Vikan - 03.09.1970, Blaðsíða 14
UMSJÖN: DRÖFN H. FARESTVEIT, HÚSMÆÐRAKENNARI
RÉTTIR IJR 8ÖXIJÐIJ KJÖTI
Kál í formi
Skerið ca. 1 kg. af káli í smábita
og brúnið í 2—3 msk. af smjörIíki.
Setjið það síðan í smurt eldfast fat,
í lögum með 400 gr. af tilbúnu kjöt-
farsi. Hellið dálitlu af kjötsoði yfir
og bakið í ofni við 225° í ca V2
klst. Breiðið álpappír yfir ef það fer
að brúnast um of.
Af hverju geturðu ekki
búið til eins góðar boil-
ur og mamma? Hvað
skyldu margar hús-
mæður hafa fengið slík
orð í eyru, eða ef til vill
væri réttara að spyrja,
hve margar skyldu þær
vera sem ekki hafa
heyrt þau? Hér fara því
á eftir nokkrar upp-
skriftir af kjötbollum,
sem ykkur þætti ef til
vill gaman að reyna
ásamt öðrum réttum úr
söxuðu kjöti.
Kálrúlla
Þessi réttur líkist mjög kálböggl-
um, en er eiginlega útbúinn sem
einn stór böggull. Stöngullinn skor-
inn úr kálhöfði og suðan látin koma
upp á því í léttsöltu vatni. Blöðin
leyst frá hvort öðru eftir þv( sem
þau mýkjast. Smæstu blöðin eru
innst og eru þau söxuð smátt og
þeim síðan blandað saman við kjöt-
deigið. Smyrjið síðan aflangt eldfast
fat og setjið þykkt lag af kálblöðum
þar á. Látið þau leggjast hvert yfir
annað. Kjötdeigið sett á, og kálblöð
sett yfir. Þá er blöðunum sem undir
eru lyft upp og þau fest með tann-
stönglum svo það myndist rúlla.
Bakað síðan í ofni við 225° í ca. 1
klst. og setjið dálítið kjötsoð á ef
það virðist vera farið að þorna á
kjötinu og breiðið álpappír yfir ef
kálið ætlar að fara að brenna Gott
er að bera fyllta tómata með, t.d.
með sveppafyllingu.
14 VIKAN 36- tbi.