Vikan - 19.02.1970, Blaðsíða 9
Fimm fastagestir í kaffinu á Borg-
inni: Sigurður Benediktsson, upp-
boöshaldari, Geir Zoega, forstjóri.
Baldur Andrésson, tónskáld, Árni
Pálsson, verkfræðingur og Gunnar
Guðjónsson, skipamiðlari.
Eigendur Herradeildar PÓ eru tíðir
gestir: Pétur Sigurðsson og Ólafur
Maríusson.
Það eru ekki eingöngu karlmenn sem
fá sér kaffi á Borginni. Á þessari
mynd eru frú Margrét Gíslason, kona
Ólafs Gíslasonar stórkaupmanns, og
ekkja Stefáns Stefánssonar frá Fagra-
skógi.
Vrrfy.ý/.
f'
MA.RGIR KUNNIR Reykvíkingar hafa fyrir sið
að fá sér kaffi á Borginni. Sumir eru þar nán-
ast fastagestir, koma þar saman daglega til að
spjalla saman um daginn og veginn. Á þessari
síðu sjáum við nokkra þeirra, en myndirnar
voru teknar 18. janúar sl., en þá átti Hótel
Borg 40 ára afmæli.
Árið 1930 var mikið merkisár í sögu þjóð-
arinnar eins og kunnugt er. Þúsund ár voru
liðin frá stofnun alþingis, og framundan voru
mikil hátíðahöld og gestakoma til landsins
meiri en nokkru sinni fyrr. En sá var ljóður á
ráði lítillar og fátækrar þjóðar, að hún var
þess vanbúin að taka á móti og hýsa fjölda er-
lendra fyrirmanna, þar sem ekkert hótel hafði
verið byggt. Enginn var sá aðili hér á landi, sem
taldi sig þess umkominn að standa undir slíkri
stórframkvæmd fjárhagslega. Þá varð það til
bjargar sóma lands og þjóðar, að Jóhannes
Jósefsson, glímukappi, sem dvalizt hafði með
framandi þjóðum um árabil, getið sér frægðar
og frama og nokkurs fjár, kom heim og leysti
þenfnan vanda. Vjafalaust má telja byggingu
Hótel Borgar á þeim tíma með mestu fram-
kvæmdum, sem ráðizt hafði verið í af einstak-
lingi hér á landi. Aðalteikningin af húsinu var
gerð af Guðjóni Samúelssyni, húsameistara
ríkisins. Hótel Borg mun hafa kostað með öllu
innbúi 1930 kr. 1,3 milljónir og til að átta sig
á þeirri fjárhæð má geta þess, að þá var verð
á miðdegisverði kr. 2.50. Hótelið var opnað
með dansleik Nýársklúbbsins að kvöldi 18. jan-
úar 1930, en daginn eftir var það opnað al-
menningi, og síðan hefur Hótel Borg verið ná-
tengt félags og menningarlífi Reykjavíkur og
landsins alls. Hinn 1. janúar 1960 seldi Jóhann-
es Jósefsson Hótel Borg, samnefndu hlutafélagi,
sem rekið hefur hótelið síðan.
í
I»að er oft glatt á hjalla og fjörugar umræður yfir kaffibollanum: Talið frá vinstri: Jóhann
Eyjólfsson, Pétur Einarsson, Eiríkur Helgason, Pétur Guðjónsson, Sverrir Bernhöft og Sveinn
Kjarval.
Friðrik Guðjónsson frá Siglufirði ræðir við kunningja sinn.