Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 20.04.1961, Qupperneq 18

Vikan - 20.04.1961, Qupperneq 18
Helgi jSffimudsson.* Aprílgreinin NIÐURSETNINGUR RÍKISHEIMILINU Aðskilnaður ríkis og kirkju Jer naumast dagskrármál líðandi Jstundar, en eigi að siður gam- lalt deiluefni. Tilgangur þeirrar |i.-jstöfunar átti fyrrum að Iverða sá að hnekkja valdi Ikirkjunnar, sem þótti í senn ráðrik og íhaldssöm. Stjóm máladeilur komu og mjög við |þessa sögu. Hún verður ekki ' rakin hér, enda ástæðulaust, þar eð aðalatriði hennar munu öll- um kunn. En nú eru viðhorfin iharla breytt. 1 dag dettur ýms- jum í hug, að aðskilnaður ríkis |og kirkju myndi auka á ný Jáhrif og virðingu þeirrar stofn- junar, sem var stórveldi í Iand- |;nu um ár og aldir, en hrömaði pg einangraðist og hefur langa jhríð minnt helzt á hjáleigu í írækt. Þess vegna skal hug- j nyndin tekin hér til nokkurr- \r athugunar. Persónulega er ég vinveittur I ikynsamlegum og frjálslyndum l':ristindómi. Ég hlýt ennfrem- ]ur að vera því samþykkur, að jhver maður njóti trúfrelsis, og Jeins þó að um sé að ræða siði fog kenningar, sem mér veiða sennilega aldrei að skapi. En ég er lítið hrifinn af íslenzku jkiösjunni. Hún þyrfti vissu- jlega að endurfæðast, því að trú- arþörf Islendinga er annað og meira en yfirskin. Þeim árangri |mætti kannski ná með aðskiln- aði ríkis og kirkju? Svo mikið er minnsta kosti vist, að kirkj- jan gengur varla í endumýjungu |gamalla lífdaga sinna af til- |viljun. Verðlaus minningartafla. Auðvitað liggur í augum uppi, að vantrúarmenn eigi að vera lausir við kirkjuna að öðm leyti en því, ef þeir kaupa af henni þjónustu eins og skím, fermingu, giftingu og greftmn. En þessu er ekki þannig varið. Kirkjan hérlendis kallast þjóð- kirkja, og allir landsmenn eiga að heita safnaðabörn hennar. Samt hefur mikill meirihluti Islendinga ekki önnur skipti við kirkjuna en þiggja af henni þá þjónustu, sem samfélagið skipar fyrir um eða mælist til af göml- um vana. Kirkjusókn er hér lítil sem engin nema á stórhátíðum og við fermingar og einstöku jarðarfarir. Hins vegar er keppzt við að byggja kirkjur, sér í lagi í höfuðstaðnum, þó að íslendinga vanti tilfinnanlega margs konar annað húsnæði, sem þúsundir geta ekki án ver- jið dag hvem. Kirkjan getur jþannig hæglega orðið sér út um vegíeg salakynni, en þá era líka áhrif hennar talin. Kenning prestanna mótar tæpast hugs- unarhátt eða breytni nokkurs manns I landinu framar. Kirkj- unnar menn þykjast öðm hTom deila innbyrðis um trúarskoð- anir, en almenningur tekur ekki neitt mark á þeim tiiburðum lengur. Fólkið hefur fjarlægzt kirkjuna. Það greiðir að sönnu skatt til hennar af því að toll- heimtumennimir krefjast hans í laganna nafni. Að öðm leyti er flestum samtiðarmönnum sama um kirkjuna. Þeir nenna ekki að vera á móti henni eins og forðum, þegar hún mátti sin einhvers í íhaldsseminni. Nú líta þeir á hana eins og verð- lausa minningartöflu uppi á vegg. Slíkur er þá orðinn hlutur þeirrar þjóðstofnunar, sem ríkið hefur tekið upp á arma sína. Bókfærslulega era nær allir Is- lendingar þjóðkirkjumenn. En þeir ganga framhjá kirkjunum á sunnudögum af því að nær- vera guðs er óhugsandi við helgiathafnimar. Tækni véla- aldarinnar er kennt um þetta eins og margt annað, en sú nið- urstaða er ósköp hæpin. Sökin er kirkjunnar, sem hefur fjar- lægzt allt nema rikisframfærið, misst áhrif sín og fengið í stað- inn mannlaus guðshús og fátæk- legan mála prestunum til handa. LífsmarTc eða banamein. Trúlaus þjóð er eins og rek- ald á ólgandi hafi. Annaðhvort rekja mennirnir ætt sína til guðs eða þeir verða skepnur. Og þeim er lífsnauðsyn að eiga sér helgidóm, þar sem þeir skynji nærvera guðs, hvort sem hugg- un þeirra verður náð eða synd, þegar út kemur. Trúarþörfin er hverri mannssál göfug og þrosk- andi tilfinning eins og fegurðar- skynið. En einstaklingurinn þarfnast í þessu efni fulltingis heildarinnar. Þess vegna á kirkj- an að vera lífræn og starfandi stofnun, svo að hún geti rækt hlutverk sitt. Vissulega skiptir minnstu máli, hvaðan prestarn- ir þiggja laun sín. En tign og mátt þeirra áhrifa, sem hæfa þjóðstofnun, fær kirkjan aldrei í ríkisávísun. Þar verður fólkið til að koma. Kirkjuna á sízt af| öllu að reyna að þjóðnýta. Húr verður að vaxa af sjálfri sér 5 hjálpræði og starfi. Safnaðalífið er dautt innar íslenzku þjóðkirkjunnar. Þa? verður að endurvekja. Fólkic þarf að starfa í kirkjunni, berr hag hennar og heill fyrir brjóst' og gjalda henni skatt af ást or virðingu til þess að hún geti tal- izt raunveraleg þjóðstofnun, þar sem sannan guðdóm sé að finna Kirkjan þarf ekki að óttast deil ur. Henni er þvert á móti nauð syn, að skiptar skoðanir hreins' af og til andrúmsloftið innar veggja hennar, því að slikt ei lífsmark. En afskiptaleysi fólks ins getur orðið banamein henn ar. Hún má ekki treysta á ríkið Kirkjan verður að treysta á sjálfa sig. Þess vegna er varla álitamál að aðskilja ríki og kirkju, ekki til að þrengja kost kirkjunnar í landinu eða láta hana gjalda varhugaverðrar íhaldssemi — heldur til að reyna að bjarga henni. Hún lifir það af, ef drengilega er kvaðzt og skilið, en hún þolir ekki niðurlægingu sína öllu lengur. Vinur, sem tU vamms segir. Ríkið á ekki aðra sök á þess- ari óheillaþróun en þá að hafa tekið við kirkjunni sem niður- setningi á heimili sitt. Það er kirkjunni að kenna, hversu komið er. Og hún á að fara úr vistinni hjá ríkinu í stað þess að láta reka sig. Þjóðstofnun verður að vera svo stolt að una ekki hlutskipti niðursetnings. En fari svo, að breytingin taki enn tíma eins og mig granar, hlýtur kirkjan annars vegar að beita sér fyrir leiðréttingu þess, sem hvimleiðast er í fari hennar, og ríkið hins vegar að setja henni og þjónum hennar skilyrði vegna samfélagsins. Hér vikur sögunni að við- kvæmu efni, en ég hef engar árásir í huga. Hins vegar liggur í augum uppi, að sjónarmiðin í þessu sambandi séu fleiri en margur ætlar í fljótu bragði. Ég er vitaskuld ekki kominn til að fullyrða, að skoðanir mínar hljóti að vera réttar. Ég geri að- eins grein fyrir mínu áliti. Svo geta aðrir rakið sín viðhorf. Og rökræðurnar, sem á eftir koma, eiga að geta farið fram í sæmi- legu bróðerni, þó að mönnum sé það alvara, að þeir hafi á réttu að standa. Kirkjunni er hollt að muna, að sá er vinur, sem til vamms segir. Henni er kannski ekkert verr gert en að samtíð og framtíð uni niðuriæg- ingu hennar. Ósómi prestskosninganna. Prestskosningarnar í íslenzku þjóðkirkjunni eru vægast sagt hneyksli. Presturinn er sem embættismaður sambærilegast- ur lækninum. En islenzka ríkið tæki að sjálfsögðu ekki í mál, að héraðslæknar væra kosnir. Það leyfir ekki einu sinni þegn- unum að velja sér bæjafógeta eða sýslumenn. Rikið telur sig yfirleitt ágætlega fært um að ráðstafa embættum. Helzta undantekningin er prestskosn- ingarnar. Og hingað til hefur kirkjan sætt sig bærilega við ósóma þeirra, þó að hún hafi upp á síðkastið vaknað til ein- hverrar vitundar um sæmd sína og skyldu í þessu efni. Hún virð- ist hafa gleymt því, að hún er þjóðkirkja. Prestskosningar kæmu til greina í sjálfstæðum og fjárráða söfnuðum, en i þjóðkirkju eiga þær engan rétt á sér. Eina lífsmark safnaðanna inn- an íslenzku þjóðkirkjunnar nú á dögum er það, ef fólkið lætur hafa, sig til þess að skipta sér af prestskosningu. Og þá er ekki að þvi að spyrja, að öldumar rísa hátt og brotna langt. Deil- umar snúast í orði kveðnu um persónur eða skoðanir umsækj- endanna, en eru raunverulega af allt öðram og lakari toga spunnar. Stjórnmálaflokkamir skipuleggja iðulega kosninga- baráttu prestanna, og kirkjan tekur á sig þá hryggðarmynd nauðug eða viljug. Prestskosn- ingar era þess vegna persónu- legustu og hatrömmustu deilu- mál Islendinga, ef söfnuðimir gefa frambjóðendum á annað borð gaum fyrr en að kjöri loknu. Þannig byrjar margur presturinn starf sitt með því að kljúfa söfnuðinn. Væri ekki nær að sameina kraftana í stað þess að sundra þeim? Samt er ekkert gert til að koma í veg fyrir ósómann, þó að fátt sé auðveldara. Ríkið nennir þvi ekki, og kirkjan get- ur ekki einu sinni haft skoðun á því, hvernig ráða eigi verka- mennina í vingarð hennar.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.