Vikan - 16.01.1964, Síða 3
Útgrcfandi Hilmir h.f.
Ritstjóri:
Gísli Sieurðsson (ábm.).
Auglýsingastjóri:
Gunnar Steindórsson.
Blaffamenn:
Guffmundur KarLsson og
Sigurður Hreiðar.
Útlitsteikning:
Snorri Friðriksson.
Ritstjórn og auglýsingar: Skipholt 33.
Stmar: 35320, 35321, 35322, 35323.
Pósthólf 149. Afgreiðsla og dreifing:
Blaðadreifing. Laugavegi 133, sími
36720. Dreifingarstjóri Óskar Karlsson.
Verð í lausasölu kr. 25. Áskriftarverð
er 300 kr. ársþriðjungslega, greiðist
fyrirfram. Prentun Hilmir h.í. Mynda-
mót: Rafgraf h.f.
VIKAN
í NÆSTA BLAÐI
.: e.t? 6 « MW ,*»!--■ 3-- »- - '5L
MUNKUR EÐA ÍSLENDINGUR — HVORT
ER NORMALT. VIKAN hefur komið við 1
klaustrinu í Clervaux og rætt við föður
Krogh um ástæður fyrir munklífi, um hug-
renningasyndir, mannasctningar, og sálar-
frið.
ÉG ENDURTEK: VIÐ SJÁUM STÓRT OG
MIKIÐ ELDGOS ... Annar hluti greina-
flokksins Brcnnur hraun við bláfjöil. Sá
greinaflokkur byrjar I þcssu hlaði, og er
ckki að efa, að margir bíða spenntir eftir
næsta hiuta.
STEF MEÐ TILBRIGÐUM. Mörgum lang-
þreyttum eiginmönnum verður fyrr eða
síðar ljóst, að konurnar þeirra skilja þá
ekki, og freistast þeir gjarnan til þess að
lcita sér stuðnings annars staðar. Skemmti-
leg smásaga, scm fjallar um þetta vandamál.
GRÍSKIR GJALDA EN GÖMUL SVÍN
VALDA. Margir hafa talað um hinar frá-
bæru og tímabæru greinar prófessors Jó-
hanns Hannessonar: Eg em íslenzkur maður,
sem birtist í siðasta blaði fyrra árs, og
Hálaunaunglingar og framleiðsla á óvönd-
uðu fólki, sem birtist í síðasta blaði. Hér
kemur önnur grein, sem fjallar um sama
vandamál.
MORÐ í TUNGLSLJÓSI. Síðari hluti spenn-
andi sögu, sem hófst i þessu blaði. Ung
stúlka vcrður vitni að því, að maður fell-
ur fyrir byssuskoti, og sér ungan mann
halla sér ofan að likinu. Ilún flýr heim á
næsta bæ, og um sama lcyti kemur þang-
að sá, sem yfir likið laut.
OG LOKS PAÐ SEM ALLIR HAFA BEÐIÐ
EFTIR: MODEL 1964. I>að er langt siðan
við fórum að fá fyrirspurnir um það, hve-
nær VIKAN kæmi mcð upplýsingar um ‘64
módel bílanna. Og nú koma þær: 8 AUKA-
SÍDUR INNI í BLAÐINU MEÖ MYNDUM
OG UPPLÝSINGUM UM 94 GERÐIR BÍLA.
I ÞISSARI
. ...»
Brennur hraun við Bláfjöll.
Eldgos í nágrenni Reykjavíkur, nánar tiltekið
í Drottningu undir Eláfjöllum. Jarðskjálfti fyrst, síð-
an tekur hraunið að streyma til norðurs, lokar
veginum og stefnir á Reykjavík. Þetta er fræðilegur
möguleiki og við tökum það fyrir, sem gerast
kynni í Reykjavík, þegar haunið kæmi niður
farveg Elliðaánna, fyllti Gvenndarbrunnana, bryti
niður toppstöðina og tæki hitaveitustokk-
inn með sér. Allt fyllilega mögulegt, en hvernig
erum við undir þetta búin?
Hjalað við fólk um menningu
og brennivín.
Ritstjóri Vikunnar skrifar greinarkorn frá Luxem-
borg, segir frá heimsókn til verkamannsfjölskyidu,
vínmenningu hér og þar, og því að láta sér
verða mikið úr fátæklegum hlunnindum.
íslenzk fegurð
á síðum útlendra tízkublaða.
Þær María Guðmundsdóttir, Guðrún Bjarnadóttir og
Thclma Ingvarsdóttir hafa komið séð og sigr-
að í tízkuheiminum og eru í hópi allra eftirsóttustu
fótómódela. Við sýnum nokkrar myndir, sem
birzt hafa af þeim að undanförnu í ýmsum útlendum
tízkublöðum.
Morð í tunglsljósi.
Hún verður benzínlaus á eyðilegum vegi,
og gengur á fjall til að hyggja að mannabyggð-
um. Hún sér í sjónauka sínum, hvar maður er myrtur
og annar lýtur yfir líkið. Hún forðar sér heim að
bæ hinum megin fjallsins og fær skjól hjá fólki, sem
hefur þungar áhyggjur af frænda sínum, sem er
úti að huga aö veiðiþjófum. — Fyrri hluti spennandi
sögu.
CflDCÍ D A II Okkur þykir ekki ýkja áliðið vetrar á íslandi, en
rUHOIU H ll það er þegar kominn vorhugur í þá úti í París og
tízkuhúsin velta því fyrir sér, hvernig vel klæddar
konur skuli ganga til fara á næsta vori Hér er María Guðmundsdóttir, í tilvon-
andi vordragt úr bleiku ullarefni. Hún er stödd á götu í París. Það er danskur
ljósmyndari, Gunnar Larsen að nafni, sem tekið hefur myndina.
vikan 3. tbi. — g