Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 16.01.1964, Qupperneq 25

Vikan - 16.01.1964, Qupperneq 25
9STB VOL efdr Siisan Marsh yður um það, frú Hamden. Hún er útsmogin tófa og kann að villa á sér heimildir. Hvað vitið þér eiginlega um hana? Getið þér neitað því, að allan tímann, sem hún hefur verið hérna hefur hún .. . Joan þagnaði af ásettu ráði. — En við erum engu nær þó að við ... Meg var sigruð, en hún vildi ekki gefast upp. — Þér hafið borið fram þungar ákærur, en hvaða sannanir hafið þér fyrir þeim? — Mínar eigin sannanir, sagði Ruthland hverfur úr sögunni, skilst honum vafalaust þegar í stað hvar hann á heima, og... Mér datt í hug, hvort þér gætuð ekki talað við hann . . . Ég hef áhyggjur af honum. Clare Ruth- land mundi gera útaf við hann, fyrr eða síðar. Spilla ævi hans og annarra. Hann er ekki þannig gerður, að hann gæti brugðizt öðrum án þess að hafa kvalir af því sjálfur. En þér hljótið hð hafa tekið eftir, að hann hefur breytzt nýlega, frú Hamden? Meg leit niður fyrir sig. flenna. Hefir gaman af að láta karlmennina elta sig á röndum ... Hún leikur sér meir að segja að syni yðar. Hugsið þér yður um augnablik, þá býst ég við, að þér sjáið, að ég hef rétt að mæla. — Þetta er svo hræðilega erf- itt, sagði Meg mæðulega. — Hún hefur verið Faith svo góð. — Það er einn þátturinn í skollaleiknum. Hún er hjúkrun- arkona — það er hennar starf. Og þegar á allt er litið, hefur hún haft ýmiskonar hagnað af segir, en annars trúi ég Mason ekki meir en svo heldur, ef satt skal segja. Meg gat ekki varizt að reka upp óp. — Það er vonandi ekki neitt athugavert viðvíkjandi — pen- ingunum? sagði hún skelkuð. Joan hnykkti höfðinu — það gat sagt svo margt. — Maðurinn yðar mun ekki hafa lagt peninga í fyrirtækið? — Jú, það mun hann hafa gert. — Ég hef auðvitað engan rétt Joan rólega. — Ég veit hvar hún og Simon hafa haft leynifundi sína undanfarnar vikur. Það er svo hægt um vik að ganga út á kvöldin, eftir að aðrir eru hátt- aðir — og svo stendur notalegt sumarhús í landareign Simonar. Þér þurfið ekki annað en spyrja v Simon. Hún mundi eflaust þræta fyrir það, ef hún sæi sér hag í því. En mér skjátlast illa, ef ♦ hann gerði það. — Og að þetta skuli hafa kom- ið fyrir Simon! — Hann er aldrei nema mann- eskja, fremur en aðrir, sagði Joan og þóttist vera að taka svari hans. — Flestir karlmenn eru veikir á svellinu, þegar konur eru annars vegar. En ef Clare — Jú, ég hef tekið eftir því, en ég hélt, að það stafaði af veik- indum Faith. — En þetta var eins, eftir að henni batnaði, sagði Joan og drap í vindlingnum. — Ég elska ekki Simno, frú Hamden. Og þó ég gerði það — leyfist mér þá að spyrja, hvaða hagur mér væri í að segja yður frá þessu? Ég játa hreinskilnislega, að mér þykir vænt um hann — og að ég fyrirlít hana. Það er hún, sem ber ábyrgðina á því, að hann gerist sekur um ljótasta verkn- aðinn, sem hann hefur drýgt á ævi sinni. Ef hún væri ærleg og hreinskilin, ætti ég kannski hæg- ara með að fyrirgefa henni, en það er hún ekki. Hún er bara því að hugsa vel um dóttur yðar. Enn var ofurlítill vonarneisti í Meg. — En hún er að fara héðan — til Farnham aftur. Eftir tvo daga. Ef eitthvað væri milli Simonar og hennar, mundi hún hafa þeg- ið boð okkar um verða hjá okk- ur áfram og fá sér atvinnu hérna í nágrenninu. —■ Það hefði kannske orðið full nærri ykkur, býst ég við. Þá hefðuð þið getað haft gát á þeim að staðaldri. Og hvað það snertir að fara til Farnham, get ég sagt yður, að það dettur henni ekki í hug að gera. Ralph Mason hefur sagt mér sjálfur, að hún eigi að vinna hjá honum í Exet- er. Ekkert reynist satt, sem hún til að gefa neitt í skyn, sagði Joan sakleysislega. — En ég vona aðeins, að grunur minn reynist rangur. -— Maðurinn minn er alls ekki ríkur, sagði Meg áhyggjufull. — Nokkur hundruð pund eru hon- um mikils virði... En það kem- ur nú ekki þessu máli við. — Alveg rétt, frú Hamden, sagði Joan. — Við ætluðum ekki að tala saman um peningamál. Hugsum okkur nú, að Simoni þætti verulega vænt um Clare, og að minn dómur um hana væri alrangur ... Ég er fús til að játa, að ýmislegt getur litið mjög grunsamlega út, án þess að nokk- uð sé við það að athuga. Jæja, Framhald á bls. 45. vikan 3. tbi. —

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.