Vikan


Vikan - 14.06.1962, Síða 18

Vikan - 14.06.1962, Síða 18
Þorgrímur Þórðarson, læknir, fékk orðu frá keisaranum fyrir snilldarlegar læknisaðgerðir. EFTIR TÍU SÓLARHRING A HRAKNINGA UM HÁVETUR Á SÖNDUNUM MILLI HVALSÍKIS OG SKEIÐARÁRÓSA. Jónas Guðmundsson, stýrimaður tók saman. Þó ekki verði hér með tölum sannað, er það án efa mjög oft sem það spyrst þannig fyrst til skips- stranda, að nöturleg ásjóna birtist á glugga; að lamið er þunglega á bæjardyr, eða krafsað er í þekju. Úti fyrir bæjardyrum stendur hálf- nakinn maður þrátt fyrir hryssings- kulda, berfættur og örmagna: Það hefur strandað skip, og orðin bera skelfingu í bæinn. Oft eru það út- lendingar, sem þannig hafa birzt á íslenzkum sveitaheimilum, menn sem engir á bænum skilja, nema neyðina, sem er öllum tungumálum skiljanlegri. Og nú er brugðið skjótt við, þvi það Pætu fleiri verið á leiðinni til byggða, eða villtir ein- hvers staðar á ströndinni: „Guð ræður gisting en grátleg eru feigs manns fótspor 18 VIKAN á framandi storð.“ Svo kvað Matthías, endur fyrir löngu. Allir, sem vettlingi geta valdið fara nú að ieita strandmanna, og sent er á bæi eftir liðsafla og vist- um, konur búast til hjúkrunar, karlar ganga út í sortann til leitar og oft ræður hending ein, hvar leitað er og hvar leita skaþ „þvi svara ekki sjávarslóðir, þvi svara ekki veðrin reið“, eins og í ljóð- inu stendur. Það þarf naumast að draga fleiri strik i þessa mynd, hana þekkja_ svo margir, en minna má á það að' oft hefur ráðið úrslitum, hvernig viðbrögð fólks i námunda við strandstaði hafa verið, hvort nokk- uð hefur bjargazt, hvað fórst. Kal- sárir menn eru bornir i bæinn, búið er uin lik þeirra, sem frusu, og það er gengið á fjörur. Siðan taka við langvinnar sjúkdómslegur, kalsár- in gróa seint, ef læknisráða nýtur ekki, og loks, — oft mánuðum seinna — er strandmaðurinn kvaddur með virktum og söknuði. Engra launa er krafizt, ellegar þakkar. Hér verður á eftir sögð ein saga — ein af fjölda mörgum svipuðum, sem gerzt hafa í íslenzku umhverfi á undangengnum öldum, ef það mætti varpa ljósi á erfiðleikana, sem skipsströndum voru og eru samfara. Sandur. Fáir staðir hafa orðið eins mörg- um skipum að erandi og sandarnir fyrir suðursdrönd íslands. Enda eru þeir oft i háifkæringi nefndir „Kirkjugarður skipanna“, enda er það réttnefni. Allt frá því, að siglingar hófust til íslands, hafa skip farizt á sönd- unum. Landnáma segir frá þvi, að Þórður illugi, sonur Eyvindar eyki- króks, braut skip sitt á Breiðár- sandi og segir Hroilaug hafa gefið honum land milli Jökulsár og Kví- ár. Sjáum við af því, að meira að segja sumir landnemarnir á þess- um slóðum, voru i vissum skiln- ingi skipsbrotsmenn. En síðan Þórður Eyvindsson nam land með svo skringilegum hætti, hefur mikið vatn runnið til sjávar, og allan þann tima hafa brimþung- ir sandarnir reynzt sjómönnum skeinuhættir, búið skipum grand. óhreint er þar víða fyrir landi, sandrif og grynningar, sem ná langt út frá ströndinni. Oft er þó all-

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.