann hins vegar
undir; óð þá tungl í skýjum. Er hann varð undir orðinn,
hvessti hann augun og mælti meðal annars þetta, sem síðar
kom fram: „Þú hefur frægur orðið hér til af verkum þinum,
en héðan af munu falla til þin sektir og vígaferli, en flest verk
þín snúast þér til ógæfu ok hamingjuleysis. Þú munt verða
útlægur gerr og hljóta jafnan úti að búa einn samt.“ Nú spyr
Vikan: Hverjir eigast við?
1 2 VIK.AN