Vikan - 16.03.1961, Blaðsíða 3
Yndisþokki næturinnar í carabella . . .
Um systkin góða dátans Svejk.
Kæri Póstur!
Mig langar aS biðja þig, Póstur góður, að
segja mér hvort ekki hafi komið út fleiri skáld-
sögur eftir Jaroslav Hazek, þann sem samdi
„Góða dátann Svejk“, á íslenzku. Og ef svo er,
hvort þær (eða hún) eru fáanlegar hér á þessu
„bókaflóðslandi“.
Með fyrirfram þakklæti.
FÁ.
Jaroslav Hazek skrifaði aðeins Góða dát-
ann Svejk og var hún aðferð hans til að deila
á styrjaldir. Annars hataði Hazek bókmennt-
ir og gleriðjumenn.
Þarf maður að eiga belti?
Kæra Vika!
Mig langar til að spyrja þig að svolitlu, ég
lief mikinn áhuga á glimu og mig langar til að
æfa hana, en ég veit ekki hvert ég á að snúa
mér, geturðu sagt mér það? Svo er annað, þarf
maður að eiga belti eða þess háttar? Ef svo er,
hvar er hægt að fá þau?
Með fyrirfram þökk.
Bússi.
Þú skalt snúa þér til Glímufélagsins Ármanns
í Reykjavík, og þar færðu áreiðanelga miklu
betri og ýtarlegri upplýsingar en ég gæti
gefið þér.
Er að falla í stafi.
Kæri Póstur!
Enn einu sinni ætla ég að klagast i þér. Þann-
ig er nefnilega mál með vexti að ég er svo
hræðilega grönn — grönn er ekki rétta orðið
yfir það ég er blátt áfram mögur. Það er alltaf
verið að birta þætti um það hvernig fólk eigi
að megra sig en hvernig væri að birta einu
sinni einn þátt um það hvernig fólk ætti að
fita sig, svona til tilbreytingar. Ef ég fæ ekki
fljótt formúlu fyrir þvi dett ég i sundur. Ég
vonast eftir svari fljótt. Þakka þér svo fyrir
allt skemmtilega lestrarefnið.
Ein MÖGUR.
Þú ættir bara að sjá hvað ég hamast á rit-
vélinni til þess að reyna að bjarga þér frá
því að detta sundur. En samt er það nú svo,
að þótt ég hafi einnig átt við sama vandamál
að stríða er ekki víst að það, sem mér reynist
vel, gildi líka fyrir þig. En þú skalt reyna
að taka lýsi — og það ekki bara penpíulega
eina teskeið á dag, heldur skaltu finna þér
stærstu skeiðina, sem til er á heimilinu og
taka það úr henni. Svo skaltu borða reglu-
lega, byrja á því að borða þegar þú ferð
fram úr á morgnana og borða síðan alltaf
á sömu tímum dag eftir dag. En um það,
hvað þú mátt borða, get ég ekkert sagt þér,
nema hvað ef til vill væri svolítið sniðug't
að fara þveröfugt við megrunarforskrift-
irnar.
Hver á að gera vinnubókina?
Vikan Reykjavík.
Nú er ég í vandræðum, að því að ég er að
gera vinnubók og þarf að vita hvar og hvenær,
hvað það er margar brúttólestir og hvað það
er með margra manna áhöfn hvert þessara skipa
sem ég tel upp: Gullfoss, Goðafoss, Lagarfoss,
Dettifoss, Tröllafoss, Tungufoss, Fjallfoss,
Reykjafoss, Selfoss, Hamrafell, Hvassafell, Jök-
ulfell, Disarfell, Litlafell, Katla, Askja, Vatna-
jökull, Langjökull, Hekla, Esja, Herðubreið,
Skjaldbreið, Þyrill, Herjólfur. Og þessar flug-
vélar livaða sort þær eTU og hvað margra áhöfn
og hvað hún tekur marga farþega: Snorri
Sturluson, Leifur Eiriksson, Edda, Hekla, Hrím-
faxi, Sólfaxi.
Vinnubók argerari.
Þar sem það ert þú, en ekki ég, sem ert að
gera þessa vinnubók, ræð ég þér að snúa
þér heldur til viðkomandi skipa- og flug-
félaga og fá þessar upplýsingar beint. Hver
veit líka, nema Jón Pálsson sem annast tóm-
stundaþátt útvarpsins viti þetta allt?
Yinsæl kvikmynd.
Kæra Vika.
Ég ætla að biðja þig að koma á framfæri
spurningu um hvort ekki sé hægt að endur-
sýna kvikmyndina „Tiger bay“, sem var sýnd
1 Tjarnarbíói í vetur. Ég missti af henni þá, en
mig langar til að sjá hana og ég er viss um,
að margir munu vilja sjá hana aftur, sem sáu
hana þá. Fyrir stuttu frétti ég, að verið væri
að sýna „Tiger bay“ á Akranesi, en ég vona
samt að hægt verði að sýna hana hér áður en
langt um líður.
Með fyrirfram þökk.
Kvikmyndaunnandi.
Þetta er hérmeð birt með áskorun til Frið-
finns Ólafssonar, forstjóra Tjarnarbíós. Ef
það skyldi samt ekki hrífa, er ekki úr vegi
fyrir þig að hringja I hann sjálfur og tala
við hann, því hann er viðræðugóður og við-
kunnanlegur maður.
VIKANÍ 3