Vikan


Vikan - 20.04.1961, Blaðsíða 16

Vikan - 20.04.1961, Blaðsíða 16
Fullkomnar varir eiga það skilið að vera hápunkturinn í galla- lausri málningu. En maður á að mála sig þannig, að það haldist gott í dálítinn tíma. Lag munnsins á að vera eins fegrandi fyrir andlitið og hægt er, en það er það ekki alltaf frá náttúrunnar hendi. Við verðum sjálfar að hjálpa til og hér á eftir fara fáeinar leiðbeiningar, sem styðjast má við, en auðvitað fer þetta líka eftir persónuleika hvers og eins. Það, sem þið þurfið, er gott ljós, sæmilegur varapensill, og spegill, sem stækkar. Byrjið á þvi að bera á undirlag, styðjið olnboganum á borðið og litlafingri á hökuna, svo að höndin sé örugg. Þunnar varir, geta gefið mjög fallegu andliti leiðinlegan svip. Til að laga það setjið þið fyrst undirlag á varirnar, þannig að varaliturinn festist betur og til að koma í veg fyrir óhreinar línur. Síðan dragið þið með pensli línu fyrir utan hinar eðlilegu linur munns- ins, búið til nýja efri vör með íbjúgum línum, en gætið þess að hafa hornin ekki of hvöss, það Þykkar varir, er hægt að gera fallegri með réttri málningu. Til þess að gera minna úr munninum tökum við góðan varablýant og gerum með honum greini- lega línu innan við takmörk efri vararinnar, til að gera minna úr henni. Til að minnka of þykka neðri vör, látum við það neðsta af vörinni vera litlaust, undirlagið mun hylja samskeytin á milli Málið fyrst útlínur efri vararinnar, með jöfnum strikum frá miðju og út til hliðanna. Fyllið siðan út, það sem er fyrir innan strikið og farið síðan eins að með neðri vörina. Púðrið lauslega yfir þetta og setjið síðan á venjulegan varalit, þrýstið vörunum á andlitsþurrku. Hvitur varalitur undir venjulegum varalit gerir litinn Ijósari, en yfir varalit gerir hann hann dekkri. Á kvöldin setjið þið silfurgljáa yfir vara- litinn, eða prófið að setja gylltan varalit yfir skær- rauðan, kóralrauðan eða Ijósrauðan, en munið að bláleitir varalitir eru hættulegir í kvöldljósi. gerir munninn hörkulegan. Dragið svo linu örlítið fyrir neðan neðri vörina frá einu munnvikinu til annars. Notið mjög dökkan lit, sem ekki smitar út frá sér. Notið Ijósari lit á varirnar undir dökka litinn. Feitir varalitir koma i veg fyrir sár og sprungur og það gerir einnig þunnt fitulag undir undirlagið (og mikið af fitu á næutrnar). vararinnar og húðarinnar. Málið ykkur svo inn- an þessara takmarka, púðrið yfir málið ykkur svo aftur. Til að gera enn minna úr neðri vör- inni notið dekkri lit á hana, en efri vörina, litur- inn hefur nefnilega mikið að segja. Varizt að setja fýlulegan stút á munninn, það litur kannskl vel út í speglinum, en allan daginn. . . . Lítill munnur er hörkulegur og passar oft alls ekki inn i andlitið. Þegar þið hefjizt handa um að laga lítinn munn veljið þið dökkrauðan lit til að draga útlínurnar með og notið ljósari lit undir. Stækkið munninn með varablýantinum, en fylgið hinum eðlilegu linum munnsins, þó að þið farið út fyrir. Lengið munninn um leið og þið gerið hann breið- ari, en það verður að gerast varlega. Bezt er að fara yfir allt saman með hörðum varalit, til að hylja takmörkin. Síðast er farið yfir með ljós- um lit, púðrað yfir og aftur sett lag af Ijósa litn- um. Stór munnur getur verið aðlaðandi, en hann má ekki skyggja á hina hluta andlitsins. Þegar honum er breytt er eins og venjulega byrjað á undirlagskremi. Drag- ið nýjar útlinur fyrir innan þær eðlilegu, og látið þær ekki ná út í munnvikin. Byrjið svo að mála ykkur við ytri takmörkin og fyllið upp með ljós- um varalit. Dýfið svo litlum bursta I ljóst „make up“ og þekið það, sem er fyrir utan nýju útlin- urnar. Púðrið dálítið yfir og málið svo varirnar meira. Skærir rauðir litir eru góðir fyrir stóran munn, en ljósrauður og kóralrauður draga of mikla athygli að honum. Niðurvísandi munnvik, eyðileggja auðveldlega fallegan munn. Það er leiðinlegt, því að það er svo auðvelt að laga þetta, þannig að þau visi meira upp á við, þaö er þó alltaf fallegra. Ýkið örlítið amorsbogann á efri vörinni og málið ykkur ekki alveg út í munnvikin. Neðri vörina minnkið þið aðeins og gerið hana skarpari en hún er frá náttúrunnar hendi og hér málið þið alveg út í munnvikin, það lyftir munninum aðeins. Þekið litlu stykkin á efri vörinni, sem ekki voru máluð með ljósu undir- lagi. Eff þessi hangandi tilhneiging munnsins hefur myndað linur í kringum munninn á að „meika" vel yfir þær. Púðrið að lokum yfir allt saman til að jafna þetta. 16 VltCAN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.