Vikan


Vikan - 16.01.1964, Page 49

Vikan - 16.01.1964, Page 49
Skrifslofustúlkur í kaffisal félagsins. Guðni E. Guðnason, aðalbókari, fremst. dag á félagið 12 skip, sem sigla að jafnaði til um 60 hafna í 15 löndum árlega. Þar að auki stendur yfir undirbúningur á smíði tveggja skipa í viðbót, en óráðið hvort þau munu fjölga skipum þess, eða hvort að um endurnýjun verður að ræða. f tilefni af þessu merkisaf- mæli Eimskipafélagsins, fór Yik- an í stutta heimsókn þangað fyr- ir skömmu og ræddi við nokkra forstöðumenn þess. Óttarr Möller, sem tók við for- stjórastöðu félagsins 1. júní 1962, hefur starfað hjá félaginu rúm- lega helming ævidaga þess, en hann réðist til starfa hjá því rétt fyrir 25 ára afmælið í byrj- un árs 1939. Óttarr útskrifaðist úr Verzlunarskólanum árið 1936, en var síðan við nám í Englandi næstu tvö árin. Var hann fyrst forstjóri deildar, sem sá um af- greiðslu erlendra skipa hér heima, en fór síðan til Banda- ríkjanna og starfaði þar í fjögur ár við afgreiðslu skipa á vegum Eimskip. Síðan veitti hann for- stöðu flutningadeild félagsins hér heima þar til hann varð for- stjóri félagsins. Óttarr er ábyrgur gagnvart stjói-n félagsins, en hana skipa níu menn, 6 kjörnir af hluthöf- um á íslandi, 2 af hluthöfum í Vesturheimi og einn skipaður af ríkisstjórninni. Stjórnin kem- ur venjulega saman 1—2 í mán- uði og tekur á þeim fundum Erlmgur Brynjólfsson, fulltrúi í flutningadeild. VIKAN 3. tbl. — 4Q

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.