Vikan - 03.09.1970, Page 30
HEYRA MÁ
Cþó íægra láti)
OMAR VALDIMARSSON
Jesús Kristur - súperstjarna
Síðar í þessum mánuði kemur á
markaðinn í Bretlandi svokallað ,,tvö-
falt albúm“ (tvær LP-plötur í einu
umslagi), sem hefur að geyma rokk-
óperuna „Jesús Kristur, súperstjarna".
Um síðustu jól kom út í Bretlandi
tveggja laga plata með söngvaranum
Murray Head, og hét aðallagið, sem
vakti mikla athygli og gagnrýni, ein-
mitt „Superstar". Það lag var tekið
úr þessu mikla verki, sem greinir frá
7 síðustu dögunum í lífi Krists.
Krist leikur og syngur Ian Gillan
úr hljómsveitinni Deep Purple; Murr-
ay Head er Júdas Ískaríot; Mike D‘
Abo, fyrrverandi söngvari Manfreds
Mann er Heródes; Victor Brox, sem
áður var með Aynsley Dunbar er
Kaífas; Brian Keith, fyrrverandi
söngvari Plastic Penny, er Annas;
Símon vandlætari er leikinn af
Johnny Gustafsson, sem einu sinni
var með Merseybeats, og Æðstiprest-
urinn er leikinn af Paul Ravel.
Eins og sjá má, er fremsta víglínan
hin glæsilegasta — en mikið þykir
okkur bera á mönnum sem ekki hef-
ur heyrzt frá lengi. Það þarf þó ekki
að vera til merkis um að þeir séu
afdankaðir, heldur hafa þeir verið að
sinna sínum eigin hugðarefnum meira
en áður fyrr, og er ekki hægt að segja
annað en að árangurinn sé (vonandi)
góður.
Og nú höfum við heyrt á skotspón-
um að í undirbúningi sé íslenzk út-
gáfa af verki eitthvað í stíl við það
sem um var rætt. Hljómplötuútgef-
andinn vildi sem minnst um málið
segja þegar við ræddum við hann, en
gaf þó upp að textinn yrði tekinn
beint úr Biblíunni og að tónverkið
sjálft yrði samið af íslenzkum hljóð-
færaleikurum, sem einnig myndu sjá
um hljóðfæraleik, og yrðu það ein-
faldlega færustu menn, hver á sinu
sviði. — Ekkert er vitað um hvenær
(eða hvort) platan, sem væntanlega
verður LP, kemur út.
Pósthólfið
Kæri þáttur:
Ég þakka þér kærlega fyrir margt
skemmtilegt sem þú hefur haft. Ég
vona að þetta bréf frá mér fari ekki
beint í ruslakörfuna, því mig langaði
að spyrja nokkurra spurninga.
1. Af hverju talarðu aldrei um
Mods?
2. Og svona sjaldan um Roof
Tops?
3. Hvenær er Gunnar í Mods
fæddur?
4. Hvar á hann (Gunnar) heima?
Ein sem gæti dáið fyrir hann.
Fyrst af öllu vil ég blðja þig af-
sökunar á hversu lengi ég hef dreg-
ið að svara þér, en það hefur hrein-
lega ekki verið pláss fyrir bréf und-
anfarið. Astæðan fyrir því að ég hef
litið minnst á Mods er sú, að það er
ætlun mín að gera því markverðast
hverju sinni einhver skil, og þar hafa
Mods ekki fallið inn í. Annars eru
Mods hættir, og eins Arfi, sem fylgdi
í kiölfar þeirrar hljómsveitar. Nýja
hljómsveitin, sem fyrst kom fram á
hljómleikunum um daginn (og heit-
ir sennilega „Fí fí og fó fó") er aftur
á móti skipuð þeim Gunnari, Olafi
Sigurðssyni, Páli Valgeirssyni, Kára
Jónssyni og Hlyn ég-veit-ekki-hvers-
syni.
Gunnar á heima á Skúlagötu 61
og er fæddur 17. júlí, 1953.
Um Roof Tops er það að segja að
ég var bara ekki kominn að þeim,
en það verður fljótlega, því þeir
eiga það sannarlega skilið; persónu-
lega finnst mér þeir aldrei hafa ver-
ið betri/
Guðmundur Haukur, söngvari Roof
Tops nýtur æ meirl hylli.
Sjötta plata Sverris
Það hefur löngum þótt undrunar-
efni meðal jafnaldra Sverris hvers
vegna hann sé að syngja þá tónlist
sem hann gerir, og menn hafa látið
sér þá skýringu nægja að hann sé
eitthvað óvenjulegur. Kunnugir segja
okkur hinsvegar að hann sé mesti
sómapiltur, mjög venjulegur í alla
staði — en hann hafi gaman af því
að syngja og spila gömlu dansana,
en hann syngur annan tenór í Kefla-
hljómsveit föður síns, sem hefur gef-
ið út allar plöturnar sjálfur.
☆
Heintje hefur leikið í þremur kvik-
myndum, hefur fengið 27 gullplötur
og eina platinum-plötu — fyrir LP-
plötu sem seldist í tvcimur milljónum
eintaka á cinum og hálfum mánuði.
Þá er því einnig haldið fram að hann
sé margmilljóneri, og þýðir víst lítið
að þræta fyrir það.
Hann er Iítt þekktur, nema um
Mið- og Suður-Evrópu, en nú er stefnt
að því að gera hann að alþjóðlegri
stjörnu, og auðvitað er byrjað í Bret-
landi. Er meiningin að gera Heintje
að draumaprinsi húsmæðranna.
Það er í rauninni ckki réttiátt að
bera hann saman vlð Robertino, þvi
söngstíll þeirra cr mjög ólíkur. Hcin-
tje hefur ckki eins barnalcga rödd og
Robbi hafði á sínum tíma, og heldur
sig við öðruvísi músík — meira popp-
að. Eftir því sem kunnugir scgja hef-
ur frægðin og velgcngnin lítil áhrif
haft á kauða og er hann sagður hafa
mun meiri áhuga á að tala um fót-
boita og þess háttar cn sjálfan sig og
feril sinn.
Ekkert hefur hcyrzt í Heintje hér á
landi, en við höfum þó séð plötu með
honum í glugga Hljóðfæraverzlunar
Sigríðar Ifelgadóttur í Vcsturvcri.
Fyrir um það bil þremur vikum
síðan kom út fimm laga hljómplata
með hljómsveit Guðjóns Matthías-
sonar. Sönginn önnuðust þeir Sverrir
Guðjónsson og Haukur Þórðarson,
en hann syngur annan tenór í Kefla-
víkurkvartettnum.
Syngur Sverrir tvö lög, La Spain-
jóla og Liðin vor, en þetta mun vera
sjötta platan sem hann syngur inn á,
þar af fjórða platan sem komið hef-
ur á markaðinn með honum síðan
hann losnaði við drengjaröddina —
sem setti allar miðaldra kvinnur í
kerfi.
14 ára hollenzk/þýzk
poppstjarna
Barnsandlitið á myndinni tilheyrir
14 ára gömlum dreng, sem heitir ein-
faldlega HEINTJE. Hann er á góðri
leið með að verða einn vinsælasti
söngvari Evrópu — og jafn-
vel Robertino komst aldrei með tærn-
ar þar sem Heintje hefur hælana i
dag. Hann er fæddur og uppalinn i
Bleijerheide, Hollandi, en fyrir sinn
unga aldur hefur honum gengið illa
að fá leyfi til að koma þar fram op-
inberlega, svo Heintje hefur haldið
sig í Þýzkalandi, þar sem hann er
nærri því orðinn goðsagnapersóna i
lifanda lífi.
30 VIKAN 36- tbi.