Vikan - 16.01.1964, Qupperneq 7
ar ég kem heim, er búið að
skemma eldri blöðin með því að
klippa krossgátuna úr.
Þar sem ég lít á VIKUNA sem
langbezta vikuritið hérlendis,
þótti mér eiginlega mikið fyrir
því, að þið skylduð leggja ykk-
ur niður við að birta þessa
„væmnu vellu“ eftir Kristmann
Guðmundsson, sem að mínu viti
hlýtur að flokkast undir „3.
flokk vinnukonurómana", eins
og einn gagnrýnandi komst að
orði hér um árið. Ég vona bara
að hann sé ekki kominn á neinn
samning hjá ykkur að „fram-
leiða“ svo og svo mörg þúsund
orð í hvert blað framvegis?
En það er nú alltaf miklu auð-
veldara að gagnrýna en benda
á ráð til úrbóta, og má vel vera
að einhver lesi Kristmann sér
til ánægju og uppbyggingar.
Með þökk. B. D. •
------ •— Við verðum að ráða
bót á þessu, t.d. með því að
prenta krossgátuna aftan á heil-
síðu auglýsingu. Þökkum annars
góð orð í garð blaðsins. Rétt er
það sem þú bendir á, að auðveld-
ara er að gagnrýna en benda á
ráð til úrbóta. Samt sem áður
tökum við gagnrýni fegins hendi
og reynum að verða við óskum
lesendanna.
Herferðirnar enn ...
Kæri Póstur!
Mikið lifandis skelfing eru
þær hvimleiðar, þessar herferð-
ir löggunnar hérna í Reykjavík.
Ekki svo að skilja, að þær geri
ekki gagn — því að það gera þær
eflaust. Hins vegar einblínir lög-
reglan svo á eitthvert visst um-
ferðarbrot, að hún gleymir gjör-
isamlega að taka eftir annars
konar brotum.
Það hefur einhverntíma áður
verið skrifað um þetta í Póstin-
um, en mér finnst sannarlega
ástæða til að halda þessu lifandi,
því að þetta er til skammar.
Núna, þegar þetta er skrifað,
virðist löggan einblína á þá bíl-
stjóra, sem leyfa sér að aka með
ólöglegum hraða. Þetta er auð-
vitað gott og blessað, en um leið
gleyma þessir karlar að taka eft-
ir öðrum lögbrjótum.
Ég þurfti að aka mikið um
miðbæinn í gær og fór líklega
svona sex sinnum fram hjá ein-
um umferðaljósunum. f öll
þessi skipti var a.m.k einn lög-
regluþjónn við ljósin, og í öll
þessi skipti hlupu vegfarendur
yfir götuna á rauðu Ijósi, og í
öll skiptin glápti lögregluþjónn-
inn eða þjónarnir á þessa af-
glapa, sljóum augum.
Nei, það var nefnilega ekki
fyrr en í næstu viku, að átti að
taka vegfarendur, sem ganga
yfir á rauðu ljósi, í gegn.
Sko.
Kraftamaðurinn
sr. Snorri...
Hr. ritstjóri!
Kærar þakkir vegna greinar-
innar um sr. Snorra á Húsafelli.
Ég safna frásögnum af íslenzkum
kraftamönnum og hef ekki get-
að náð í neitt um sr. Snorra fyrr
en nú. Mig minnir að ég hefi
heyrt sögu af honum, sem ekki
var tilgreind þarna um það að
hann bjargaði húnvetnskum
bónda undan draugi. Er það
rangt? Og mætti ég biðja um
fleiri sambærilegar greinar.
Jón Ó Jón.
--------Það er rétt Jón, að sr.
Snorri bjargaði húnvetnskum
bónda. En hann gat ekki gert það
með öðru móti en því að flytja
bóndann suður í Húsafell undan
draugnum og þar átti hann
heima úr því. Máttur sr. Snorra
var svo mikill þar á staðnum, að
draugurinn megnaði ekki að
gera bóndanum mein.
Fólk af konungakyni. ..
Kæra Vika! .
Það var biturt en ekki
óskemmtilegt háð í greininni um
konunglegan uppruna íslend-
inga og óhæfni þeirra til að
stunda þjónustustörf. Greinin
var skemmtilega skrifuð, en ég
sá ekki neitt höfundarnafn. Er
það leyndarmál, hver skrifaði
hana?
Kjartan Pálsson.
--------Nei, það er ekkert
leyndarmál, Kjartan, raunar áttu
stafir höfundarins að vera und-
ir greininni, en höfðu fallið nið-
ur. Hún er eftir Gísla Sigurðs-
son, ritstjóra Vikunnar. Það má
segja, að við höfum það fyrir
reglu, að höfundar merki grein-
ar sínar og kemur mjög sjaldan
fyrir að út af þeirri reglu sé
brugðið.
HIN NÝTÍZKU LEGA FRAM LEIÐSLA
Á SNYRTIVÖRUM
og hin árangursríkasta fæst meS
því a9 nota lífræn krem, sem lagfæra
galla húðarinnar.
LA CRÉME
Bóo-Catcdyá
OG
BóO'Lacta
Lífga upp og yngja
MeÖ samhliða notkun þeirra:
verður: styrkara, mýkra, yngra,
hörundið: liflegra og bjartara.
Blettir og bólur hverfa
Að lokum: CRÉME BIO-CATALYS og BIO LACTA
hindra eitranir og truflanir, sem fæðan getur valdið.
BIO-LACTA: Nýlega hefur verið hafin framleiðsla á BIO-LACTA
f túbum og á það við allar húðgerðir, hvort heldur er um að
ræða þurra, venjulega, blandaða eða feita húð.