Vikan


Vikan - 23.02.1961, Síða 41

Vikan - 23.02.1961, Síða 41
W1KA1U Útgefandí: VIKAN H.F. Rititjóri: Gísfi Sígurðison (ábm.) Auglýsingastjóri: /óhannes Jðrundsson. Framkvæmdastjórl: Hilmar A. Kristjánsson. Ritstjórn og auglýslngar; Skipholtí 33. Simar: 35320, 3S32I. 35322. Pósthójf 149. Afgreíðsla og dreifing: Blaðadreifing, Miklubraut 15, slmj ISOIA Verð I lausa- sölu kr. 15 Áskriftarverð er 200 kr. írs- þriðjungslega, greiðlst fyrlrfram. Prent- un: Hllmlr h.f. Myndamót: Rafgraf h.f. Þið fáið Vikuna í hverri viku / næsta blaði verður m. a.: 4 Fegurðarsamkeppnin með nýju sniði: Lesendur Vikunnar velja stúlkur í úrslitin. 4 í kjölfar Jóns Indíafara. Hrímnir tók saman. 4 Farþeginn í aftursætinu. Mergjuð draugasaga. 4 Síðasti þáttur verðlaunagetraunarinnar. Frystikista og kæliskápur í boði. 4 Hary, fótfráasti maður heimsins. Grein og myndir um þjóðverjann, sem sigraði á Ólýmpíuleikunum og setti heimsmet í 100 m hlaupi. 4 Friðlaust geð. Grein eftir dr. Matthías Jónasson um förumenn fortíðar og nútíðar. 4 Yfirlætislausir ökuníðingar. Dr. Asperín skrifar þátt um umferðarmál. 4 Laukrétt niðurstaða, smellin ástarsaga. PALLI PRINS. Framhald af bls.25. vænna. Hérinn leit á hann fullur þakklætis. En svo breyttist hann allt i einu. „Hvað, er þetta ekki Putti?“ Hann gekk varlega að dyrunum sagði hann og gapti af undrun. og opnaði. En það var engan að sjá. „Hefur þú bjargað lífi mínu, — þú, Þetta var notalegt. Hann gekk eitt sem ert sjálfur vanur að veiða skref út fyrir dyrnar til að líta bet- héra?“ Ur í kringum sig. En þá hentist hann Palli litli prins var gráti nær. allt í einu upp i stóru, grænu stig- „Ég er ekki Putti,“ sagði hann. vélin, sem tröllkarlinn átti. Þau „Hvað?“ sagði hérinn. „Ertu ekki höfðu tekið sér stöðu beint fyr- Putti. Þú hlýtur þá að vera Palli ir utan dyrnar. Það hvein i þeim, prins.“ um leið og þau þutu af stað „Já,“ sagði Palli, „ég er ...,“ en með hann niður hæðina. Palli varð þá þagnaði hann. „Ég hef verið alveg örvilnaður. Einmitt það, já, tröllkarlinn hafði sent stígvélin sin út til að fanga hann aftur. Hann reyndi að snarstanza og losna þann- töfraður, svo að ég get ekki sagt nafnið mitt. Skilurðu?“ „Æ, æ, æ,“ sagði hérinn. „Það getur margt einkennilegt komið ig úr þeim, en i þetta skipti tókst fyrir mann. Hugsaðu þér, — að mæta það ekki. Grænu stígvélin voru eins prinsi aleinum lengst inni í skógi. og föst við hann. Palla varð það En ég trúi þér. Hefðirðu ekki verið Ijóst, að eftir svolitla stund mundi prinsinn, hefðirðu ekki bjargað hann verða fangi i höll tröllkarls- mér. Komdu heim með mér, og ég ins í fjallinu. skal biðja mömmu að sauma héra- En þá kom dálítið einkennilegt skinnsstígvél handa þér. Það hæfir fyrir. Þegar hann þaut i gegnum ekki prinsi að ganga um á sokka- skóginn, kom hann allt í einu auga leistunum." á lítinn héra, sem var fastur í Palli gat ekki annað en hlegið. snöru. Palli litli fölnaði upp. Hann Var hann ekki aftur kominn á varð að hjálpa héranum, hvað sem sokkunum út í snjóinn? Þetta varð það kostaði. En hvernig átti hann að vera í siðasta skipti, annars gæti að fara að því? Með því að beita hann orðið hættulega veikur. öllum kröftum reyndi hann að halda aftur af stígvélunum og hvísl- aði um leið: „Leyfið mér i guðs bænum að hjálpa litla héranum." Það small í einhverju, og um feið misstu stígvélin mátt sinn og hurfu. En að frelsunin væri því að þakka, hve hann var góður við hérann, — ]iað datt honum ekki í hug. Nú reið á að bjarga lífi hérans. Hann hljóp af stað og var brátt kominii alveg að héranum og gat frelsað hann. Það var ekki seinna hann. Ánægður fylgdist hann á eftir héranum, og brátt komu þeir að stórri og gamalii trjárót. Hérinn barði á hurðina, og vingjarnleg héramamma kom til dyra og sagði: „Velkominn, vertu velkominn i fátæklegu húsakynnin okkar, litli prins.“ „Fátækleg húsakynni,“ sagði Palli prins, um leið og hann leit í kringum sig í vistlegri og skemmtilegri holu með litlum héra- rúmum og tuskuteppi á gólfinu. „Hérna er reglulega fínt,“ sagði Framh. í næsta blaði. tjáUuUat *<?6L ^ a HrútsmerkiS (21. marz—20. apríl): Þú munt hitta konu, sem mun breyta lifsskoðun þinni til muna. Trúðu henni samt ekki í blindni. Notaðu dagana betur og farðu fyrr á fætur á morgnana en áður. Frestaðu því ekki til morguns, sem þú getur gert í dag. Fjárhag þinum er stefnt í voða, en með lagni og þolin- mæði kemur þú honum á réttan kjöl. NautsmerkiS (21. apríl—20. maí): Þú mátt ekki láta hugfallast við það, sem þú hefur áhuga fyrir, þó að nokkurra byrjunarörðugleika gæti í sambandi við það. Og innan skamms eru miklar likur á því að þú sigrizt á erfiðu verkefni, sem lengi hefur valdið þér áhyggjum. En mundu, að þetta kostar þig talsverða vinnu og erfiði, en þú munt ekki sjá eftir þvi. Tvíburamerkiö (22. maí—21. júní): Ef einhver breyt- inS verður á högum þínum þessa vikuna, mun hún vafalaust verða til batnaðar. Amor verður önnum ^V kafinn meðal ógiftra, einkarlega um helgina. Þú ert ekki nógu viljasterkur og veigrar þér við að ráðast í stórræði. Þriðjudagur verður mikill heilladagur og viðburðarríkur fyrir ástfangið fólk. KrabbamerkiÖ (22. júní—23. júlí): Vikan verður fremur daufleg og það er eðlilegt þar sem þú lifir fyrir ekki neitt. Einhvern tíma hefur ein manneskja reynt að hafa áhrif á þig, en ekkert dugað. Nú ætt- irðu, þó seint sé, sjálfur að taka þig á. Einnig ættirðu að leita þér nýrra félaga, þú veizt sjálfur að þú ert meiri maður en félagar þínir og nú ættirðu að hrista þig upp úr þessari deyfð tilgangsleysisins. LjónsmerkiÖ (24. júlí—23. ágúst): Vikan getur orð- ið ærið varasöm, einkum í öllum ástamálum og tengslum við návini þína. Þú skalt ekki taka ná- ungann allt of alvarlega. Á vinnustað mun þér lík- lega verða á einhver smávægileg skyssa, sem meira verður gert úr en tilefni standa til. Mundu það vel í vik- unni að efna öll þín heit og fara ekki á bak við nokkurn mann. Meyjarmerkiö (24. ág,—23. sept.): Eitthvað veldur þér dálitlum kvíða; en á því átt þú enga sök. Fimmtudagurinn verður einkar skemmtilegur og viðburðarrríkur, en ekki er víst að helgin verði að sama skapi skemmtileg, nema þú umgangist kunn- ingja þina af mestu varfærni. Það er engum til heilla að hugsa eingöngu um sjálfan sig. VogarmerkiÖ (24. sept.—23. okt.): Þessi vika er kvenþjóðinni til mikilla heilla, en karlmönnum því miður til ama. Kvenfólkið mun eiga sæla daga, einkum þær ógiftu og lausu, en þunglyndi og skap- vonzka mun hrjá vesalings karlmennina. En eitt er karlmönnunum til bóta, gott er að hefja framkvæmdir í þessari viku. DrekamerkiÖ (24. okt.—22. nóv.): Þú munt ráðast í eitthvað fyrirtæki og munt mæta töluverðri and- spyrnu, en láttu það ekki buga þig. Ef áform þitt nær fram að ganga, mun ef til vill einn óskadraum- ur þinn rætast, þótt síðar verði. Þér mun hlotnast óvænt peningaaukning, vinningur í happdrætti, arfur, eða annað. Happalitur blátt og fjólublátt. Bogmaöurinn (23. nóv.—21. des.): Það eru ekki mörg ský á hamingjusimni þínum þessa viku. Þér mun vegna vel í vinnunni og hvarvetna mun ham- ingjan leika við þér. Þó skaltu fara varlega, ef þér verður boðið í samkvæmi, því að þar eru líkur á að þér verði á axarskaft. Heillalitur er gult fyrir kvenfólk. GeitarmerkiÖ (22. des.—20. jan.): Vikan verður fremur skemmtileg og viðburðarrik. Þú verður alltaf á þönum og ef þú hefur þig allan í frammi, munu vinsældir þínar aukast til muna. Liklega muntu fá bréf seinni hluta vikunnar, sem kemur þér illilega á óvart. Vertu sem minnst heima hjá þér, því að þú munt fá tækifæri til að kynnast heilmörgu fólki. Heilla- tala 9. Vatnsberamerkiö (21. jan.—19. febr.): Þú skalt forðast að tjá um of tilfinningar þinar í þessari viku. 1 peningamálum áttu þér andstæðinga, sem koma ef til vill illa fram við þig og óheiðarlega. En ekki er þar með sagt að þú komir sjálfur heiðarlega fram í þessu máli. Sýndu vinum þínum af hinu kyninu mikla nærgætni. Fiskamerkiö (20. febr,—-20. marz): Þótt ekkert gerist þessa viku, skaltu samt láta hendur standa fram úr ermum. Þú mátt ekki alltaf gera ráð fyrir að skemmtanir og lystisemdir séu á næsta leiti. Þess vegna skaltu njóta sem mest samvista við fjölskyldu þína og nánustu kunningja. Heillatala 9.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.