Vikan - 22.10.1970, Page 17
Ég fór með honum upp í svefnherbergiS hans, þar sem þjónninn var að búa
um rúmið hans. Hið fyrsta sem ég kom auga á var mynd í íburðarmiklum ramma...
*
SMÁSAGA EFTIR SOMERSET MAUGHAM
aði að borða með honum. Hann
leit á glasið mitt.
— Ég hef fengið þá til þess
að flytja svolítið Gin og franskt
Vermouth hingað. Mætti ég gefa
yður einn reglulegan Martini?
Jú, þakka yður fyrir.
— Hann veldur því, að um-
hverfið verður svolítið fjarrænt
og litbrigði staðarins sjást betur
samanborið við það, sem við eig-
um að venjast.
Hann blandaði reyndar ákaf-
lega ljúffengan drykk og við
snæddum með aukinni lyst
reykta svínslærið og kryddsíld-
ina, sem var forrétturinn. Gest-
gjafi minn var elskulegur í við-
móti og fjörugt tal hans var
mjög þægilegt.
— Ég bið yður að afsaka, ef
ég tala of mikið, sagði hann. —
Þetta er í fyrsta skipti sem ég
fæ tækifæri í þrjá mánuði til að
tala ensku, og ég býst ekki við,
að þér verðið hér lengi og ég
ætla því að nota mér þetta tæki-
færi.
— Þrír mánuðir í Positano er
langur tími. •
— Ég hef leigt mér bát og ég
fæ mér bað í sjónum og fer á
fiskveiðar. Ég les lika mikið, hef
nóg af bókum og ef það er eitt-
hvað, sem ég get lánað yður,
mun ég gera það með ánægju.
Ég held, að ég hafi nóg að
lesa. En mér þætti gaman að sjá,
hvað þér hafið af bókum. Það er
alltaf skemmtilegt að skoða ann-
arra manna bækur.
Hann leit hvasst á mig og drap
tittlinga.
■— Það segir mér líka mikið
um yður, muldraði hann.
Þegar við höfðum lokið við að
borða, héldum við áfram sam-
tali okkar. Hinn ókunni var víð-
lesinn og hafði áhuga á mörgum
mismunandi málefnum. Hann
talaði af þekkingu um málara-
list, svo að ég hélt að hann væri
gagnrýnandi eða listaverkasali.
En þegar í ljós kom, að hann
hafði lesið Svetonius nýlega, réð
ég af öllu, að hann kenndi við
háskóla. Ég spurði hann að heiti.
— Barnaby, svaraði hann.
— Þetta nafn vakti fyrir
skömmu mikla athygli.
— Nú, já.
Hafið þér ekki heyrt um
hina dáðu frú Barnaby? Hún er
landi yðar.
— Ég verð að játa, að ég hef
séð nafn hennar í blöðunum upp
á síðkastið. Þekkið þér hana?
- Já, mjög vel. Hún hélt
margar stórkostlegar veizlur fyr-
ir skömmu og ég fór þangað í
hvert skipti, sem hún bað mig
um það. Það gerðu allir. Hún er
stórkostleg kona. Hún kom til
London til þess að taka þátt í
samkvæmislífinu. Það veit trúa
mín, að hún gerði það líka.
Mér skilst að hún sé auð-
ug?
Ótrúlega, held ég, en það
eitt hefur ekki orsakað vel-
gengni hennar. Það er nóg af
amerískum konum, sem eiga
peninga. Frú Barnaby er sam-
kvæmismanneskja eingöngu af
því, að hún hefur þann persónu-
leika til að bera. Hún verður
aldrei annað, hvað svo sem hún
er í rauninni. Hún er alveg eðli-
leg sem slík. Hún er óviðjafnan-
leg. Þér þekkið að sjálfsögðu
sögu hennar?
Vinur minn brosti.
— Frú Barnaby er ef til vill
mjög fræg samkvæmismanneskja
í London, en svo langt sem ég
man, er hún algerlega óþekkt í
Ameríku.
Ég brosti líka, en aðeins með
sjálfum mér. Ég gat auðveldlega
ímyndað mér, hve léttlyndi þess-
arar stórkostlegu konu og hve
hin hispurslausa hreinskilni
hennar hefði fengið á hann.
— Ég skal segja yður frá
henni. Eiginmaður hennar virð-
ist vera einhvers konar óslípað-
ur demantur, hann er stór og
samanrekinn náungi, segir hún.
Hann getur slegið stóra holu i
harðan jarðveg með berum hnú-
unum. í Arizona gengur hann
undir nafninu „Einnar-kúlu
Mike“.
— Hamingjan góða! Hvers
vegna?
— Jú, eitt sinn fyrir mörgum
árum drap hann tvo menn með
sömu byssukúlunni. Hún segir,
að hann sé enn bezta skyttan
fyrir vestan Klettafjöll. Hann er
nú gullgrafari. en hann hefur
verið kúasmali, vopnasmyglari
og guð veit hvað, á sínum tíma.
— Ósvikinn maður að vestan,
sagði prófessorinn og mér virt-
ist hann vera dálítið bitur í
röddinni.
— Dálitill ævintýramaður,
held ég. Frú Barnaby kann urm-
ul af sögum um hann. Auðvitað
hafa allir beðið iiana um að fá
hann til þess að koma til Lond-
on, en hún segir, að hann vilji
ekki yfirgefa hinar víðáttu-
miklu sléttur. Hann fann olíu
fyrir nokkrum árum og nú veð-
ur hann í peningum. Hann hlýt-
ur að vera stórkostlegur maður.
Ég hef verið viðstaddur í sam-
kvæmi hjá henni, þegar allt
fólkið stóð á öndinni af spenn-
ingi yfir sögum þeim, sem frúin
sagði af þeim, þegar þau löptu
dauðann úr skel eða sátu að dýr-
um kræsingum. Það er ótrúlega
spennandi að sjá þessa gráhærðu
konu, enda þótt hún sé langt frá
því að vera íögur, samt sem áð-
ur vel klædd og með dásamleg-
ar perlur, og heyra hana segja
frá því hvernig hún þvoði áhöld
gullgrafaranna og hvernig hún
bjó til mat í tjaldbúðunum. Kon-
ur ykkar Ameríkumanna hafa
alveg sérstakan aðlögunai'hæfi-
leika, sem er blátt áfram hríi-
andi. Þegar maður sér frú
Barnaby sitja við borðsendann,
þá er hún alveg eins og heima
hjá sér innan um prinsa og
sendiherra, ráðherra og hertoga
frá hinu og þessu héraði. Það er
þess vegna ekki laust við, að
manni þyki ótrúlegt, að hún hafi
fyrir aðeins fáurn árum búið til
mat fyrir tugi af gullgröfurum.
— Er hún læs og skrifandi?
— Ég er næstum viss um, að
boðskort hennar eru skrifuð af
einkaritara hennar, en hún er
alls ekki fáfróð af konu að vera.
Hún sagði mér, að hún hefði ver-
ið vön að lesa Time á hverju
kvöldi eftir að mennirnir í tjald-
búðunum voru farnir að sofa.
— Sei, sei.
Aftur á móti lærði „Einn-
ar-kúlu Mike“ fyrst að skrifa
Framhald á bls. 45.
43. ibi. VIKAN 17