Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 16.01.1964, Qupperneq 33

Vikan - 16.01.1964, Qupperneq 33
sem hann fann, hrúgaði þeim saman þangað til hann gat ekki borið meira, og hljóp með það aftur niður stigann, móður og másandi. Hann var á leiðinni niður á fjórðu hæð, þegar þriðji kipp- urinn reið á. Hann missti fót- anna í sliganum, og valt niður fimm eða sex tröppur, og lá kylliflatur á stigapallinum með fatahrúguna ofan á sér, þegar allt kyrrðist aftur. Hann þreif fötin saman í ofboði og hent- ist með þau niður og út, hljóp eins og hann ætti lífið að leysa frá húsinu, og stoppaði ekki fyrr en konan kallaði á hann aftur. /V(V(V Styrmi reiknaðist svo til, að fyrsti jarðskjálftakippurinn liefði komið kl. um sex um kvöldið. Siðan höfðu orðið fimm eða sex minni hræringar, engar svo slæmar að skaði yrði meiri en þegar var orðinn. Klukkan var nú orðin rúmlega sjö. Enginn hafði þorað aftur inn í húsið, til að dvelja þar, nema nokkrir einstaklingar, sem stóðu inni i forstofunni niðri, tilbún- ir að hlaupa út við minnstu hræringu. Þeir treystu þvi að þeir yrðu nógu fljótir að hlaupa. Hitt fólkið liafði flest farið eitt- hvað í hurtu, þeir sem áttu bíla höfðu farið í þeim, og tek- ið með sér allskonar fatnað og sitthvað matarkyns, óku svo i örugga fjarlægð frá húsinu og biðu þar frekari tíðinda. Aðrir höfðu farið til vina og kunn- ingja, sem l)juggu i öruggari húsum annarsstaðar i bænum og fengið inni hjá þeim þar til séð yrði hvað verða vildi. Þær fjölskyldur, sem ekki áttu i önnur hús að venda, höfðu safnazt saman í stórum vinnu- skúrum skammt frá húsinu. Þar inni var þó skjól fyrir veðrinu, og einliver hafði hafizt handa um að kveikja upp í stórum olíuofni, sem var þar á miðju gólfi. Það var þröngt inni í skúrnum og erfitt um hreyf- ingar, en samlyndið var gott, og allir reyndu að gera sitt hezta lil að gera dvölina þar sem bærilegasta. Einhvcr hafði haft með sér transistor-útvarpstæki, en engar frétlir af jarðskjálftánum höfðu enjiþá lieyrzt í því, aðeins hljóm- plötur án afláts. Fólkið var farið að róast, því það, sem það ótt- aðist mest — að háhýsið mundi hrynja í jarðskjálftanum — hafði ekki komið fram, og það var smátt og smátt að fá þá trú, að það væri í rauninni al- veg óhætt að fara inn til sín aftur. Styrmir var orðinn órór, því hann vissi, að hans verksvið var annarsstaðar, hann átti að fara um bæinn og leita frétta af þessum atburði, kanna hvaða skaði liefði orðið eða slys, hvað ýmsir fagmenn segðu um þennan atburð, komast að því, hvar upp- tök jarðskjálftans væru, og við hverju væri að búast. En hann átti bágt með að slíta sig frá fjölskyldunni þarna í skúrnum, og skilja þau cftir ein, þótt hann vissi, að nágrannarnir mundu hjálpa þeim eftir megni. Hann var farinn að ympra á þvi við konuna, að eiginlega þyrfti hann að fara niður á blað, en úr þ.vi hafði ekki orðið enn. Skyndilega hætti hljómlistin i útvarpinu, og þulurinn fór að tala: „Útvarp Reykjavik," sagði hann rólega og með festulegum málróm „hér er ein innlend frétt.“ „Mikill jarðskjálftakippur varð i Reykjavik og nágrenni kl. 18.06 í dag, en siðan hafa minni hrær- ingar fundizt nokkrum sinnum, en ekki þó til líka eins snarpar og sú fyrsta var. Var fyrsti kippurinn svo harð- ur, að rúður í flestum húsum hafa brotnað, veggir hafa sprung- ið og jafnvel hrunið á einstaka stað. Vitað er um þrjú hús, sem hafa hrunið niður að mestu, en um manntjón er ekki vitað með vissu ennþá. Fjöldi fólks hefur leitað til Slysavarðstofunnar vegna meiðsla, sem þó eru ílest smá- vægileg. Fréttastofunni hefur ennþá ekki tekizt að liafa tal af nein- um, sem gæti gefið nánari upp- lýsingar um orsakir jarðskjálft- anna, né hvar upptök þeirra eru, — grunur leikur samt á, að þau séu nálægt Reykjavik. Jarðskjálftamælirinn í Reykja- vik fór úr sambandi við fyrsta kippinn, og verður því að hiða fregna utan af landi um upptök jarðskjálftanna. Fólk er alvarlega áminnt um að vera rólegt, og halda sig i námunda við hús sin, ef það álítur óráðlegt að vera inni. Vegna þessa atburðar er venju- legri dagskrá útvarpsins frest- að að sinni, en leiknar verða hljómplötur og fréttir sagðar strax og þær berast.“ Fólkið i skúrnum róaðist tölu- vert við þessar fréttir, það liafði haldið, að skemmdir og slys í hænum hefðu orðið verri en nú kom á daginn, það hætti að óttast um fjölskyldu og vini, sem hjuggu annarsstaðar, og fann öryggi í þvi að lieyra i þulnum, sem skýrði svona ró- lega frá staðreyndunum. Styrmir hóf aftur máls á því við konu sína, að liann þyrfti að fara niður á blað, og þau komu sér saman um að það væri skylda hans, sérstaklega vegna þess, að ekki virtist neitt að ótt- ast í bili. llann kvaddi þvi og liélt af stað gangandi i kuld- anum. llann reyndi nokkrum sinnum að stöðvabifreiðar áleið- inni í bæinn, en enginn þeirra sinnti lionum, svo að liann gekk eða hljóp við fót alla leið. Klukkan var að verða átta, þegar hann gekk inn á skrifstof- una. Þar var allt eins og venju- lega, allt á rúi og stúi, allir svo uppteknir við skriftir eða i símanum, að varla var við nokkurn liægt að mæla. Rit- stjórinn sat á skyrtunni við rit- vélina og skrifaði eins og óður maður, með heyrnartólið af símanum klemmt upp að eyr- anu, sagði öðru hvoru já eða nei, og virtist skrifa niður frétt- ina jafnóðum og hann heyrði hana í símanum. Hann leit upp, þegar Styrmir gekk inn, lirópaði i símann og bað manninn að biða augnablik, og sneri sér að Styrmi: „Hvar i andskotanum liefurðu eiginlega verið maður? Heldurðu að þetta sé einhver leikvöllur fyrir liálfstálpaða lcrakka, eða hvað? llvað hefurðu verið að gera?“ „Nú, þú sendir mig i verzl- unina þarni inni í Háaleiti .. .“ „Þú hefur sko ekki verið þar allan þennan tíma .. jæja, drifðu þig af stað eins og skot, taktu jeppanu hérna úti og farðu eitt- hvað um hæinn og vittu livað er að gerast. Taktu hann Magga ljósmyndara með þér. Taktu myndir af öllu, talaðu við fólk — fáðu viðbrögð almennings, skoðaðu skemmdir, komdu við á Slysavarðstofunni, lögreglu- stöðinni, úthverfum ... alstað- ar. Þú verður að vera húinn að skrifa það klukkan tíu, — og inyndir tilbúnar.“ „Ókev!“ „Ertu klár á þessu...?“ „Já, bless ... “ og Styrmir var rokinn út. Hann fann Magga ljósmyndara í myrkraherberg- inu þar sem hann var að Ijúka við noklcrar myndir, þreif í hann og sagði honum að koma með sér út í livelli. Maggi sóp- aði saman nokkrum filmum, ljósmyndavél og blossaljósi, og hljóp á eftir Styrmi út í jepp- ann, sem stóð fyrir utan húsið. Það var dálítil liálka sumstað- ar á götunum, svo Styrmir ók frekar rólega og leit vel í kring um sig á meðan. Það var mjög fátt fólk í miðbænum og lítil umferð, að undanskyldum fjölda lögregluþjóna. Það var sýnilegt að allt varalið lögreglunnar hafði verið kvatt út, enda ekki að ástæðulausu, þvi margar rúð- ur í verzlunum liöfðu mölbrotn- að i fyrsta jaröskjálftanum, og þótt að nú væri búið að negla fyrir þær allskonar kassafjalir og segldúka og taka úr glugg- unuin allar vörur, þá var til- tölulega greið leið þar inn, þeim sem það vildu liafa. Viðast livar sáust menn samt innanbúðar ennþá, sem liöfðu orðið eftir til að gæta verzlunarinnar, og sérstaldega þar sem um' dýrari vörur var að ræða, eins og hjá skartgripasölum, í ljósmynda- vöruverzlunum o. s. frv. Ekki höfðu bankarnir heldur farið varhluta af rúðubrotum, enda stóðu lögregluþjónar þar dygg- an vörð. Neðarlega í Bankastrætinu hafði strætisvagn neitað að hlýða vagnstjóranum, — eða að vagnstjórinn hafði misst stjórn á sjálfum sér við jarðskjálftann — því vagninn hafði runnið yfir gangstéttina aíð sunnanverðu í brekkunni, yfir hana og oltið á hliðina út á túnblettinn. Þar hafði vagninn verið látinn eiga sig i bili, því engan mann sá Styrmir þar hjá. Sírenuvæl lét óaflátanlega í eyrum þeirra Styrmis og Magn- úss, og lögreglu- sjúkra- og slökkvibifreiðar þp'stust sitt á hvað um göturnar með æðisleg- um hraða, og mátti hafa allan hugann við að átta sig á hvaðan hljóðin komu, og vara sig á bílunum, sem virtu öll umferða- lög að vettugi. Yl’ir liöfninni sáu þeir rauð- an hjarma, og þegar þeir óku þangað til að athuga hverju þetta sætti, sáu þeir gamalt vöruhús i ljósum loga, en slökkviliðið barðist við að slökkva eldinn. Viða voru illa sprungnir vegg- ir á húsum, og einstaka veggur liafði lirunið. Vatn fossaði upp úr Austurstrætinu á einum stað, og olli það flóði á kafla. Þar hafði sprungið vatnsæð í sund- ur og vatnið rann óliindrað út. Fyrir utan Slysavarðstofuna var fjöldi bíla, og fólk stóð þar í biðröðum fyrir utan, og hcið eftir að fá gert að sárum sínum. Flestir liöfðu hlotið höfuð- högg, þegar hlutir féllu ofan á þá, og höfðu sár á liöfði. Aðrir höfðu hönd i fatla og báru sig VIKAN 3. t»L — gg

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.