Vikan


Vikan - 26.07.1962, Page 20

Vikan - 26.07.1962, Page 20
 . -: .!!Í: ugt samband var að sjálfsögðu liaft við flugsíjórn vallarins á meðan þessu fór fram. Nú virtist allt vera tilbúið til flugtaks, vélamaður og flugmenn kinkuðu kolli hver til ann- ars og flugstjórnin gaf leyfi til að lagt væri af stað. Vélamaðurinn settist fremst á stólbríkina, yppti liraustlega öxlum til að losa jakkann um herðarnar, teygði báðar hendur áfram og greip traustlega um benzingjafir hreyfl- anna fjögurra. Flugmennirnir réttu sig upp í sætinu og gripu um stýrið, sein stóð upp úr gólfinu fyrir framan þá. Vélamaðurinn gaf öllum hreyflum fullt eldsneyti, hemlar voru teknir af og flugvélin lagði af stað eftir hrautinni. Aðstoðarflugmaður fylgdist stöð- ugt með hraðamæli vélarinnar og kallaði hátt og skýrt upp hraðann aneð augnabliks millibili. Þeir höfðu áður reiknað út hver liraðinn þyrfti að vera við flugtak, miðað við þá þyngd sem var í vélinni, vindhraða, hrautarhalla, lofthita o. m. fl. Strax og þeim hraða var náð, fór Kristinn Olsen að rétta sig upp í sætinu með stýrið á milli fóta, — og þegar ég 20 VIKAN leit út um gluggann, sá ég húsþökin í Tjarnargötunni langt fyrir neðan mig. Við vorum koinin á loft. Síðan hófst upplesturinn á ný, og þeir héldu áfram að prófa ýmsa liluti og atlniga, en ég var búinn að missa áhugann I bili. Þeir voru þegar búnir að athuga um 80 atriði þegar ég þakkaði fyrir mig og fór aftur í farþegaklefann. Það er óneitanlega ekki eins flók- ið að keyra strætó, — hugsaði ég. Þar þarf ekki annað en snúa sviss- lyklinum, stiga á startarann, flauta á kerlinguna sem er að flækjast fyr- ir, og leggja svo af stað. En það var ekki að sjá að far- þegarnir hefðu neinar áhyggjur af þvi, sem fram fór frammi i stjórn- klefanum. Þeir voru farnir að kveikja sér 1 sígarettum, og létu fara vel um sig. Það var notalega heitt inni í vélinni og margir voru komn- ir úr jökkunum. Sumir voru að tesa, aðrir röbbuðu saman og enn aðrir grétu hástöfum. Já. Ég sagði það: „Grétu hástöf- um.“ Auðvitað voru það minnstu far- Þórður Úlfarsson flugmaður kveður heima hjá sér, áður en lagt er upp til New York. þegarnir, þvi þeir höfðu ekki haft vit á því að vera að tyggja brjóstsykur á leiðinni upp, og voru nú búnir að fá hellu fyrir eyrun. En það lagaðist fljótlega, eftir að flugfreyjurnar höfðu velgt mjólkursopa á pela fyrir þá. Þá fór hellan frá eyrunum, jiegar þeir fóru að kyngja mjólkinni. Eftir það voru þeir eins og englar álla leiðina til Bandaríkjanna. -----0------- Ég sé enga ástæðu til að lýsa ferðinni nákvæm- lega. Hún gekk eins og til var ætlazt og ekkert mark- vert skeði á leiðinni. Farþegar létu fara eins vel urn sig og hægt var og flugfreyjur gengu á milli með kræsingar. Við lendingu höguðu flugmenn og vélamaður sér á svipaðan hátt og við flugtak, og fóru nú yfir lista með uin 50 atriðum, þar til þeir gátu gengið frá vél- inni við flugskýlið, og hleypt farþegunum út á banda- ríska grund. Ég get ekkert fullyrt um það, hvað flugmenn gera í sínu fríi í erlendri höfn. Sennilega er það eins mis- jafnt eins og það, hve mennirnir eru margir. Sumir fara í bió. leikhús eða til að sjá aðrar skemmtisýn- ingar, aðrir kæra sig kollótta og leggja sig upp i rúm og fara að sofa, lesa eða liorfa á sjónvarp, enn aðrir lyfta sér dálitið upp, fá sér kræsingar að borða á góðu veitingatiúsi, staup af víni eða bjór með, — og sumir fá sér kannski tvö eða brjú staup af vini ein- staka sinnum. Engum heilvita manni dettur í hug að tialda liví fram, að islenzkir karlmenn verði bók- staflega að englum, þótt þeir liafi vængi saumaða í barminn. Karlmenn verða aldrei karlmenni, nema reyna sitt lítið af hverju. En flugmenn eru alla tíma með annan fótinn erlendis og venjast lifinu þar eins og hér heima. Nýjabrumið og tilbreytnin fer fljótt af og hegðun þeirra erlendis fer í fastar skorður. Hjá þeim er allt annað viðhorf en tijá langþyrstum sjó- mönnum, sem koma í höfn einn eða tvo daga í mán- uði eða jafnvel sjaldnar, — eða tijá íslenzkum land- <] Maðurinn-með-pípuna-í-aiul- litinu getur fleira gert en flor/ið flugvél. Dóttir hans fékk að fara með honum til New York, og nú verður pabbi að hnýta slaufu á náttkjólinn. Daginn eftir var hún með merkisspja'.d um hálsinn, sem ó stóð: „Miss Olsen, Room 524, Sheraton Atlantic Hotel, New York“. Gengið frá flugóætluninni [> heim aftur. Krisíinn Olsen og bandarískur starfsmaður Loft- leiða í New York. hihwmhiihi; krabba, sem tvisvar — jirisvar á ævinni getur skotizt út fyrir landsteinana og hagar sér þá eins og kálfur á vordegi. Flugmennirnir, sem mér urðu samferða, gerðu sér örlitinn dagamun þetta eina kvöld, sem við áttum frí í New York, ein- ungis í tilefni þess að ég var þeirra gestur og langaði til að sjá mig uin í borginni. Við fórum Framhald á bls. 39. Kristinn reynir við að borða með [> prjónum. Kínversk veitingakona hjálpar Guðrúnu dóttur hans. Lengst til hægri Ingibjörg Þor- steinsdóttir. <] Yngstu farþegarnir voru raunar tvíburar.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.