Vikan - 16.01.1964, Blaðsíða 48
Hvar
eru
vatnsföllin?
Flestir þekkja skip Eim-
skipafélagsins, og vita
hvað þau heita, — en það
er ekki víst, að fólk viti
eftir hvaða vatnsföllum
skipin eru skírð.
Hér eru nöfn allra skip-
anna, og nú væri gaman
að spreyta sig á því að
segja til um í hvaða ám,
fossarnir eru. — Svörin
eru á bls. 36.
Gullfcss — Goðafoss —
Lagarfoss — Dettifoss —
Tröllafoss — Tungufoss —
Fjallfoss — Reykjafoss —
Selfoss — Brúarfoss —
Mánafoss -— Bakkafoss.
Fyrir fimmtíu árum síðan
var haldinn fundur í Iðnaðar-
mannahúsinu í Reykjavík, sem
var svo fjölmennur, að nauð-
synlegt varð að fá lánaða Frí-
kirkjuna sem fundarstað, og var
fundurinn svo fluttur þangað. Á
þessum fundi var síðan sam-
þykkt eftirfarandi tillaga:
„Fundurinn ákveður að stofna
hlutafélag, er nefnist Eimskipa-
félag íslands".
Þetta var 17. janúar 1914, og
þar af leiðandi heldur Eim-
skipafélag fslands upp á 50 ára
afmæli sitt þann mánaðardag í
ár.
Fyrsta skip félagsins „Gull-
foss“ kom til Reykjavíkur í
fyrsta sinn þann 16. apríl 1915,
og var að sjálfsögðu tekið á
móti því með mikilli viðhöfn
og fögnuði. Annað skip félagsins
„Goðafoss“ kom til Reykjavíkur
13. júlí árið eftir.
Þáð er varla þörf á því að
rekja sögu félagsins hér, því að
svo kunnugt er það landsmönn-
um og nátengt atvinnuvegum
hér. Nægir a@ geta þess, að í
Viggó Maack,
verkfræðingur.
Valtýr Hákonarson,
skrifstofustjóri. >
48
VIKAN 3. tbl.