Vikan - 26.07.1962, Blaðsíða 36
ÆVINTYRAFERÐ
FERÐAFÉLAGIÐ ÚTSÝN hefur starfað 8 sumur. Það hefur aflað sér
trausts í viðskiptum og almennra vinsælda hinna mörgu, sem tekið hafa þátt
í velheppnuðum og skemmtilegum ferðum félagsins um ýmis lönd Evrópu.
í haust taka nokkrir þátt í ferð með Útsýn í þriðja eða fjórða sinn, og er
það til marks um vinsældir ferðanna og að félaginu hefur tekizt að uppfylla
kröfur farþeganna og standa við kjörorð sitt: — Bezta þjónustan — mest
fyrir ferðapeningana.
Haustferðir Útsýnar eru Spánarferð í scpteinber og h!n glæsilega Aust-
urlandaferð í október. Er það fyrsta hópferð íslendinga til Austurlanda og
lengsta og glæsilegasta ferð Útsýnar til þessa. Ferð þessa býður félagið með
mjög hagstæðum kjörum. Hefur það leigt Viscountvél með reyndasta starfs-
liði Flugfélags íslands til allrar fcrðarinnar. Hefur það í senn sparnað og
margvísleg þægindi í för með sér og tíminn notast betur, þegar ekki þarf
að binda sig við áætlanir ýmissa flugfélaga. Kostar ferðalagið al't með fullu
uppihaldi á beztu gistihúsum eltki nema rúmlega andvirði farseðlanna einna
á slíku ferðalagi einstaklings. Fararstjórar verða tveir, framkvæmdastjóri
Útsýnar og Sigurður A. Magnússon, báðir reyndir ferðamenn og Sigurður
gagnkunnugur Austurlöndum. Auk þess verða innlendir leiðsögumenn til
aðstoðar, þar sem þurfa þykir. — Hér cr tækifæri til að kynnast töfrum
Austurlanda og uppsprettum vestrænnar menningar á eins hagkvæman og
þægilegan hátt og hugazt getur — og snúa heim nokkru fátækari af krónum
en miklu auðugri af þeim fjársjóðum, sem mölur og ryð fær ei grandað.
Dragið ekki að tryggja yður sæti í þessari einstæðu ferð. Aðeins 10 sæti laus
í ferðina hinn 1. júlí. Þau verða væntanlega skipuð, áður en langt líður.
Sökum þess, hve langan tíma tekur að afla vegabréfsáritana, þurfa pantanir
að berast fyrir ágústlok í síðasta lagi.
MEÐ ÚTSÝN
VÍNARBORG — MIKLIGARÐUR — AÞENA — DELFÍ — BEIRUT — DAMASKUS — JERÚSALEM — KAIRÓ — RÓM — LONDON.
Brottför laugardaginn 6. október.
WIEN, du Stadt meiner Traume.
Vín, — borg drauma minna — hefur hljómað um allan heim. Nafn
borgarinnar er órjúfanlega tengt list og glaðværð. Hér sló hjarta Evrópu,
og loftið er þrungið minningum um líf snillinga, sem lifðu hér í sárni fá-
tækt en gáfu heiminum ódauðleg snilldarverk af auðlegð hjarta síns. Hér
mætist gamalt og nýtt. Áletranir á veggjum gamalla húsa minna á, að
hér bjó Beethoven um skeið, þarna kompóneraði Mozart, hér átti Grill-
parzer heima, eða að þarna samdi Schubert nokkur frægustu sönglög sín.
Kaffihúsin og krárnar hafa líka sína sögu að segja og eru snar þáttur
i lifi íbúanna. Kaffið er afbragð, „svart eins og syndin, sætt eins og ástin
og heitt eins og helvíti", er uppskrift Vínarbúans. Franski heimspek-
ingurinn Montesquieu komst svo að orði: „Menn geta dáið í Vín, en þeir
eldast aldrei þar.“ 1 æviminningum sínum telur Nelson lávarður dagana
í Vínarborg hafa verið meðal hinna fegurstu og auðugustu i ævi sinni.
Vínarborg er fyrsti áfangastaðurinn í Austurlandaferð Útsýnar. Gist
verður í einu af beztu gistihúsum borgarinnar þann 6. og 7. okt., borgin
skoðuð, m. a Beethovenhúsið, Stephansdom og Schönbrunn, farið í leik-
hús eða óperu bæði kvöldin, en Vín er höfuðborg leiklistar í Evrópu með
sitt fræga Burgtheater og Stadtoper fremst i flokki.
MIKLIGARÐUR.
Skömmu fyrir hádegi þ. 8. okt. hagræðum við okkur að nýju í þægi-
legum sætum Viscountsins, sem ber okkur austur yfir Balkanskagann til
Miklagarðs, en á leiðinni þangað bera flugfreyjurnar fram ljúffengan
hádegisverð. Á flugvellinum bíður bifreið, sem ekur með farþega og far-
angur þeirra til Hotel Hilton, eins glæsilegasta gistihúss Evrópu. Þar
verður dvalizt þrjá daga í góðu yfirlæti og ekkert til sparað að gera
þessum Væringjum 20. aldarinnar dvölina í Miklagarði sem ánægjuleg-
asta og eftirminnilegasta. Aliir fá hér herbergi með einkabaði og hvers
konar þægindum. Á matseðlunum eru alls kyns kræsingar og vín inni-
falið. Kvöldið fyrir brottför heldur Hilton sérstaka skilnaðarveizlu fyrir
„Væringjana" með skemmtiatriðum, dansi og kampavíni.
Mikligarður er ein fegursta og sögufrægasta borg veraldar og stendur
við hið undurfagra Bosporus-sund, sem skiptir borginni í tvennt og skilur
Evrópu frá Asíu. Borgin var stofnuð árið 657 f. Kr. af griskum landnemum
og hefur gegnt mikilvægu hlutverki í 2600 ár. Upphaflega hét hún Byzans
eftir stofnanda sínum Byzas frá Megara í Grikklandi. Árið 330 eftir Krist
varð hún höfuðborg alls Rómaveldis og var þá nefnd Konstantínópel í höf-
uðið á Konstantín mikla. E'ftir að Rómaveldi liðaðist sundur, var borgin
áfram höfuðborg Austrómverska ríkisins, og þangað lögðu margir Is-
lendingar leið sína, enda var lifvörður keisarans skipaður norrænum
mönnum, Væringjum. Árið 1203 náðu krossfararnir borginni á sitt vald,
og árið 1453 unnu Tyrkir hana og gerðu hana að höfuðborg Ottóman-
heimsveldisins undir nafninu Istanbul.
Mikligarður býður ferðamanninum upp á ótrúlegan sæg merkilegra
hluta. I borginni eru ekki færri en 444 moskur eða bænahús, mörg þeirra
meðal hinna kunnustu og glæsilegustu í viðri veröld. Af þeim má nefna
Eyúp-moskuna frá 1458, Bláu moskuna frá byrjun 17. aldar, Suleyman-
moskuna frá 16. öld, sem allar eru frábær listaverk. Mesta gersemi borg-
36 VIKAN
arinnar er hins vegar Agia Sofia, eitt mesta guðshús, sem reist hefur
verið. Agia Sofia var byggð í núverandi mynd um miðja 6. öld og var
þá kristin kirkja. Síðar var henni breytt í mosku, og síðan 1935 hefur hún
verið safnhús. Þykja fáar byggingar jafnast á við hana að stórfengleik
og stílfegurð.
Meðal hinna fjölmörgu halla í Miklagarði eru frægastar Dolmabache-
höllin frá 1853, sem er ein íburðarmesta byggi'ng heimsins og hefur að
geyma ævintýralega fjársjóði, og Topaku-hallirnar, sem reistar voru frá
1453 fram á síðustu öld í þyrpingu, sem er ótrúlega margbreytileg. 1 Þess-
um höllum er mesta gimsteinasafn veraldar og safn af kínversku postulini,
sem hvergi á sinn líka, auk fjölda annarra dýrgripa og sögulegra minja.
Grand Bazaar er einhver sérkennilegasti og stærsti markaður, sem til
er, heil smáborg undir þaki, og má þar fá næstum allt, sem nöfnum tjáir
að nefna. Bazarinn er frá 16. öld I sinni núverandi mynd og hefur á sér
blæ Þúsund og einnar nætur ekki siður en hallirnar og moskurnar.
Meðal annarra markverðra hluta má nefna Skeiðvöllinn frá 200 e. Kr.
og hina miklu og rammgeru borgarveggi. Siglingin um Bosporus er meðal
þess, sem seint líður mönnum úr minni. í Miklagarði hafa Væringjar
hinir fornu að líkindum litið mestan íburð og auðlegð allra íslendinga.
GRIKKLAND.
Að lokinni ógleymanlegri heimsókn á fornar slóðir Væringja lyftir flug-
vél okkar sér yfir sund og eyjar og lendir hálfri annarri stundu síðar á
flugvellinum við Aþenu. Farþegar taka sér bústað í Hotel Ambassadeurs,
nýtízkulegu og mjög fullkomnu gistihúsi, þar sem þeirra bíða glæsilegar
vistarverur og svefnherbergi öll með einkabaði. Hér verður dvalizt 4
daga í því skyni að kynnast þessari höfuðstöð klassiskrar menningar. Að
vita deili á hugsuðum og skáldum Hellena, s.s. Hómer, Sókratesi, Platon,
Sófóklesi og Euripides og myndhöggvurunum Fidiasi og Praxiteles er snar
þáttur í menntahugsjón okkar, og merkisstaðir Grikklands, s.s. Akropolis,
Delfi og Olympia hafa öldum saman verið langþráð takmark menntaðra
manna um allan heim.
Hér nýtur hópurinn ekki sízt góðs af þekkingu leiðsögumannsins, Sig-
urðar A. Magnússonar rithöfundar, sem dvalizt hefur langdvölum I Grikk-
landi, talar grísku reiprennandl og býr yfir meiri þekkingu á Grikklandi
að fornu og nýju en nokkur annar núlifandi Islendingur.
Apena býr yfir sérstökum Ijóma í augum allra Evrópumanna, þvl þar
stóð vagga vestrænnar menningar og Þar náðu leiklist og myndlist melrl
blóma en nokkurn tíma fyrr eða slðar. 1 byggingalist voru Grikklr líka
óviðjaínanlegir snillingar, og má sjá margar og merkilegar minjar þess I
Aþenu, bæði á Akropolishæðinni með sínum fögru musterum og umhverfls
hana, ekki sizt kringum hið forna markaðstorg, sem nýlega hefur verlð
grafið úr jörð. Parþenon-hofið á Akropolis er meðal furðuverka bygg-
ingarlistarinnar, en auk þess eru fjölmargir aðrir fornir helgidómar I
Aþenu. 1 hlíðum Akropolis er fyrsta leikhús Evrópu, kenint við Dionysos,
þar sem vestræn leiklist varð til. Skammt frá þvi er annað frægt hring-
leikahús, sem enn er notað til hljómleika og leiksýninga.
Andspænis Akrópólis er Aresarhæð, þar sem hinn forni dómstóll sat ð
rðkstólum og þar sem Páll postuli hélt slna frægu ræðu. Umhverfis mark-