Vikan - 16.01.1964, Blaðsíða 9
ir hægindastólar, eldhúsvaskur,
einhverskonar borðstofuskápur og
stórt fuglabúr. ÞaS var auðvitað
afskaplega þröngt þarna, en hrein-
legt og heimilislegt.
—• StQfan er hérna, sagði frúin
og benti á dyr inn af eldhúsinu.
Við litum þar inn; það var um það
bil tólf fermetra herbergi, sem
sýndist enn minna en það raun-
verulega var sökum mikillar hæðar
undir loft. Stofan var með rósóttu
teppi á miðju gólfi, rósóttu vegg-
fóðri, glerskáp eins og hér voru í
tízku fyrir rúmum tíu árum. A
veggjunum voru fjölskyldumyndir
og nokkrar eftirprentanir af niður-
lenzku bændafólki á ökrum. Svo
voru þar tveir armstólar, blóm og
þar með basta; þá var herbergið
fullt. Mér fannst það að mörgu
leyti minna mig á stofur á íslenzk-
um sveitabæjum.
— Hversu stóra íbúð hafið þið?
spurðum við.
Sjö herbergja íbúð, þar af eru
fjögur svefnherbergi. Við erum stór
fjölskylda, sagði herra Scholtes og
benti á fjögur börn. — Auk þess
eru tvö uppkomin og farin að heim-
an, bætti hann við.
—• Leyfist okkur að spyrja yður,
herra Scholtes: Hvað hafið þér mikl-
ar tekjur á mánuði og við hvað
vinnið þér?
— Það er velkomið að segja ykk-
ur frá því. Ég vinn í stáliðjuveri,
er þar verkstjóri og fæ tólf þúsund
franka á mánuði (ca. 10—11 þús.
ísl. kr.). Það telst fremur gott kaup,
en þess ber að geta, að ég er yfir-
maður.
— Eigið þið húsið?
— Nei, við leigjum og borgum
1500 franka á mánuði í húsaleigu.
Það getur ekki talizt mikið, og við
erum líka skattfrjáls vegna þess, að
við höfum meira en þrjú börn á
framfæri. Svo borgum við 500
franka á mánuði í tryggingar,
sjúkrasamlag og lífeyrissjóð.
— Eigið þið kannski bíl?
— Bíl? nei, við eigum ekki bíl.
Herra Scholtes svaraði þessu eins
og spurt hefði verið um fjarstæðu.
— Það er kannski stutt í vinnu
hjá yður, herra Seholtes, svo þér
þurfið ekki bíl?
•—■ Nei, það er því miður ekki
svo stutt, það eru 26 km., og ég
verð að fara að heiman tveim tím-
um áður en vinna hefst.
—• Það er langur tími. Eru bíl-
ar ef til vill mjög dýrir hér í landi?
— Já, það finnst okkur. Til
dæmis kostar Volkswagen nærri
70 þúsund.
— Ójá, ekki þættu það amaleg
kjör á íslandi, þar sem einn slíkur
bíll kostar nærri tvöfalt meira. En
segið okkur eitt að lokum: Hvað
gerið þið til dæmis á sunnudögum
og aðra daga, þegar þið getið verið
öll saman?
— Við förum út með börnin. Við
fáum okkur göngu einhversstaðar
Framhald á bls. 36.
Herra Scholtes er verkstjórl í stáliðjuveri og hefur sem svarar 10—11 þús. ísi. króna á mánuði. Hér
er Scholtes-fjölskyldan í stofunni heima hjá sér.
Stærsta herbergi hússins var í senn eldhús, borðstofa og einhverslconar
íveruhcrbergi. Hér er frú Scholtes að elda hádcgismatinn.
Frú Scholtes og heimasæturnar
tvær. Fjölskyldan býr niðri í
Petrusse-dalnum, þar sem sagt er,
að töluð sé önnur mállýzka en
ofan við brúnir dalsins.
Fjögur börn þeirra hjóna eru enn
í föðurgarði. Tvö eru gift og flutt
burtu. Meðan Schoitcs hefur fjög-
ur börn á framfæri, er hann skatt-
frjáls.
VIKAN 3. tbl. —