Vikan


Vikan - 16.01.1964, Side 46

Vikan - 16.01.1964, Side 46
til dóttur sinnar. Faith hafði orðið fyrir mörgu illu um ævina. Hún hafði misst sjcnina, hún hafði barizt við ör- væntingu og beizkju, hún hafði gengið undir uppskurð, sem eig- inlega hafði mistekizt. En aldrei hafði hún upplifað neitt, sem líktist kvölunum, sem nú gagn- tóku hana. Hún reyndi að segja eitthvað, en kom ekki upp nokkru orði. Tungan vildi ekki mynda hljóðin, vöðvar og taug- ar neituðu að hlýða henni. Simon og Clare . . . Simon og Clare . . . Simon langaði ekki til að gift- ast henni... Allt var meðaumk- un af hans hálfu. í svipinn brann hún af hatri til mannsins, sem hún elskaði. —- Hér er engin hætta á ferð- um, mamma, tókst henni loksins að segja, meðan móðir hennar leiddi hana að hægindastól, sem hún hneig niður í. — Mig tekur þetta sárt — afar sárt, muldraði Joan, sem ekki hafði gert ráð fyrir að þetta mundi ske. Henni létti stórum, er Faith sagði með hægð: —- Yður gat ekki dottið í hug, að ég mundi heyra þetta. En dettur yður í hug að ég gæti gifzt Simoni og vitað jafnframt, að hann elskaði... aðra stúlku, og fórnaði hamingju sinni mín vegna? Nú varð Joan hrædd. Ef Falth ætlaði að taka að sér hlutverk göfugmennsku og sjálfsfórnar og gefa Simoni frelsi, voru hennar eigin áform dauðadæmd. Hún sagði með varfæmi: — Nei, ég er viss um, að þér gætuð það ekki. . . En ef þér hins vegar byðuð honum frelsi, hvernig gæti hann þá þegið það boð og verið hamingjusamur á eftir? - Það eina sem ég veit er að ég get ekki trúað neinu mis- jöfnu um Clare. Hún gæti ekki, hreint og beint gæti ekki hagað sér eins og þér segið, að hún geri. Ég þekki hana nefnilega — ég þekki hana. — Þér haldið, að þér þekkið hana, sagði Joan og leit vand- ræðalega til Meg Hamden. Þér verðið að gera það fyrir mig að trúa mér þegar ég segi, að ég hef gert allt, sem ég hef getað, til þess að forðast einmitt þetta. Beizkjan sauð í Faith þessa stundina, beizkja, sem var sprott- in af vonbrigðum og auðmýk- ingu. Öll hennar veröld lá í rúst- um. Móðir hennar hélt vernd- andi örmum um skjálfandi lík- ama hennar og reyndi að hugga dóttur sína, eins og hún væri smábarn. — Þetta fer allt vel, sannaðu til, hvíslaði hún. Loks náði Faith valdi á sér. Hún sneri blindum augunum að Joan og sagði: — Ungfrú Latimer, viljið þér sverja mér, að þér hafið séð Sim- bindindismenn! Ipyggið bilinn hjá það borgar sig! Abyrgðp Tryggingaiélag bindindismanna Laugavegi 133 Símar 17455 — 17947 on og Clare saman, og að þér vitið, að þau hafi hitzt á laun? Ef þér eigið nokkra mannúð til ... og sómatilfinningu, þá segið mér sannleikann. Ekki grun- semdir og ágizkanir ... Það er sannleikurinn, sem ég vil heyra! hrópaði hún með skjálfandi röddu. Sem snöggvast varð Joan hrædd við það, sem hún hafði ráðizt í. En svo tók afbrýðin völdin hjá henni og drap hvern samúðarneista. Hún svaraði dræmt og af yfirlögðu ráði: — Því miður er hér hvorki um grunsemdir eða ágizkanir að ræða. Ég hef aðeins talað um það, sem ég hef séð með mínum eigin augum. Ég hef séð Simon og Clare saman í sumarhúsinu hans. Ég hef séð þau þar í faðm- lögum, sagði hún og bætti við hvíslandi: — Ég hefði aldrei komið hingað annnars. Faith svaraði ekki strax. Hún fann, að hún gat fyrirgefið Clare og Simoni, að þau elskuðust, en ekki, að þau lugu að henni og drógu hana á tálar. — Þökk fyrir, svaraði hún stutt, og nærri því áður en orð- in voru sögð, féll hún í ómegin. Meg og Joan báru hana á milli sín og lögðu hana í sófann. Meg hellti koníaki í glas og hellti ofan í dóttur sína. — Á ég að ná í lækni? spurði Joan. Henni leizt ekki á útlitið á Faith. — Nei, sagði Meg Hamden hvasst. - - Þér hafið gert meira en nóg í dag, finnst mér. Hún horfði ísköldum augum á Joan. — Það kemur stundum fyrir, að betra er að vita ekki neitt, bætti hún við. Faith hreyfði sig, opnaði aug- un og hvíslaði lágt: — Fyrirgefðu mér! Meg huggaði hana eftir mætti og fékk hana til að hátta. Joan beið í stofunni, þangað til Meg kom niður aftur. Henni datt í hug, að það væri of áhættusamt að láta allt skeika að sköpuðu, eins og nú var komið. - Ég vildi óska, að ég vissi hvað ég á að segja, frú Hamden, sagði hún fleðulega. — Ég veit, hvað þér hljótið að hugsa um mig, en mig dreymdi ekki um, að dóttir yðar fengi að vita um þetta. Mér væri óbærilegt, ef þér vilduð ekki skilja afstöðu mína til þessa leiðindamáls. Meg, sem var orðin rólegri, sagði aðeins: — Ég ætla að minnsta kosti að reyna það. — Ég hef verið að brjóta heil- ann um þetta vikum saman, hélt Joan áfram. — Af því að ég gat ekki komizt að niðurstöðu um, hver skylda mín væri. Ég von- aði innilega, að yður og mér tækist að finna lausn á vand- anum, sem gæti hlíft dóttur yðar við óþægindum. Meg gat engu svarað þessu. Hún gerði sér fyllilega ljóst, að Joan hefði vel getað snúið sér beint til Faith. — Ég þarf dálítinn tíma til þess að hugsa betur um þetta, sagði hún lágt. Joan beið augnablik, en svo sagði hún: — Ég þarf að biðja yður bón- ar. — Hvað er það? spurði Meg óþolinmóð. — Ef Simon verður að fá að vita, að ég á sök á þessu, þá langar mig til að fá að segja honum það sjálf. Meg kinkaði kolli, raunaleg á svipinn — hún hafði ekkert við það að athuga. — Nei, ég skal ekki blanda yður í þetta . . . En ég mun spyrja Clare, hvað hún segi við þessum ásökunum. Það er alls ekki víst, að það séuð i þér ein, sem hafið séð hana með Simoni. — Ég vona innilega að engir aðrir hafi séð það. Það eina, sem máli skiptir, er að allt komist í lag aftur milli Faith og Simon- ar. — Og ef hann hefur nú fórnað sér? — Þá gefst mér sú ánægja að hafa hlíft honum við óláni, og hafa stuðlað að því, að hann verði hamingjusamur maður. Ég játa enn, að mér finnst Clare Ruthlnad óþolandi, en viður- kenni líka, að palladómar og grunur geta verið hættuleg. Ég hata ranglætið, frú Hamden! Andrúmsloftið á þessu vina- lega heimili var orðið annað en áður. Það var ömurlegt og kulda- legt. Þegar Clare kom heim, hálf- tíma eftir að Joan var farin, fann hún, að eitthvað hafði kom- ið fyrir. Hún hafði verið bæði hamingjusöm og ófarsæl á þessu heimili. Þar hafði hún upplifað ást sína og Simonar, sem hún átti nú að yfirgefa fyrir fullt og allt. Eina huggun hennar var sú, að Faith höndlaði hamingj- una í staðinn. Hún hafði strax tekið eftir, að ljós var uppi í herbergi Faith, og það þótti henni grunsamlegt. Undariegt ef hún væri farin að hátta svona snemma. Clare flýtti sér inn í dagstof- una, en þar sat Meg og beið — föl og þegjandaleg með hendurn- ar í keltunni. Clare hafði aldrei séð hana iðjulausa fyrr. Það var eitthvað í fasi hennar, eitthvað ákærandi í svipnum, svo að Clare nam staðar og hún fékk ákafan hjartslátt. — Er eitthvað að? hrópaði Clare flemtruð. Meg horfði á hana. — Eruð þið Simon ástfangin hvort af öðru? spurði hún for- málalaust. Clare tók öndina á lofti. Þetta kom svo flatt upp á hana, að hún lamaðist. Blóðið streymdi fram í kinnarnar og loks tókst henni að stama: — Hvað áttu við? —- Var ekki spurningin nógu skýr? spurði Meg. Clare hneig niður á stól. Hug- urinn var á ringulreið. Var mögulegt að Faith hefði upp- götvað leyndarmálið? Clare varð að haga orðum sín- um með varkárni. Hún mátti fyrir hvern mun ekki gera Faith mein. — Jú, spurningin var sannar- lega nógu skýr svaraði hún. — En mig langar til að vita, hvers vegna þú telur þörf á að bera upp jafn... fjarstæðukennda spurningu — hvort við Simon elskuðum hvort annað! — Er það svo mikil fjarstæða? sagði Meg og horfði gaumgæfi- lega á hana, ef ske kynni að hún gæti séð nokkra svipbreytingu á Clare, sem segði annað en orð- in. Clare saup hveljur. — Já, mér finnst það, sagði hún, og nú þóttist hún sjá votta fyrir von í andliti Meg. — Mér finnst líka, að þú ættir að þekkja mig svo vel, að þú vændir mig ekki um að sitja á svikráðum við Faith. — Ég var ekki að tala um það. — En það lá í sjálfri spurn- ingunni og er náskylt henni. Góða Meg, ég held að mig hljóti að taka þetta sárar en þig! Því annars mundirðu ekki... En mér er óskiljanlegt hvernig í þessu — VIKAN 3. tbl.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.