Vikan - 20.04.1961, Síða 17
{
Pönnukökur m/ávöxtum.
Deig: 50 gr. smjör, 1 matsk. sykur,
2 egg. Rífið hýði af % sitrónu,
1—■2 tesk. kardemommur,
175 gr. hveiti, % tesk. lyfti-
duft, 2% dl. mjólk.
Fyld. Mandarinur eða ferskjur,
ananas, bananar, likjör,
þe^ttur rjómi.
Smjörið hrært vel með sykrinum.
Rauðunum hrært í einni og einni.
Hveitið sáldrað með lyftidufti og
kardemommum, lirært saman við á-
samt sitrónusafa, hýði og mjólk.
Síðast er stifþeyttum hvitunum
hlandað í.
Bakað í fremur þykkar pönnu-
kökur (það þarf að setja örlitið
smjör fyrir þá fyrstu), sem eru
lagðar saman með ávöxtum og vætt-
ar með líkjör. Flórsykri stráð yfir
efstu pönnukökuna. Bornar fram
með köldum þeyttum rjóma.
Hunangskaka.
2 egg, 50 gr. sykur, 100 gr.
síróp, 1 matsk. súrmjólk, 1 tesk.
natrón, 125 gr hveiti, % tesk.
lyftiduft, 1 tesk. engifer, 1 tesk.
kanill, 1 tesk. kardemommur,
% tesk. salt.
Egg og sykur þeytt mjög vel sam-
an, sírópið velgt og natrónið hrært
út með súrmjólkinni. Hrært saman
við eggin ásamt hveiti, lyftidufti,
kryddi og salii. Bakað i smurðri
smjörpappírsskúffu, sem er jafnstór
plötunni. Þegar kakan er bökuð er
ofnskúffu hvolft yfir hana, kæld og
síðan vafin upp ineð smjörkremi.
Smjörkrem:
100 gr. smjör, 65 gr. flórsykur,
1 eggjarauða, vanilja.
Smjörið hrært lint. Flórsykurinn
sáldraður saman við og hrært ásamt
eggjarauðu og vanilju.
V eiðimannakökur.
3 bollar haframjöl,
250 gr. smjörlíki,
2 tesk. ger,
2 bollar hveiti,
1 bolli sykur,
2—3 matsk. mjóik.
Rabarbara- eða berjamauk.
Deigið er hnoðað á venjulegan
hátt. Helmingurinn hreiddur út á
smurða plötu. Maukið smurt á og
deigi stráð yfir. Kakan bökuð ljós-
brún. Skorin í tigla á plötunni. Látið
kólna, geymd í lokuðum kassa. Bezt
nýbökuð. Þessi uppskrift nægir á
1 % plötu.
Varalitur og spegill
Nýjasta framleiðslan í París er, eins og myndirnar sýna,
varalitur, sem hægt er að spegla sig í líka. Upp úr hulstrinu er
sem sagt hægt að draga lítinn spegil, og er það óneitanlega til
mikils hagræðis og þæginda að þurfa ekki alltaf að ganga
með lítinn spegil á sér. Við vonum að þessi nýjung berist hingað
fljótt og verði ekki rándýr.
k -. ... n ... .
Prjónaskór
Það er mjög þægilegt að eiga eina slika til að smeygja sér i
snemma morguns og síðla kvölds.
Hér kemur uppskriftin.
Efnið, sem til þarf, er um 70 gr af nokkuð þykku ullargarni.
Einnig má vinda saman 2 þræði af fingerðu garni.
Prjónar númer 2Vi eða 3. Nauðsynlegt er að prjóna nokkuð fast.
Mynztur: Hálfklukkuprjón. 1. umf. 1 1 sl. * bregðið bandinu
um prjóninn og takið 1 1 óprjónaða fram af prjóninum um leið,
(þannig að handið og óprjónaða lykkjan liggi saman yfir prjón-
inum og sýnist sem 1 tvöföld lykkja), 1 1 sl. * endurtakið frá
* umferðina á enda. 2. umferð: 1 1 br. Prjónið nú tvöföldu lykkj-
una frá fyrri umferð sl. 1 1 br. * endurtakið frá * til * umferðina
á enda. Endurtakið siðan þessar 2 umf. og myndið þannig
mynztrið.
Fitjið upp 8 1. og prjónið 8 cm garðaprjón (eða alltaf sléttprjón)
bæði á réttu og röngu. Aukið nú út 1 1 í enda hvers prjóns fyrir
innan 2 seinustu lykkjurnar þar til 40 1. eru á prjóninum. Prjónið
þá mynztur ca. 80 prjóna og siðan garðaprjón.
Takið nú úr, þannig að prjóna 2 1 saman fyrir innan 2 seinustu
lykkjurnar á prjóninum i hverri umferð, þar til 8 lykkjur eru
eftir, þá eru þær felldar af 1 einni umferð. Brjótið nú skóiínn
saman, réttu mót réttu, saumið hæl og tá saman með afturisting.
Mátið og athugið hvað henta þykir að sauma tána langt upp.
Snúið skónum við og takið það, sem út stendur af hælnum og
dragið í þráð og saumið inn á sólann, er þetta gert til þieps
að hællinn standi ekki út. Heklið úr garni, sem að lit fer vel
við skóinn og hnýtið slaufu á tána.
Prjónið annan skó eins.
VIKan. 17