Vikan - 26.07.1962, Blaðsíða 12
SVIFFLUG
EF-nni
ER..
ÞRONGT
Kostnaður fyrir kennslu-
stundir:
undir C-próf .... um kr. 2500,00
Leiga fyrir flugu á kl.st um kr. 60,00
Árgjald ............ kr. 200,00
Góð sviffluga um kr. 100—120.000
Magnús Blöndal Jóhanns-
son, segir:
Ég iðka svifflug, ekki aðeins
vepna þess, að það er heillandi og
göfug íþrótt, heldur einnig vegna
þess, að það er þroskandi. Góð
sviffluga er eins og viðkvæmt hljóð-
færi, Jnin þroskar hið fíngerða í
manninum, ekki hið grófa og ljóta.
Þórhallur Filippusson, svif-
flugmaður segir:
Hvers vegna valdi ég svifflug
fremur en aðra iþrótt?
Þegar þessi spurning var lögð
fyrir mig, hrósaði ég happi yfir
því, að ég skyldi ekki iðka ein-
hverja aðra íþrótt en svifflug og
hefði þá átt á hættu að fá gagnstæða
spurningu. í þvi tilfelli hefði ég
sennilega svarað með hinu kunna
rökþrota-svari barnsins — af því
bara.
í svifflugi sameinast allir þeir
kostir, sem aðrar iþróttir hafa upp
á að bjóða, js. e. útivera, hreyfing,
einbeiting, þolinmæði, snerpa,
spenna, iskaidir útreikningar og
fleira, o. fl. En það sem gerir svif-
flugið meira heillandi í mínum
augum en aðrar íþróttir, er glim-
an við náttúruöflin, glíman við hið
þekkta, að maður heldur, en sem
maður kemst þó (ó)þægilega að
raun um, að inann skortir þekk-
ingu á. Jafnframt fyllist maður
fögnuði í livert sinn, sem hækkar í
sarpi reynslunnar.
Hversu má svifflugmaðurinn ekki
njóta tilveru sinnar, þegar hann
svífur hærra og hærra í dúnmjúkri
sæng, bylgju loftsins, vitandi, að
Framhald á bls. 34.
„Svifflug geta allir iðkað“, segir Þórhallur Filippusson, „konur
jafnt sem karlar, allt til elliáranna. . ..“
Áhugamenn dytta að svifflugunum í góða veðrinu undir Vífilsfelli.
é-