Vikan - 14.06.1962, Page 28
Biðfið um
Kanter’s
— og þér fdið það bezla
Kaníer's
SUNDBOL1R
model 1962
Vnlin efni
Nýjustu snið
FjólbreifttAstA úrvnl
II
4
HrútsmerkiÖ (21. marz—20. apr.): Þetta verður
mjög óvenjuleg vika, einkum hvað öll hjartans
mál snetir. Amor verður mikið á ferðinni, einkum
meðal unga fólksins undir tvítugu. Þér verða á
einhver mistök, líklega á miðvikudag, sem eiga
eftir að draga einhvern dilk á eftir Æér. Þó þarftu ekki i
rauninni að kvíða endalokum þessa máls. Heillat. kvenna 11.
Nciutsmerkiö (21. apr.—21. maí): Þú leggur út í
einhverja tvísýnu i vikunni, og ef þú lætur eitt-
hvað annað glepja þig, meðan á þessu stendur, er
hætt við að illa fari. Eútthvað her á öfund annarra
i þinn garð, en þú getur ekkert gert og skalt held-
ur ekkert við Því gera. Laugardagurinn er dálítið einkenni-
legur dagur, ekki sízt fyrir ungar konur. Heillal. bláleitt.
Tvíburamerkiö (22. maí—21. júní): Þú hefur haft
eitthvað á prjónunum undanfarið, en í siðustu
viku varð eitthvað til þess að fresta þessu um
stundarsakir, en einmitt nú getur hæglega orðið
af þessu, ef þú lætur hendur standa fram úr erm-
um, og það skaltu gera. Þú kynnist persónu í vikunni, sem á
sér dálítið óvenjulega skapgerð. Heillatala 6.
KrabbamerkiÖ (22. júní—23. júlí): Þér verður oft
komið á óvart í vikunni, og það þá yfirleitt þægi-
lega. Þú virðist allt of heimtufrekur og tilætlun-
arsamur gagnvart einum fjölskyldumeðlim, og á
þessi sami það sízt af öllum skilið. Þú mátt ekki
ganga á lagið, þótt hann sé eftirlátur við þig. Líklega skiptir
sunnudagurinn framtið þína miklu.
Ljónsmerkiö (24. júlí—23. ág.): Þetta verður
sannkölluð heillavika. Það er eins og lánið leiki
við þér í einu og öllu, og þá ekki sízt á vinnustað.
Þó verða kvöldin ekki sízt, því að atburðaríkari
viku hefurðu ekki lifað lengi. Nú eru horfur á Því
að eitthvað geti orðið úr þessu, sem misheppnaðist fyrir
nokkrum dögum. Fimmtudagurinn er dálítið óvenjulegur.
Meyjarmerkiö (24. ág.—23. sept.): Nú máttu bú-
ast við því að eitthvað gerist í þessu máli, sem þú
hafðir hálfvegis kviðið fyrir síðustu vikur, en
sannleikurinn er sá, að þú ættir frekar að hlakka
til en kvíða fyrir, því að þessi vika verður í flesta
staði hin ánægjulegasta. Vinur Þinn er I vanda staddur, og
nú ríður á að þú hjálpir honum, þótt það verði tímafrekt.
VoscarmerkiÖ (24. sept.—23. okt.): Líklega verður
Þessi vika í alla staði öðruvisi en þú hefðir á kos-
ið, þótt ekki verði hún á neinn hátt leiðinleg. Þú
færð nýstárlegt verkefni að glíma við á vinnu-
stað, og veldur það þér í fyrstu einhverjum erfið-
ieikum, en þú munt áður en varir komast upp á lagið með
þetta. Líkur á stuttu en skemmtilegu ferðalagi.
Drekamerkiö (24. okt.—22. nóv.): Þetta verður
vika, sem þér mun lengi verða minnisstæð, og
verður það einkum tveggja hluta vegna. Náinn
ættingi þinn veldur þér miklum vonbrigðum, en
i rauninni er honum vorkunn, ef þú lítur betur á
málið. Verkið, sem þú varst byrjaður að vinna í fyrri viku,
fer nú út um þúfur.
Botrmannsmerkiö (23. nóv.—21. des.): Þetta verð-
ur skemmtileg vika i alla staði, bæði fyrir þig og
nánustu kunningja þína, og þá ekki sízt þig, því
að þú verður potturinn og pannan I einhverju,
sem þið aðhafizt. Kona, sem þú þekkir ekki nema
iftillega, kemur nú undarlega mikið við sögu, og þótt þér sé
sízt vel við það nú, verður þú henni þakklátur, þegar fram
liða stundir.
GeitarmerMÖ (22. des.—20. jan.): Þér mun verða
komið Þægilega á óvart um eða eftir helgina, og
verður það til þess að áform þín breytast nokkuð,
og ef eitthvað, þá til batnaðar. Maður, sem lítið
hefur komið við sögu Þfna beinlinis, mun nú um-
gangast þig mikið, og munt Þú geta lært margt og merki-
legt af honum. Heillatala 13.
VatnsberamerkiÖ (21. jan.—19. feb.): Þú skalt
fara varlega með peningana i vikunni, þvi að það
er eins og þú eigir erfitt með að standast ýmsar
freistingar í þeim málum þessa dagana. Tiltrú Þín
á persónu, sem þú þekkir raunar fremur litlð,
vex nú enn í sambandi við smáatvik, líklega um helgina.
FiskamerkiÖ (20. feb.—20. marz): Þetta veröur
vika, sem svipar mjög til siöustu viku. Ef síðasta
vika hefur verið fremur leiðinleg, mátt bú samt
eiga von á atburðaríkari viku. Þú lest eitthvað,
sem verður til þess að Þú færð áhuga á einhverju,
sem mun eiga hug þinn allan næstu daga. Laugardagurinn
er mikill heilladagur, einkum fyrir ungar ógiftar konur.
Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags.
A