Vikan - 16.01.1964, Side 20
4. Hluti - Eftirf Ratrick Reid
Teikn Baltasar
1 ■'/
Pólverjar veittu okkur af mikl-
um höfðingsskap um jólin. Þeir
höfðu fengið matarböggla að
heiman, en við höfðum ekkert,
fyrri en Rauða kross-bögglarnir
fóru að berast á jóladag. Geðs-
hræringu okkar verður ekki með
orðum lýst. Þetta voru fjölda-
bögglar — það er að segja, þeir
voru ekki stílaðir á neinn sér-
stakan mann. Hinir einstöku
pakkar höfðu heldur ekki úrval
vista inni að halda. í sumum var
niðursoðið kjöt, öðrum te, kakó,
og þar fram eftir götunum. Þeg-
ar frá eru taldir bögglarnir, sem
bárust til Laufen, meðan við vor-
um þar í ágústmánuði, voru
þetta fyrstu matvælabögglarnir,
sem bárust okkur frá Englandi,
og við vorum innilega þakklátir
fyrir þessa gjöf. Þeir gerðu okk-
ur einnig kleift að endurgjalda
Pólverjunum gestrisni þeirra
og örlæti að nokkru leyti, því að
hvort tveggja átti sér engan líka.
Við settum á fót stranga skömmt-
un, þar sem við gáum ekki bú-
izt við að fá sendingar með reglu-
bundnum hætti, og við létum
þessa sendingu, sem við hefðum
getað etið upp á fáeinum dögum,
endast í næstum tvo mánuði. Út-
reikningar okkar í því efni stóð-
ust í alla staði.
Rauða kross-ibögglar bárust
aldrei reglulega til Colditz, svo
að við urðum alltaf að eiga ein-
hverjar varabirgðir. f Englandi
voru bögglar sendir vikulega -—
einn á mann í hvert skipti —- en
í Colditz fékk hver maður venju-
lega böggla í þriðju hverri viku.
Pólverjar höfðu útbúið brúðu-
leikhús fyrir jólin og sýndu þá
Mjallhvít og dvergana sjö. Var
það gert af mikilli list og þótti
hin ágætasta skemmtun. í hlé-
inu fengu menn brauð og öl, sem
Pólverjarnir höfðu lengi safnað
saman af skammti sínum. Ölið
var fangabúðaöl, sem hægt var
að fá keypt hjá Þjóðverjum við
sjaldgæf tækifæri. í upphafi
reyndist ekki sérstaklega erfitt
að komast yfir það í Colditz, en
þegar komið var fram á mitt
2Q — VIKAN 3. tbl.