Vikan


Vikan - 20.04.1961, Blaðsíða 27

Vikan - 20.04.1961, Blaðsíða 27
LÆKNIRINN SEGIR: Framhald af pls. 8. um og venjuleg átta ára stúlka. Menn verða samt að hafa það hug- fast, að gáfnaprófið er að miklu leyti hæfnispróf. Foreldrar Péturs litla fá ef til vill að vita, að hann hafi gáfnavísitöluna 108. En ef foreldrar hans hefðu týnt honum inn í frumskóginn, eins og foreldr- ar Mowglis eða Tarzans, og hann hefði alizt þar upp við annarlegar aðstæður, er hætt við, að gáfnavisi- tala hans yrði varla meiri en 54. En enginn mundi þvertaka fyrir það, að enn mundu búa í honum eigin- leikarnir, sem hann erfði frá for- eldrum sinum, og þá er hægt að þjálfa, þannig, að brátt mundi hann sýna, er hann snýr aftur til sið- menningarinnar, að gáfnavisitala hans stigur dag frá degi. KONAN í KARLMANNA- SPEGLI. Framhald af bls. 12. seidur veikleika sínum gagnvart konunni. Hjá Schopenhauer er þessi geigur vel falinn undir kvennahatri, en kemur þó stundum i Ijós. Honum liggur kalt orð til móður sinnar, og líklega á hún sinn þátt í þeirri beizkju, sem hann ber í garð kvenna. Við mundum segja, að hann hefði skort móðurlega hlýju og ástríki i uppvextinum. Hann segir: „Með þvi að faðir minn var sjúkur og þróttlaus og fjötraður við stól sinn, þá hefði hann verið yfirgefinn með öllu, ef gamli þjónninn hans hefði eklci stundað hann af ást og trú- mennsku. Móðir min hélt veizlur, meðan pabbi tærðist upp í einmana- leik sinum. Hún skemmti sér, meðan hann kvaldist Slíkt er kvennaást.“ HERRA SKÖPUNARVERKSINS. Sjálfsmat konunnar lá um aldir undir þessu fargi. Það endurspegl- ast i þeirri mynd, sem hún gerir sér af karlmanninum. Hún gerði sjónar- mið hans að sínu. Sá skilningur varð henni trúaratriði, að karlmaðurinn stæði miklu nær guði en hún sjálf. Hún fór að líta á sig sem móður syndarinnar. Að sama skapi miklar hún fyrir sér yfirburði karlinanns- ins og skoðar það sem sitt eðlilega keppismark að vera honum undir- gefin og lúta vilja hans. Meðan helztu samskipti manna voru morð og nauðganir auk hinnar hörðu baráttu við náttúruöflin, naut karimaðurinn líkamsburða sinna i sókn og vörn. Þá sýndust yfirburðir hans ótvíræðir. Því tignaði konan hann sem þá hetju, er megnaði að veita henni og börnum hennar vernd og skjól. Hún þurfti aðeins að geðj- ast honum. Ótaldar aldir snerist við- leitni hennar um þetta og mótaði þá manngerð, sem algengust var meðal kvenna fraon á vora daga: mann- gerð þjónustusamrar undirgefni. En nú er atvinnu- og samfélags- þróun tæknialdar að leysa konuna frá þessari nauðungarundirgefni. Um leið breytist sjálfsmat hennar: Hún tekur að skoða sig sem félaga og kcppinaut karlmaunsins á jafn- ræðisgrundvelli. Við þetta verður mörgum órótt og sýnist rökkva í ríki karlunga. í þeirra hópi er stud- iosus severus, sem átti athyglisvert bréf um þetta efni í síðustu grein þáttarins. Kröfur hans um undir- gefni konunnar eru að visu ekki jafnróttækar og hjá Schopenhauer; HÖFUM FYRIRLIGGJANDI NOKKUR STYKKI AF HINUM ÓDYRU JAPÖNSKU KRTO »E PRJÓNAVÉLUM. Þessar vélar eru sérlega fyrirferOalitlar. Prjóna fallegt prjón og mörg mynstur. Hverri vél fylgir ókeypis kennsla og árs ábyrgö. Umboösmenn: G. HELGASON HAFNARSTRÆTI 19. MELSTED H.F. RAUÐRÁRSTÍG 1. I Vi"—lV4." %"—íVi" 1" EINKA UMBOÐ VERKFÆRI Sighvatur Einarsson & Co. j SKIPHOLTI 15. — SÍMAR: 24133 — 24137. É> sammála eru þeir þó um það, að konan eigi að helga sig óskipt hinu hefðgróna húsmóðurstarfi, en þoka að öðru leyti í öllu fyrir forystu karlmannsins. Hér ræður óskhyggj- an þó fullmiklu. Konan hefur verið karlmanninum þægileg þjónusta; á hann að skipta á henni fyrir fram- sækinn keppinaut? Frelsi konunnar til að þroskast skv. eigin hneigð og löngun hlýtur að raska þeim að- stöðumun, sem undirgefni hennar spratt af. í dulvitund karlmannsins leynist ævagömul vanmáttarkennd gagnvart konunni. Eðli hennar er honum ó- skiljanlegt. Hann hrifst af kyntöfr- um hennar, verður henni háður gegn vilja sinum, finnur dularfullt vald hennar yfir sér. Og hún ól afkvæmi. Á frumskeiðum mannkynsþróunar- innar var karlmanninum alls ekki ijóst, hvaða þátt hann átti í getnaði, fram á síðustu tíma hafa fundizt þjóðflokkar, þar sem honum var þetta óljóst með öllu. Hann stóð þvi sleginn felmtrun frammi fyrir þeim hæfileika konunnar að fæða íaf- kvæmi. Þessi geigur við hið dular- fulla eðli hennar kynnti undir kyn- hroka hans. Á vorum dögum er róttæk sam- félagsbylting að jafna muninn á ytri aðstöðu karls og konu og um leið matið á siðferðilegu gildi og menn- ingarhlutverki kynjanna. ^ VtKAN 27

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.