Vikan


Vikan - 16.01.1964, Síða 51

Vikan - 16.01.1964, Síða 51
HAMLET FRAMHALD AF BLS. 29. herra orðinn kóngur. Þannig var krúnan svikin undan Hamma. í raun réttri ske allir þessir geysispennandi atburðir áður en leikurinn byrjar, en leikhús- gestir eiga að komast að þessu svona smátt og smátt. Leikurinn sjálfur hefst, þegar kóngsi fer að ganga aftur og bið- ur Hamma þess lengstra orða, að drepa nú Kláda, sem er orð- inn kóngur og sefur hjá mömmu hans, vegna þess að í raun réttri þá hafi Kládi drepið hann (pabba Hamma) með því að hella baneitruðu eitri inn í eyr- að á honum, þegar hann svaf svefni réttlátra úti í skógi. Af þessu hafði Hammapabbi feng- ið sitt banamein og látizt. Nú, svo er ekkert með það, að Hammi verður vitlaus og þykist ekki þekkja Óffu, kærustuna sína, en hugsar bara um að drepa sjálfan sig. Kannske fund- izt það öruggara en að drepa kónginn, — og hafa minni eftir- köst. Þá segir hann þessa frægu setningu: „Að vera eða ekki, það er þessi spurning...“ og svo auð- vitað mikið, mikið meira, sem enginn skilur, því það tala allir svo háfleyg orð og göfug, að það er ekki á annarra færi að skilja þau, en þeirra, sem eru álíka göfugir. Nú, eitthvað verður Hammi að gera, svo hann tekur það ráð, að skamma mömmu sína blóð- ugum skömmum fyrir framferð- ið, og segir við hana: „Þér móð- ir, hafið stórum styggt minn föð- ur“. (Kurteis, og þérar, auðvit- að). „Fý, fý, þú svarar furðu létti- lega“, segir hún, og hirðir ekk- ert um almennar kurteisisreglur. Hann geldur henni í sömu mynt og segir hárri röddu: ,,Fý, fý, þú talar furðu syndsamlega“. En þau vita ekki, að Póli, pabbi Óffu, stendur auðvitað á hleri, eins og hans var von og vísa, og raunar hefðu þau átt að sjá það á æfingum. Hammi heyrir í Póla, þar sem hann stendur á bak við tjald, og pot- ar korðanum sínum í áttina til hans, án þess að gá að, hver það væri. Auðvitað verður Póli fyrir oddinum, andast þegar í stað og deyr. Morð númer tvö. En þegar Óffa fréttir af því, að elsku pabbi er dauður, þá verður hún auðvitað vitlaus, blessunin, og mælir af munni fram: „Á börunum þeir hann báru, dim, dim, dó, og lauguðu leiðið tárum, og korríró". Síðan snaraði hún sér út fyrir og skellti sér í ána. Þá þurfti Laertes, bróðir henn- ar, einmitt að koma heim og láta öllum illum látum yfir því að pabbi var dauður og Óffa syst- ir. Kládi kóngur kom sökinni auðvitað allri á Hamma, og Larri sór að hefna þess grimmi- lega. En Hammi vissi ekkert um dauða Óffu, og þegar hann geng- ur út í kirkjugarði, sér hann, að þar er verið að taka gröf. Þar sér hann hauskúpuna frægu af „manni, sem lifað hafði“, og nokkru síðar kemur líkfylgd Óffu. Hammi verður æfur, og sver og sárt við leggur að hann hafi alltaf elskað hana, og þeir fara að rífast, hann og Larri: „Sæki þig f jandinn", segir Larri og gefur skít í alla kurteisi, en Hammi er alltaf kurteisin uppmáluð, og segir salla róleg- ur: „Tak fingur þína fljótt af barka mínum“, þegar Larri ætlar að kyrkja hann á staðnum. Svo eru þeir skildir, og allir fara heim. Svo kemur rúsínan í pulsu- endanum, þegar á að koma Hamma alveg fyrir kattarnef í síðustu senunni. Þá er hann doblaður til að fara að skylm- ast í mesta bróðerni við Larra. Hammi veit ekki 1) að sverð Larra er oddhvasst, 2) það er eitur á sverðsoddinum, til von- ar og vara, og 3) kóngsi hefur blandað eitri í brennivínsglas- ið hans. En svo fer allt í uppnám, og enginn veit upp né niður. Á síð- ustu stundu, þegar Hammi er að vinna Larra í skylmingunum, og allir eru að farast úr spennu, þá særist hann aðeins af sverðs- oddinum. Svo missa báðir sverð- in og rugla þeim, svo að Hammi drepur Larra. Drottningin drekkur brennivínið, sem Hammi átti að fá, og dettur nið- ur steindauð. Larri segir frá öllu saman í andaslitrunum og Hammi verður svo sárreiður, að hann drepur Kláda kóng, sem læst, og hnígur niður steindauð- ur af lífsvöntun. Síðan hrífur eitrið á Hamma, og hann hryn- ur niður eins og skotin rjúpa og kálast í örmum Hórasar hins hugprúða, um leið og hann get- ur aðeins stunið upp þessum stórkostlegu síðustu orðum: „Nú dey ég, Hóras. Þú lifir. Skýr frá mér og minni sök, þeim sem ei þekkja, ef þú elskar mig“. Og Hóri segir karlmannlega og horf- ir raunamæddur til himins: „Ó, Ó, hér brestur hugumstórt hjarta! Góðar nætur kóngsson, og syngi englar sálu þína í ró!“ Sviðið lítur út eins og kastar- hola full af lafskáss. Kóngsi dauður, drottningin dauð, Hammi dauður, Larri dauður, Hóri hágrátandi og allir hinir sitt innan um hvað. Blóðug sverð hingað og þangað, brennivín og eitur, vein og volæði. Húrra! — Tjaldið fellur. G. K. P.s. Þeir Gulli og Rósinkrans drápust líka, en það gleymdist að segja frá því í textanum. Málmgluggar fyrir verzlan ir og skrifstofubyggingar ýmsum litum og formum. Málmgluggar fyrir verk smiöiubyggmgar. gróður hus, bílskúra o fl. r AV/./v/W ■XvMv/.vK ■/.v.v.vw/ illl Nútt útlit Ný tækni /ZZ7 LÆKJARGÖTU, HAFNAIIFIBÐI. — SÍMI 50022 VIKAN 3. tbl. —

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.