Vikan - 03.05.1967, Síða 46
HEKLUÐ
BRÚÐAR-
KÓRÓNA
llfclfl
E FN I : Hvítt
lielclugarn nr. 20
og heklunál nr. 10.
FitjiÖ upp 21)0 loft-
lykkjur, myndiö úr
þeim liring og lokið
honum meö 1
keöjulykkju.
1. UMF.: Hekl.
fastahekl yfir hóm-
ullarftráö og fariö
í hverja lykkju.
2. UMF.: 1 stuÖ-
ul, 1 loftl., 1 stuö-
ul, 1 loftl. umf. á
enda.
3. UMF.: Eins og
1. umf.
1). UMF.: ■£? 2
loftl. sem mynda 1
st., 1 st., 10 loftl.,
sleppiö 9 1., 3 st.,
10 loftl., sleppiö 9
l., 2 st., 2 loftl.,
endurtakiö 8 sinn-
um og eru þá
munstursamstϚ-
urnar 9.
5. UMF.: 2 loftl.,
1 St., 7 loftl., 3 St.,
2 loftl., 3 st., 7
loftl., 2 st., 2 loftl.,
Framhald á bls. 37.
Sé brúðarkjóllinn hafður með slóða, eins og þessi
á myndinni, þarf litlar brúðarmeyjar til þess að
lyfta slcðanum. Með svona kjól er slörið alitaf
haft sítt.
(rb-b-Crfr-£rCi-trCi-trtrtrirCrb-C!-C!'£rCi-trt;-CrCrCrirb-CrCr-t:’Cr£rbirCrtrtrb-ttil-h'Crh'i{'h'h-tr(i'h-trtrtrCrfr-trt:-CrCrCítr?rbtrtrtrtr£rt:-C:-&'h-Crtr?cii’£rtrirh'h-tr{;íf&ii-trtrCi-Ci’b-titii;'CrtrtrtrCrCrertrti
I-Ivítur brúðarkjóll og slör á aö tálcna hreinleilca. 1 flestum löndum
klœöist brúöur ekki hvítu sé hún fráskilin eöa hafi eignazt börn, held-
ur ekki sé hún barnshafandi svo sjáanlegt sé. Hér á landi viröist fólki
ekki kunnugt um þennan tilgang brúöarklœönuðarins og brúöurin er
í hvítum brúöarkjól hverwig sem á stendur. ÞaÖ má sjálfsagt einu gilda,
því aö ekki er þetta annaö en tákn, sem mennirnir hafa komiö á —
en þá má kannski líka spyrja, til hvers er veriö aö nota einskisverö
tákn ?
☆
BrúöarJcjóll er oftast haföur stuttur fari vígslan fram fyrir hádegi,
(þó má hann vera síöurl, en viö síödegisvígslu má nota hvort sem er
stuttan eöa síöan kjól. Þaö er ekki oröiö algengt aö nota álveg sítt
brúöarslör, netna viö sérstaklega hátíölegt brúölcaup, og þá aldrei nema
viö síöan kjól. Venjulega er sítt slör haft úr tveimur eöa þremur lög-
um af tylli. BrúÖarkjóll er sjaldan haföur fleginn, en séu ermarnar
ekki síöar, veröur aö nota hvíta hanzka viö. Sé kjóllinn fleginn og
ermalaus, vegna þess aö þaö þykir heppilegt til síöari nota, má auövitaö
nota jakka viö hann.
☆
Tiltölulega lítiö er um hjátrú í sambandi viö brúökaup hér á landi.
Þó þytcir þaö oftast ekki viöeigandi aö brúögurninn sjái brúöina fyrr
en viö giftinguna á sjálfan giftingardaginn. Sömuleiöis hefur þaö þótt
óviöeigandi aö hann sjái brúöarkjólinn fyrr en þá. Erfitt hefur nú
samt veriö aö framfylgja þessu á sveitabæjum og er þetta sjálfsagt
korniö erlendis frá.
☆
Konur, sem eru gestir i brúökaupinu, klceöast venjulega elcki hvítu,
til þess aö skyggja hvei'gi á brúöina, og svartur litur er víöa ekki
vel séöur í brúökaupum. T.d. vceri ekki viöeigandi fyrir móöur brúöar-
innar aö kiœöast svörtu.
☆
Venjulega eru brúöargjafirnar sendar heim til brúðarinnar fyrir
brúökaupiö, jafnvel daginn áöur.
☆
Brúöguminn sendir brúöarvöndinn heim til unnustu sinnar i tceka
tíö fyrir vígsluna.
h'b'toii'b'to'to'to'ii'b'b'ti'b'b'Crto'to'to'&'b-irfa'h'Crto'to'h'b'h'k'k'to'&'to'trfc'h'irtrirtrtrtrfc'to'trCrícto'to'b'b'b'&'to'h'Cctiú'tt'trb'to'fc'trtrk'b'ú'ti'ir'Cj'Cí'b'h'k'Crk'b'fa'trto'fa'trfa'íi'k'h'CrCi'b'k'ti'&'b'&'tr'Criitctí
Hollráð
Ef þið ætlið að kaupa bómullarefni,
t.d. lakaléreft, damask og þvílíkt, skul-
uð þið athuga vel hvort mikil gervi-
fylling eða „steining" er í efninu. Sé
svo, verður efnið lint og þunnt, þegar
búið er að þvo það. Takið tvo bletti
nærri hvor öðrum og nuddið þá saman,
kippið svo snöggt í efnið og teygið á
því, en hvítt ryk þyrlast upp sé efnið
46 VIKAN 18- tbl-
með steiningu, annars ekki. Þetta sést
líka auðveldiega með því að fá prufu
af efninu og þvo hana, en hin leiðin
er fljótlegri.
☆
Flest bómullarefni hlaupa við þvott,
varla minna en 1 cm á metra. Rétt
er að gerá ráð fyrir 2 em hlaupi á
metra í öllu rúmfataefni og miða
stærðina við það, þegar það er saumað.
Gisín efni hlaupa að jafnaði meira
en þétt efni.
Hörefni eru sterk og halda sér vel,
en þau þola ekki of heitt vatn, helzt
ekki. heitara en 50—70 gráður. Þau
þola heldur ekki .iafnmikínn núning
og bómullarefni. Þess vegna er blanda
úr hör og bómull í lök, þurrkur og
handklæði ekki sérlega heppileg, því
að þvottaaðferöin er ólík við þessi
tvö efni — bómull þarf og þolir vei
suðu og sjálfvirk þvottaefni og sóda,
en hör ekki, þannig að í reynd verða
þessi efni ónýtari saman en sitt í
hvoru lagi.
Athugíð að áklæðið á bólstruðu hús-
gögnunum henti ykkur. Ullaráklæði
bælist lítið og óhreinkast seint, þar
sem ullin dregur til sín vætu. Hins
vegar getur verið erfitt að hreinsa
það, þegar það er orðið óhreint. Acri-
lan, Courtelle og Dralon eru mjög
sterk, en óhreinkast fljótt, þar sem
fitan gengur ekki inn í þau. Venjulega