Vikan


Vikan - 16.01.1964, Síða 28

Vikan - 16.01.1964, Síða 28
KLÁDÍUS DREPUR KÓNGINN Efftir Vilhjálm Sieikspfr Prógramm PERSÓNUR: HAMLET, danmerkurprins. ÖFELÍA, kærasta Hamlets, dóttir Pólóníusar, systir Laertes. KLÁDÍUS, danmerkurkóngur, föSurbróðir Hamlets, eiginmaSur móður Ham- lets. GEIRÞRÚÐUR, danadrottning, ekkja föður Hamlets, eiginkona föðurbróður Hamlets, móðir Hamlets. LAERTES, bróðir Öfelíu, sonur Pólóníusar, vinur Hamlets. PÖLÖNÍUS, faðir Öfelíu, faðir Laertes. HÖRAZ, góður maður. FYRSTA HAUSKÚPA - af manni sem lifað hefur. ÖNNUR HAUSKÚPA - af manni sem dáið hefur. Hermenn, þjónar, njósnarar, leigumorðingjar, draugar, leikarar, sjómenn, mikinn hluta leiksins, en hún er ekki eins sterk í trúnni og Hamlet, því hún gefur dauðann og djöfulinn í öll morð og læti, en lætur sér nægja að drepa sjálfa sig. Það eru fleiri göfugmenni í leiknum. Kládíus, föðurbróðir Hamma, byrjaði á því að drepa bróður sinn, pabba Hamma. Svo stingur hann sér umsvifalaust í bólið hjá mömmu Hamma, sem er hin ánægðasta með skiptin. Hún er einnig ein af þessum göfugu persónum, sem hægt er að nema mikinn lærdóm af. Hún er svo heimsk, að hún veit varla hvað snýr upp eða niður á hlut- unum, né hver er í bólinu hjá henni þá stundina. Þetta kemur henni líka í koll undir lokin, grafarar og svoleiðis pakk. Það er fyrir löngu viðurkennt meðal allra menningarþjóða, að þetta leikrit sé það stórkostlegasta, og göfugasta, sem samið hefur verið til þessa dags, en jafnframt eitt hið erfiðasta í upp- setningu og leik. Sérhverjum leikara mun finnast það hápunktur frægðar sinnar og leiksnilldar, að fá hlutverk í þessu stykki, og þá ekki sízt þeim, sem fer með hlutverk Hamlets. Og það er líka óhætt að segja að fyrir því séu æmar ástæður. Hamlet — aðalpersóna leiksins — er margslungin persóna, góður og göf- ugur á köflum, gáfaður hugsjónamað- ur. Meirihluta leiksins er hann samt kolvitlaus, bæði viljandi og óviljandi, og berst harðri baráttu við sinn innri mann um það, hvort betra sé að drepa kónginn eða sálga sjálfum sér. Hann ákveður fyrst að kála sér, en skiptir svo um skoðun og tekur þá ákvörðun að drepa kónginn í staðinn. En hann er alltaf jafn göfugur í hugsun, og þótt hann drepi Pólóníus fyrst, þá er það alveg óvart, og engum að kenna nema Póla sjálfum. Þegar hann svo loks drepur kónginn, þá er það ekki að yfirlögðu ráði, held- ur í augnabliks bræði — aðal- lega vegna þess að kóngsi hafði þá drepið 1) pabba hans, 2) mömmu hans, 3) kærustuna hans (óbeinlínis), 4) Laertes bróður hennar (óbeinlínis), 5) Pólóníus (óbeinlínis) og 6) hann sjállfan (óbeinlínis). Það þarf því engan að furða, þótt Hamlet hafi orðið vondur. Ófelía hin fagra er líka vitlaus 2g — VIKAN 3. tbL

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.