Vikan - 13.08.1970, Side 26
—
SJÓNVARP
A
BRÚÐKAUPS-
DAGINN
v--------------J
Húsið nr. 21 við Gramercy
Park í New York aðgreindi
sig frá öðrum húsum í hverf-
inu með því að á þaki þess
var ekkert sjónvarpsloftnet.
Hús þetta átti Chris Walters,
sem í þrettán ár hafði búið í
hamingjusömu og samstilltu
hjónabandi með eiginkonu
sinni, Alice. Börn þeirra hjón-
anna voru tvö, þau Okkie og
Dehbve, og þau voru hvorki
verri né betri en börn eru al-
mennt, þegar augunum var
lokað fyrir hinu sameiginlega
áhugamáli þeirra systkinanna,
nefnilega uppeldis og sálar-
fræðilegu uppeldi hjá foreldr-
um.
Þessi áhugi þeirra veitti
þeim vissan stuðning, einkum
frá hendi föðurins, en einn
hlut lét hann þó ekki eftir
þeim eða konu sinni: Ekkert
sjónvarj) í húsið! Bastal
í þrettán ár hafði Chris
tekizt að berjast gegn því, þó
að baráttan hafi oft á tíðum
verið hörð. En einmitt dag-
inn, sem þau héldu upp á
þrettán ára brúðkaupsafmæl-
ið, áfkváðu tengdaforeldrar
hans, hr. og frú fíans, að nú
skyldu einkadóttir þeirra og
barnabörn ekki lengur þurfa
að vera án svo nauðsynlegs
tækis sem sjónvarps.
Síðla dags komu því tveir
menn með sjónvarpstæki til
þeirra, og Alice og börnin
urðu himinlifandi af fögnuði
og voru rétt að koma því fyr-
ir á sinn stað, þegar Chris
kom niður í stofuna.
— Hver fjárinn er þetta!
öskraði hann, um leið og hann
kom auga á hlutinn. —1 Ég
hef margsinnis sagt, að ég vil
ekki sjá þvílíkt afskræmi hér
í húsinu ....
— En allir eiga sjónvarp,
nema við, mótmælti Alice al-
vopna.
— Það skiptir mig engu,
sagði Chris óður. —- Við þurf-
um ekki endilega að sitja sam-
anhnipruð fyrir framan slíkan
fjölskylduguð og hrína eins
og villidýr, ítf því að við
smám saman höfum glatað
þörfinni til að tala. Maður
hefur ekki haft kveikt á svona
26 VIKAN 33- tbl-