Vikan - 20.04.1961, Síða 13
VERÐLAUNAKEPPNIN
endar hér — safnið saman miðunum og
sendið til VIKUNNAR pósthólf 149
V E RÐ LAU NI N :
hálfsmánaðar sumarleyfisferð um
byggðir og óbyggðir íslands
Þetta er ver&launaferðin
2. Júlíferð — 14.—31. júlí.
14.
15.
16.
17.
18.
19.
20.
21.
22.
23.
24.
25.
26.
27.
28.
29.
30.
31.
Reykjavík—Fagurhólsmýri (meS flugvél)-
Skaftafell.
Skaftafell—Bæjarstaðarskógur—Skaftafell
Skaftafell—Suðursveit
Suðursveit—Höfn i Hornafirði
Höfn—Djúpivogur—Papey—Berunes
Berunes—Hallormsstaðaskógur
Dvalið i Hallormsstaðaskógi
Hallormsst.—Ásbyrgi—Ðettifoss—Grímsst.
Grímsstaðir—Herðubreiðarlindir
Herðubreiðarlindir—Askja
Dvalið í Öskju
Askja—Mývatn (um Dyngjufjalladal)
Mývatn
Mývatn—Mýri í Bárðardal
Mýri i Bárðardal—Kiðagil—Jökuldalir
J ökuldalir—Eyvindarver—Illugaver
Illugaver—Fiskivötn—Landmannalaugar
Landmannalaugar—Reykjavik.
í þessari ferð mun
vinnandanum gefast
einstakt tækifæri til að
kynnast landinu. Ferð-
in er að verðmæti 5300
krónur. Þar er allt inni-
falið, vinnandinn þarf
aðeins að mæta í Ferða-
skrifstofu ÚLFARS
JACOBSEN á tilsett-
um tíma, en hún sér
um ferðina að öllu
leyti.
Þetta er síðasta blaðið, þar sem þið eruð
beðin að bjálpa Gissuri. Hann ætlar að
taka sig á og hjálpa sér sjálfur. 1 von um,
að þau áform haldist í bili, biður hánn
ykkur að finna einn hlut fyrir sig.
Þannig er mál með vexti, að Gdssur sá
auglýsingu í Vikunni frá Þór Baldurs,
stjörnuspekingi Vikunnar, þess efnis, að
einn lesandi Vikunnar fengi ókeypis ævi-
sjá í hverju blaði. Nú vill Gissur endilega
fá ókeypis ævisjá, þvi að hann hefur lagt
fjármuni sina í fasteignir að undanförnu
og Rasmína hefur haft af honum allt skot-
silfur. Gissur sá, að Þór Baldurs vildi fá
að vita fæðingarstað og fæðingarstund,
svo að ekki skeikaði mörgum mínútum,
og nú hefur hann með ærinni fyrirhöfn
náð sér i þessar upplýsingar, því að hann
var auðvitað löngu búinn að gleyma því.
En þá var Gissur svo óheppinn að týna
þessum upplýsingum einhvers staðar fyrir
framan miðju í þessari Viku. Ef þið leitið
vel og vandlega, stendur þar einhvers
staðar: Gissur er fæddur .... o.s. frv.
Þið eruð vinsamlegast beðin að tilgreina
blaðsíðutalið á getraunaseðlinum hér að
neðan. Safnið öllum seðlunum saman, og
sendið til Vikunnar, pósthólf 149.
GETRAUNASEÐILL NO. 3.
Gissur
fór
Ég
heiti
Heimilisfang:
Sími