Vikan - 21.09.1961, Page 43
viU HÚS
Þér fáið einangrunarkostnaðinn endurgreiddan á fáum ár-
um í spöruðu eldsneyti. Það borgar sig bæði fyrir yður
sjálfa og þjóðfélagið í heild að spara eldsneyti svo sem unnt
er, og þar að auki er hlýtt hús (vel einangrað) mun nota-
legri vistarvera en hálfkalt (illa einangrað).
LæJcjargötu . HafnarfirOi . Sími 50975.
eins og sex þúsund dollurum.
— Er það ekki nokkuð mikið?
— Jú, að vísu, en kaupmáttur
þess, sem eftir er, er svo mikill, að
það gerir ekki svo mikið til.
— Hvað finnst ykkur, borgurum
á Langasandi, um allan þennan fjár-
mokstur Bandaríkjastjórnar til út-
lendra þjóða?
— Ég hef ekki heyrt neinar ó-
ánægjuraddir í sambandi við það
mál. Við vonum, að þetta fé komi
að notum, og við treystum stjórn-
málamönnum okkar fullkomlega.
G'S.
DRAUMAR.
Framhald af bls. 28.
þeirra fann ég traust og umhyggju.
Hvað merkir draumurinn?
Kristin V. E.
Svar til Kristínar V. E.
Draumurinn stendur að miklu
leyti í sambandi við bókina, sem
þú hefur verið að lesa undan-
farið. Það er alls ekki óalgengt
að dreyma um þá hluti sem
manni eru mjög hugleiknir og
sérstaklega ef maður hefur verið
að hugsa um þá áður en maður
fór að sofa. Það kemur oft fyrir
einnig að vandamál, sem maður
hugleiddi rétt fyrir svefn án þess
að fá ráðninguna, liggur auðleyst
fyrir manni þegar maður vaknar
og veit ég um marga sem not-
færa sér þetta. Höfuðtákn
draumsins eru hins vegar flug-
freyjubúningurinn. Það er talið
að ný föt tákni nýja atvinnu eða
nýtt viðfangsefni. Með tilliti til
þess mundi verða álitið, ef þú
hefir komizt í búning þinn að
þú værir á góðri leið með að
verða flugfreyja. Flugfreyjustarf
er ungum stúlkum nútímans, sem
heillandi ævintýri, þar sem það
er ein af fáum leiðum fyrir þær
til að sjá umheiminn og kynnast
honum. En svo virðist sem sá
möguleiki strandi á hæfni þinni
nú í bili, en það liggur í draumn-
um að samt sem áður hafirðu
möguleika til að rétta hlut þinn
og sigra að lokum. Með fyrir-
spurn þinni til lesturs úr skrift-
inni vildi ég benda þér á að
senda þættinum um póstinn rit.
handarsýnishorn þitt, því hann
er í sambandi við sérfræðing á
því sviði.
Hanzkar.
Framhald af bls. 21.
4. Á doppótta hanzkann er búið að
setja belti við úlnliðinn, þó að-
eins á efri hlutann. Sniðugt
væri að nota raunverulega belt-
isspennu og auðvitað í sama lit
og doppurnar.
5. Strandhanzkarnir. Úr þeim
klippið þið þrihyrnda bita ofan
á úlnliðnum. Faldið rifuna, og
saumið röndótta bitann undir.
6. Litlar perlur eru slcrautið á þess-
um finlegu hönzkum, — svart
á hvítu eða hvítt á svörtu. Litið
mynztur með fjórum perlum er
saumað reglulega á yfirborð
hanzkans og einföld röð af perl-
um upp og niður á úlnliðsbrún-
ina.
Blóm á heimilinu:
QRÆNAR JIIRTTR
eftir Paul V. Michelsen.
1 dag ætla ég að kynna ykkur
nokkrar plöntur, sem mér finnst
vera bess virði, að þeim sé meiri
gaumur gefinn en almennt er
gert.
Nefni ég þá fyrst syngonium eða
skýjadís, sem er mjög góð hengi-
planta, ættuð úr hitabeltislöndum
Ameríku. Af henni eru mörg mis-
munandi afbrigði. Syng. vellozian-
um hefur 3—5 flipótt, leðurkennd,
gljáandi blöð á löngum stilkum
Syng. podophyllum og syng. aurit-
um eru báðar fyrirtaks-hengiplönt-
ur, sérstaklega séu þær bundnar
marggreinóttar á bambusgrindur.
Þær eru yfirleitt nægjusamar og
frekar fljótvaxnar, þola dálítinn
skugga.
Codiæum variegatum Kroton
er til hér á landi í 1520 afbrigðum,
sem eru hvert öðru skrautlegra,
mismunandi í lögun og í afar fjöl-
breyttu litaúrvali. Það er vægast
sagt dýrleg sjón að sjá öll þau
litbrigði í gulu, rauðu, brúnu og
öllu þar á milli. Það hefur nú
fengizt nokkur reynsla af þessum
afbrigðum, og er hún mun betri
en búizt var við í upphafi, þar
sem þau eru komin frá Austur-
Indíum. Góður hiti og rakt loft á
sérlega vel við Þau, og er því betra
að stinga pottunum niður í ker
með rökum sandi, helzt dáiítið
grófum.
Sé Kroterh vel hirtur, er hægt að
hafa hann í stofuglugga, en betra
þó fyrir innan gluggann, og verð-
ur litskrúðið þá meira.
Ein af beztu gólfplöntum, græn-
um, sem til landsins hafa flutzt,
er, að mér finnst, philodendron
bipinnatifidum, — mjög lík mons-
teru I útliti, — stór, gljáandi,
græn blöð, mjög innskorin á löng-
um stilk af stuttum stofni, þolir
mjög vel stofuloft og er ekká
kröfuhörð með birtu. Margar teg-
undir eru hér af philodendron
(kærleikstré) og flestar mjög góð-
ar stofujurtir.
VIKAN 43