Vikan


Vikan - 20.04.1961, Síða 3

Vikan - 20.04.1961, Síða 3
örendur lassaróni? Hnefana að brúka hentugra er, heiðarleg slagsmál — þau líka mér. Og stelpan kýs þann, sem ómeiddur er. Ástin er svona á Fróni. Ástfangin hönd i hönd, himandi á sjávarströnd, mæna á mánans ljós mannkerti og svarteyg drós. Gutlandi á gitara grátklökka slagara, svift allri sálarró, sorgmædd en hástemmd þó, siðast þau sonnettó syngja falsettó. Þannig er ástinó — á Ítalíanó. i i ! ! I . Svei, er það þannig suðrinu í? Sannarlega ekki getzt mér að því. Seint mun ég láta sesa mig i italska kærleiksflónsku. Betr‘ er á réttarböllunum hér, brennivín hafa allir með sér. Og heyið svo mjúkt í hiöðunum er. Hoilust er ást á frónsku. Grímseyingur kvartar. Grímsey — 26/2 1961. Kæri Pósturl iíg hef lengi ætlað að senda þér nokkrar lín- ur útyfir umferðarijósin i Rvk, það herti á mér þegar ég sá grein gamla mannsins í Póst- inuni i siðustu „viku.“ Eg var slödd í Ilveragerði í haust, fór með áættunarbil til Reykjavikur, fór úr honum við Nóatún og ætlaði yfir götuna og taka strætó niður á Sundlaugaveg, en ég get ekki hlaupið og Jromst því aidrei yfir Suðurlandsbrautina íyrir umferðinni. Eg stóð þarna lengi, en það endaði með þvi, að ég stöðvaði leigubil og fór i honum niður á Sundlaugaveg. Hvernig væri að bæjarstjórnin léti setja umferðarljós á þessi vegamót, svo að hinn gangandi vegfarandi hefði eitthvert forskot til þess að kpmast áfram fyrir biiunum? En þið hugsið liklega sem svo að manneskju norðan úr ishafi skipti þetta ekki miklu máli, en ég hefi von um að koma aftur i bæinn. Svo álit ég, að umferðarijós á þessum fjölförnu vega- inotum hljóti að koma sór vel fyrir bæjarbúa. Með fyrir fram þökk. Eyjarbúi. E.S. ' | Hvernig er það með verðlaunin hjá ungfrú Ástrósu? Það er aldrei hirt i Vikunni, hverjir fá þau, eða er aldrei dregið? Kæri Eyjarbúi. Það hefur tekið bréfið þitt tilsvarandi langan tíma að komast í mínar hendur, eins og það tók þig að komast niður á Sundlaugaveginn. Því get ég glatt þig með því, að nú eru komin umferðarljós á þessi gatnamót, svo næst, þegar þú gistir hofuðborgina, ættir þú að kornast klakk- iaust yfir Suðurlandsbrautina, er þú kemur frá HveragerðL Hins vegar þykir mér bágt að heyra það, að þú skulir ekki hafa komizt yfir brautina, þótt þér sé tregt um hlaup, því þarna áttu alltaf að vera lögregluþjónar til taks, bæði til þess að greiða fyrir bílaumferðinni og einnig að hjálpa fólki yfir. Þú hlýtur að hafa hitt svo illa á, að lögregluþjónninn hafi verið fjarverandi þá stundina, sem getur komið fyrir. — Ég get mér til, að það, sem þú kallar ungfrú Ástrósu, sé það saina og við köllum ungfrú Yndisfríði, og eins og þú hef- ur væntanlega séð í undanförnum blöðum, höfum við hamazt við að draga úr réttum lausnum, og birt nafn eins sigurvegara í hverri Viku. í herinn. Kæri Póstur. Ég þakka þér fyrir allt skemmtilegt efni og góðar sögur. Mig langar að spyrja þig hvort hægt sé að komast 1 her einhvers staðar úti, og er það dýrt og er viss aldur og eitthva'ð meira? Einnig hvert maður á að snúa sér til að fá viunu einhvers staðar í Evrópu. Heldurðu að þú vildir svara þessu fyrir mig. Með fyrir fram þakklæti. P.s. Hvernig er skriftin? Lubbi. Það er sjálfsagt hægt að komast í her ein- hvers staðar úti í löndum, en með flestum siðmenntuðum þjóðum þarf meira en vilj- ann til þess. í fyrsta lagi þarftu að vera orðinn 18 ára, hafa leyfi foreldra þinna, (sértu yngri en 21 árs) uppfylla vissar kröf- ur um líkamshreysti o.fl. Það er ekki dýrt, meira að segja færðu vissa dagpeninga meðan þú ert í hernum, og skyldir þú nú eiga konu í fórum þínum, fær hún einnig vissa fjárhæð reglulega. Nú sem stendur er hægt að komast í málalið Tsjombes hins kongóska án mikillar fyrirhafnar, og er dálaglega borgað, en hvítir menn eru þar víst ekkert vel séðir. Mér sýnist líka á bréfi þínu, Lubbi minn, að þú sért ekki orðinn tiltakanlega gamall, og þér liggi því ekkert á því að komast í her, eins eða neins staðar. — Sendiráð hinna ýmsu Evrópulanda ættu að geta gefið þér upplýsingar um mögu- leika til þess að fá vinnu í viðkomandi lönd- um, og þú skalt óhræddur snúa þér þangað. Skriftin er fremur ljót og stafsetningin fyrir neðan allar hellur. vikakí 3

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.