Vikan - 03.05.1967, Page 8
BIKG OG GRÖftSDAL
postuh'n — mcitcir- og kaffistell — styttur og vasar — yfir 20 skreyt-
ingar. Allir geta eignast þetta heimsfræga postulín, með söfnunar
aðferðinni, þ.e. að kaupa eitt og eitt stykki í einu.
Þetta er jólaplattinn 1967. — Við kaupum gamla jólaplatta á háu
verði.
RAMMAGERDIN
Hafnarstræti 17. — Hafnarstræti 5.
SJÖNVARPS
T
Ö
L
L
I
N
RR — HVÍLDARSTÓLLINN
er bezti sjónvarpsstóllinn, stillanlegur í þá stöðu sem hverjum
hentar bezt. Fáanlegur í tveimur gerðum.
Ganila Kompaníið hf.
Siðumúla 23, sími 36503.
8 VIKAN 18-tbL
Meö næsturn
alffullkomnar tennur
Þetta er Pascalina Buess, stúdent frá Genf. Og hvað skyldi hún
hafa gert sér til ágætis? Ekkert sem hún getur beinlínis gert að
sjálf. Það vill bara þannig til að hún hefur tennur svo fullkomnar
að ekki verður á neitt betra kosið. Þing svissneskra tannlækna
valdi hana úr fjölda ungra stúlkna, vegna þess að þeir voru að
leita að „Beztu tönnum í Sviss“.
EncSurfakai filug
Lindbergs
Flug Lindbergs yfir Atlantshafið verður aðalsýningaratriði Bandaríkjamanna
á hinni alþjóðlegu flugsýningu, sem haldin verður í París í sumar. Þessi sýning
er haldin annað hvert ár og veitir flugvélaverksmiðjum heimsins tækifæri til að
sýna og selja nýjustu framleiðslu sína. Á síðustu sýningu 1965 komu Rússar
öllum á óvart og vöktu mikla athygli, þegar þeir sýndu stærstu farþegaflugvél
heims, gríðarlegt fjórtán hjóla ferlíki, sem tekur 720 farþega. Bandaríkjamenn
voru mjög óánægðir með sinn hlut síðast og hafa nú ákveðið að standa sig
betur í þetta sinn. Þeir ætla að endurtaka nákvæmlega flug Lindbergs yfir
Atlandshafið. Þegar hefur verið smíðuð nákvæm eftirlíking á hinni frægu
flugvél hans „Spirit of St. Louis“, og verður hún látin leggja af stað frá
Roosevelt Field í New York 20 maí. Þann dag eru liðin fjörutíu ár frá því að
Lindberg vann hið frækilega afrek sitt. Daginn eftir lendir vélin á Le Bourget-
flugvellinum í París, sem er einmitt sýningarsvæði flugsýningarinnar. Charle6
Lindberg veröur 65 ára á þessu ári. Honum hefur verið boðið að taka þátt í
hátíðahöldunum, en hann afþakkaði.