Vikan


Vikan - 21.09.1961, Síða 7

Vikan - 21.09.1961, Síða 7
Smnsngn eftit $imon Slmnr HZKAR Eg skal einhverntíma kenna þér allt nm utanbordshreyíla sagði hann. — Það er með þá eins og konur; það þarf að beita þá í senn blíðu og ruddaskap. brosti hún allt i einu til hans. — Hm ... það skyldi þó ekki vera, aö eggin séu geymd niöri i kjallara? Hann opnaði hurðina að kjallaraganginum. — Langar yður ekki í egg lika? kallaði hún á eftir honum. — Uss ... hvfslaði hann og gaf henni bendingu um að hafa lægra. — Þér vekið alla i husinu. Svo kom hann aftur að vörmu spori með eggjakörfu i hendinni. — Getið þér sneitt lauk? spurði hún. ■— Ætli það ekki. Það getur varla verið svo mikill vandi, svaraði Finnur og leit ekki beinlinis hýrt til hennar. — Þarna 'þá, sagði hún og ýtti nokkrum smálaukum til hans með annarri hendi, um leið og hún rétti honum hnifinn. Andartaki siðar sá Finnur sér nauðugan þann kost að þurrka tárin úr augunum með jakkaerminni. Um leið bölvaði hann i hljóði. — Þurfið þér að nota allan þennan lauk? spurði hann. — Já, og það er sfzt of mikið. Hún setti smjör á pönnuna. — Eln hvað er þetta? spurði hún og hló dátt. — Þér eruð farinn að hágráta. Kveikið yður i sigarettu, og sneiðið svo laukinn undir vatnsbununni. Þá gengur það betur ... Eftir svo sem tiu minútur stóðu diskarnir á eldhússborðinu, en sjálf stóð Júlfa með koliinn inni i isskápnum og gramsaði bar i flöskum. — Takið þér mannlega á móti, sagði hún og rétti tvær ölflöskur aftur fyrir sig. — Það litur út fyrir, að þetta verði veizla, varð Finni að orði, þegar þau voru setzt við borðið. — Mig minnir, að Lilian segði, að þér kynnuð ekki að matreiða. — Það kann ég ekki heldur, svaraði hún. — Það eru bara fáeinir réttir, sem mér finnast Tostætir, og þá kann ég að sjálfsögðu að mat- reiða, að minnsta kosti þegar svo ber undir. — ,Tá, einmitt. — Finnur tók rösklega til matar sins. Skál, mælti Júlía, um leið og hún Tyfti ölflöskunni og drakk af stút. — Hvað heitið þér annars? — Finmir Broe, svaraði hann, og það vor ekki laust við móðgunar- hreim f röddinni. — Þér hafið sennilega gleymt því, að við höfum sézt áður. Jæja, höfum við sézt áður? Ju, gott, ef ekki er. f skemmtigarð- inum fyrir fjórum árum, er ekki svo? Þér voruð i fylgd með þeim Mogens og ... — Onei, ekki var það nú ... —• Hvar var það þá? — í brúðkaupi systur yðar. Ég gerði tilraun til að fá að dansa við yður, en það bar ekki neinn árangur, sagði hann — dáiitið háðslega. — Jæja, svo að þér eruð kunningi mágs mins og systur minnar? — Uétt til getið ... Hann bar ölflöskuna að munni sér. Hún gaf honum hornauga. — Ætlið þér að verða hérna eitthvað? — Já, ef yður reynist það ekki á móti skapi. Framhald á bls. 26. VIXAN 7

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.