Vikan


Vikan - 20.04.1961, Síða 2

Vikan - 20.04.1961, Síða 2
•— 1 Stóra-Bretlandi er bezt aö vera karlmaöur, svo hestur, því næst hundur oq síöast kona. 1 Bandaríkjunum er þetta alveg eins, — nema þar er rööinni snúiö viö.. Þetta er haft eftir rithöfundi, sem var hunn- ugur á báöum stööunum. Póstinum hefur borizt álitlegur stafli af bréf- um, sem öll hafa beöið um hið sama; kvæði Sigurðar Þórarinssonar jarðfræðings, sem Ragnar Bjarnason og Anna Maria Jóhannsdóttir sungu í þætti Svavars Gests, „Gettu betur“, snemma i marz s.l. Við sjáum okkur ekki fært að skirrast við þessum óskum lesendanna og hér koma þessir textar. Sá fyrri, Vorkvöld í Reykjavík, er „með sínu lagi“, en sá síðari „Svona er ást á Frónsku" með tveim- ur ólikum lögum, Santa Lucia og lag við gaml- an Marzuka. Vorkvöld í Reykjavík. Svífur yfir Esjunni sólroðið ský, sindra vesturgluggar sem brenni í húsunum. Viðmjúk strýkur vangana vorgolan hlý vaknar ástarþráin i brjóstum á ný. Kysst á miðju stræti er kona ung og heit, keyra rúntinn piltar, sem eru i stelpuleit Akrafjall og Skarðsheiði: Eins og fjólubláir draumar, ekkert er fegurra en vorkvöld í Reykjavík. Tjörnin liggur kyrrsæl í kvöldsólarglóð, kríurnar þótt nöldri og bjástri í Hólmanum. Hjúfra sig á bekkjunum halir og fljóð, hlustar skáldið Jónas á þrastanna ljóð. Dulin bjarkarlimi á dúnsins mjúku sæng dottar andamóðir með höfuð undir væng Akrafjall og Skarðsheiði: Eins og fjólubláir draumar, ekkert er fegurra en vorkvöld i Reykjavík. Hljótt er kringum Ingólf og tæmt er hvert tár, tryggir liggja rónar hjá galtómum bokkunum. Svefninn er þeim hóflega siginn á brár, sunnanblær fer mildur um vanga og hár. Ilmur er úr grasi og angan moldu frá, aftansólin purpura roðar vestursjá. Akrafjall og Skarðsheiði: Eins og fjólubláir draumar, ekkert er fegurra en vorkvöld í Reykjavik. Svona er ástin á Fróni. Land veit ég langt og mjótt, lifir þar kynleg drótt, er nefnist ítalir, eru þeir kvensamir. Ástfangnir einskis svíf- ast þeir og beita hnif. Þannig er ástinó — á Ítalíanó. Hnífa að brúka agalegt er, annar er stæll á gæjunum hér: Sá, sem af stelpu ástfanginn er ei kemur fram sein róni. Með kitlurn hann kemur henni af stað, kyssir hana og segir: „Eigum við að ...“ og ungfrúin svarar: „Ætl‘ ekki það ...“ Astin er svona á Fróni. Tveir ef að svanna sjá, sem báðum lízt vel á, óðar hefst æsingur, upp dregnar pístólur. Lét margur lassarón líf fyrir stelpuflón. Þannig er ástinó — á Ítalíanó. Finnst yklcur nokkuð fyndið í þvi, að fá gegn um hausinn pístólublý? Ilvað gagnar stelpu ástaleik í 2 VIKAN

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.