Vikan


Vikan - 20.04.1961, Page 6

Vikan - 20.04.1961, Page 6
HOtyARD tyyCE $másngn cftir ALLA leiöina heim frá stöðinni var Róbert Moss að velta fyrir sér orðum, sem hann hafði heyrt einhvers staðar: Það er auðvelt að giftast, en það er erfiðara að halda áfram að vera gif-tur. — Honum varð hugsað til bilferðarinnar kvöldið áður og fann eins og í draumi hlýju og ilmandi nærveru Karenar. Hann leit út um gluggann á skrautleg einbýlishúsin i gullnu kvöldskininu. Nokkrir kunningja hans voru úti og rótuðu í görðunum, aðrir lágu í þægilegum garðstólum og töluðu saman. Þeir álitu sjálfsagt, að hann væri að engu leyti frábrugðinn þeim. Ekkert frábrugðinn Jack Summers, sem var að klippa rósagirðinguna, eða Stanley Yernom, sem labbaði heim að húsinu með hattinn i hendinni og töskuna undir handleggn- um. Hann var einn af þeim, — rólegur, vinnusamur maður, sem hafði komizt i meðallagi vel áfram, enn þá ungur og hamingjusamur i hjónabandinu, faðir tveggja indælla barna og eigandi fallegs einbýlishúss. Þannig hlaut hann að vera í augum Evu, konunnar sinnar. Og þó var......... Hann hnyklaði brúnirnar og rótaði í vösunum eftir smá- peningum, þegar leigubill- inn ók upp að hliðinu. Samt hafði þessi vel metni og heiðvirði Róbert Moss faðmað aðra konu og fyllzt ástríðu, þegar varir hans mættu hennar. . . . Eva kallaði á hann, strax og hann var kominn inn úr dyrunum. — Róbertl Ertu kominn svona snemma heim, elskan? Ég er uppi að baða krakkana. — Ég kem upp! kallaði hann. Hann lagði töskuna frá sér og fór úr frakkanum. Nokkra stund stóð hann kyrr og horfði í kringum sig. Nú var hann kominn aftur hingað, — hingað á heimilið sitt, til fjölskyldu sinnar. Og kvöldið i gær virtist eins og gamall draumur, — en hefði draumur getað, hversu raunverulegur sem hann hefði verið, valdið slíku samvizkubiti? Hann gekk upp stigann og heyrði skvaldrið og skvampið i tviburunum, áður en hann opnaði baðherbergisdyrnar. Andlit Evu var álíka rjótt og gljáandi og tvíburanna. Nokkr- ir votir hárlokkar gægðust fram undan klútnum, sem liiin hafði bundið um hárið. Hann leit á hana og tviburana og hugsaði með sér, að þetta væri fjölskylda sín. Hann elskaði konuna sina, og hann elskaði börnin sín. En samt hafði hann getað hugsað sér að yfirgefa þau fyrir tæpum sólarhring. Drengirnir dengdu á hann spurningum um gjafirnar, sem þeir bjuggust við, að hann hefði meðferðis frá London eins og venjulega, og töluðu hvor í kapp við annan um ó- happið, sem þeir höfðu orðið fyrir á þrí.hjólinu sínu niðri i garðinum. Eva hló. — Þegið þið, krakkar, sagði hún og leit upp. Hann kyssti hana. — Þú ert meira að seg.ja með sápu- slettur á eyrnasneplinum. — Hvernig er það, crt þú að þvo þfim, eða eru þeir að þvo þér? — Ég hef ekki hugmynd um það, sagði hún hlæjandi. Elskan min, ef ég hefði vitað, að ]jú tækir fyrri lest, hefði ég lagað mig svolítið til. — Þú lítur dásamlega út, sagði hann. Hvernig gengur það annars? — Ágætlega. Hvernig leið þér í London? Gerðist nokkuð skemmtilegt? — Nei, ekkert sérstakt. Einu sinni hefði hann ekki getað skrökvað að Evu. En núna, — hugsa sér, hve það var léttl Ekkert sérstakt! Mið- degisverðurinn með Karen, dansarnir, sem hann dansaði við liana, og svo þessi óvænti koss, — allt var þetta afgreitt með tveimur orðum, tveimur kæruleysislegum orðum! — Ég verð að hátta krakkana, sagði Eva. Fáðu þér drykk á meðan. Ég ska! flýta mér. Hann gekk niður og hugsaði um, hve undarlegt það væri, að hann skyldi ekki þurfa að látast, þó að hann væri heima hjá fjölskyldunni. Þetta voru engin látalæti. Hann elskaði bæði Evu og drengina. Hvernig gat hann verið svona tví- skiptur? Hvernig gat hann á sama tíma verið ástfanginn af Karen? Það hafði byrjað fyrir ári. Róbert var teiknari við verk- smiðju úti á landi, sem hafði skrifstofur sinar og verzlunar- viðskipti inni í London. Hann varð að fara þangað öðru hverju á ýmsa fundi. Á einum slíkum sagði auglýsingastjór- inn, Dave Curtis: — Róbert, ég hef dálítið verkefni handa þér. Það er vikublað að skrifa um setustofur í framtíðinni, og nú hafa þeir beðið um viðtal við hinn fræga teiknara okkar, Róbert Moss, til að heyra álit hans á málinu. Róbert andvarpaði. — Það skaðar þig varla að borða góðan hádegisverð með fallegri stúlku, sagði Dave með vingjarnlegu brosi. Bíddu bara, þar til þú sérð Karen! Rohert skildi hrifningu Daves, þegar hann var setztur á móti Karen á matsölustaðnum. Hún var áberandi falleg, með fagurlega mótað andlit og svipmikil augu. Það var und- arlega auðvelt að tala við hana. Hún var fljót að skilja tæknihlið málsins og spurði greindarlega spurninga. Þegar þau skildu, stakk Róbert upp á þvi, að þau hittust næst, þegar hann kæmi til London. — Það vildi ég gjarnan, sagði hún glaðlega og hreinskiln- islega. Þannig byrjaði það, — vingjarnlega og sakleysislega. En samt hafði hann ekki talað um Karen, þegar hann kom heim. Hann minntist aðeins á það, að hann hefði átt við^ tal við vi.kublað, og þegar greinin birtist nokkrum vilium seinna, sagði Eva aðeins, að þetta væri hræðileg, gömul mynd, sem þeir hefðu grafið upp. Þá var Róbert þegar búinn að hitta Karen nokkrum sinn- um. Þau höfðu etið miðdegisverð samán, farið i leikhús og setið og talað saman á barnum í gistihúsinu hans. Timinn leið, og brátt varð það að vana að hitta Karen, þegar hann kom til London. Stundum var liann að hugsa um, hvers vegna það virtist svo áríðandi fyrir hann að hitta Karen. Hann hafði verið kvæntur í sjö ár og aldrei verið hrifinn af annarri konu en Evu. Það hafði aldrei hvarflað að honum að vera henni ótrúr. Honum datt það ekki heldur i hug þá — ekki enn. Hann reyndi að afsaka sig með því, að Karen fyllti autt sæti í lífi hans, sem hann hefði ekki vitað af áður, að stæði autt. Auðvitað gat hann talað við Evu um flest. Og hann átti vini, sem hann gat skemmt sér með. En . . . Kona eins og Karen, skilningsgóð og greind, gat gefið honum ýmislegt, sem enginn annar gat gert. — Hún örvaði hann og skildi hann á nýjan hátt. Loks varð það óhjákvæmilega. í gærkvöldi hafði vinátta þeirra allt í einu breytzt í annað miklu dásamlegra — og miklu, miklu hættulegra. Hann hafði liringt til Karenar og beðið hana að hitta sig. Hún gerði það, og þegar þau sátu saman á matsölu- staðnum, var Róbert að hugsa um, að hann gæti kannski náð næturlestinni heim. Kannski hittust þau Karen of oft. Hann leit á hana og varð var við, að hún athugaði hann hugsandi. —. Heldurðu, að þetta sé rétt af okkur? Honum fannst hann hafa hugsað þetta sama allan tím- ann, þó að hann hefði ekki orðað það. — Að hittast, áttu við? Hann reyndi jafnvel ekki að látast misskilja hana. Innst inni vissi hann, að hann var að byrja að verða ástfanginn af henni. — Fólk talar svo mikið, — eins og þú veizt. Hún roðn- aði og hélt svo áfram. — Ekki vegna þess, að mér sé ekki sama. Ég þarf ekki að taka tillit til annarra en sjálfrar mín. En þú ... Hún hætti skyndilega. — Heyrðu nú, Karen, sagði hann æstur. — Hættu þessari vitleysu. Tvær fullorðnar, siðaðar manneskjur geta hitzt, án þess að þeim finnist, að þær séu að gera eitthvað rangt. S VIKAN

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.