Vikan - 22.10.1970, Blaðsíða 14
MARGIR MUNU EFLAUST
HNEYKSLAST Á ÞESSU GREINAR-
KORNI, — EN ÞÓ MUN ÞAÐ GLEÐJA
FLEIRI, JÁ, VIÐ ERUM EIGINLEGA
FULLVISS UM AÐ MARGUR MYNDI
VILJA ÞRÝSTA GREINARHÖFUNDI
AÐ HJARTA SÍNU.
HANN ER NEFNILEGA
ORÐINN HUNDLEIÐUR Á ÞESSUM
GRINDHORUÐU, SEM ERU ÍMYND
TÍZKUNNAR I DAG OG HANN
LEYSIR FRÁ SKJÓÐUNNI SVO AÐ
HVÍN í TÁLKNUNUM. .. .
Húrra
nr
eim
nu!
Við eruni eiginlega furðu lostnir yfir
að ekki skuli ennþá vera komin ákvæði
i hegningarlögin, sein banna konum
með svolítil hold að láta sjá sig á al-
mannafæri. Þetta virðist vera orðin al-
menningskrafa, hæði i dagblöðum og
vikublöðum er talað um nokkuð þybbn-
ar konur eins og að það sé glæpsam-
legl að hafa svolitið kjöt utan á bein-
unum, og að þjóðfélagið eigi alls ekki
að láta bjóða sér upp á slíkt.
Það er engu likara en bráðliggi á að
bjarga kvenþjóðinni frá því sem er
verra en galeiðuþrælkun, svo mikið er
rætl og ritað um megrunarkúra og aug-
lýst megrunarkrem, megrunarkex, og
rafknúin megrunartæki. svo ekki dugar
minna en að krækja sér i rafmagns-
verkfræðing, til að geta stjórnað slík-
um tækjum og hafa einhverja von um
líf í framtíðinni. Jafnvel hljómplötu-
iðnaðurinn er farinn að koma með plöt-
ur á markaðinn, þar sem alið er á megr-
unarkenningunni, sem einustu leið lil
náluhjálpar.
í Sandefjord situr rithöfundurinn
Greta Molander og þusar við ávalar
kynsystur sínar, treður í þær gulrótum
og salatblöðum jiangað til þær fara að
ganga á fjórum fótum og jarma eins
og rollur (hún kemst líklega i kast við
umferðarlögreglunar með tímanmn),
og allir sem hafa sæmilegt stofugólf og
ráð á að kaupa sér hvítan slopp, koma
sér upp eins konar þjálfunar-samkund-
um. En þessi þjálfunarfyrirtæki verða
að passa sig, þau græða svo inikið á
megrunarbaráttunni að vinstrisinnað
fólk fer að álíta þau ógnun við frelsis-
baráttuna í Suður-Ameríku.
Og svo er það tízkan. Ef svo bless-
unarlega vill til að kona þjáist af
ólæknandi blóðleysi eða liefur band-
orm, sem étur allt innan úr henni, já,
þá er ekkert lát á þvi hve margt er liægt
að fá skemmtilegt og laglegt til að klæð-
ast í. En aftur á móti ef hún er lieil-
brigð og hefur ánægju af að fá sér
eilthvað gott í svanginn á kvöldin, þá
er hún slrax komin upp í númer 42,
eða jiað sem verra er — og jiá er ekki
hægt að fá nokkra flík, nema einhverj-
ar leiðinlegar grátkonuflíkur, svo að vel
mætti halda að fataframleiðendur létu
sendisveinana tcikna þá tegund fatnað-
ar. Og fari hún inn í kjólaverzlun og
biðji uin flík núiner 46, verður algert
verkfall, afgreiðslufólkið hópast sarnan,
til að virða fyrir sér jietta fyrirbrigði
og augnaráð jiess ber jiað greinilega
með sér að hentugast væri fyrir mann-
eskju með slíku sköpulagi að fá sér
vinnu í fjölleikahúsi eða að grafa sig
einhvers staðar sem lengsl uppi í sveit.
Eru þetta ýkjur? Alls ekki. lAIlir sem
líta á jietta ineð sanngirni vila, að jictla
er ekki ofsögum sagt.
Og svo getum við litið á liina hliðina,
mjóu línuna. Ivonuna eins og hún á að
vera, til þess að geta komið til greina
í mannréttindaskrá Sameinuðu þjóð-
anna.
Kona með fyrirmyndarvaxtarlagi —
að almenningsáliti sú eina sem getur
gert kröfur til virðingar í vestrænum
heimi, — á að vera injó eins og girð-
ingarstaur. Efst á vinsæklalistanum er
Twiggy, sem er eins og nagað kjúkl-
ingslæri eftir jól, eða líkust sagarblaði.
Svolítil frávik eru reyndar leyfileg, jiað
má gjarnan bæta á sig nokkrum
grömmum, ef farið er eftir meginregl-
unni; það er sem sé alls ekki leyfilegt
að nokkurt þeirra setjist á lærin, þau
eiga að vera svo horuð að ekki sé mögu-
legt að koma þeim saman, þar sem
hnjáliðirnir leyfa Jiað ekki. Lítið hara
á sýningarstúlkurnar, þær mega ekki
einu sinni borða hálstöflu aukalega,
jiað kemur strax fram á vaxtarlaginu,
yrði jafnvel hvíslað um að þær væru
barnshafandi.
Og svo skulum við líta á stúlkurnar
á götunni, sem ganga í mini-pilsum. í
upphafi mini-tízkunnár ætlaði allt um
koll að kej'ra af hneykslun, siðferðis-
postular sögðu að samanborið við jiessi
ósköp væri fall Rómaveldis eins og góð-
gerðarbasar. En þó keyrir um þverbak
þegar þessar fyrirmyndarkonur okkar
sýna heiminum jiað litla, sem þær liafa
upp á að lijóða, því ]iá sýnir það sig að
siðferðispostularnir geta verið alveg ró-
14 VIKAN 43 tbl