Vikan - 08.04.1971, Side 40
TIL FERMINGAGJAFA
Vestur-þýzkir STEREÓ-
Mjög hagstætt verð.
OG MÓNÓ-plötuspilarar.
Rats|á hff.
Laugavegi 47, simi 11575.
um kveðjustundina, hann hafði
kvatt hana í viðurvist frænkn-
anna, eins og hverja aðra
ókunna manneskju, — já, eins
og hverja aðra þjónustustúlku.
— Nei, nei, það getur ekki
verið þannig! hrópaði hún upp.
— Hvað hefur hann gert mér?
Hvernig á ég að lifa án hans?
Elsku, — elsku ástin mín,
hvers vegna fórstu frá mér?
Hún stökk upp úr rúminu og
sat lengi á stólnum, eins og
hún ætti von á því að eitthvað
myndi ske, eitthvað sem gæti
verið skýring. Þannig sat hún
um stund og hlustaði á hljóðin,
sem bárust utan úr náttmyrkr-
inu. Allt var svo einkennilega
nálægt í litla herberginu. Hún
heyrði tif í klukku i næsta her-
bergi, heyrði þegar hundurinn
hreyfði sig og hroturnar í ráðs-
konunni Dometjevnu, sem var
svo góð við hana, Dometjevnu,
sem svaf hjá hundinum.
Ailt í einu heyrði hún að
einhver opnaði dyr, það brak-
aði í gólfborðunum. Henni
fannst hjartað hætta að slá.
Gat það verið hann? Nei, það
gat ekki verið hann. Hann var
farinn. Þetta var Susetta, litla
tikin, sem vildi komast út. Hún
var fegin að fá tækifæri til að
komast út úr húsinu.
Úr öllum áttum heyrði hún
hljóð næturinnar. Hærra en
allt annað var hvinurinn í
vindinum, sem þaut í gegnum
naktar greinar bjarkanna, sem
voru hinum megin við húsið og
náði alveg til hennar.
Það ískraði í snjónum, þegar
Susetta krafsaði, lækurinn nið-
aði og snjóbráðin lak af þök-
unum í dropatali, og þarna
lengra í burtu, — heyrðist há-
vaðinn frá ánni, eins og ein-
hver væri að heyja hávaða-
sama orrustu.
Svo heyrði hún í eimpípu
lestarinnar langt í burtu. Járn-
brautarstöðin var í fimmtán
rasta fjarlægð, en lestin sem
átti að flytja hann burt, fór
hér fram hjá, rétt hjá — gegn-
um skóginn sem lá upp að
aldingarðinum. Já, hann fór
með þessari lest, hann er þarna
og veit ekki að ég er svona
nálægt.
— Komdu hingað! kallaði
hún til Susettu. — Farðu inn,
sagði hún og ýtti hundinum
innfyrir dyrnar. Síðan stóð hún
kyrr og hlustaði á hljóðin frá
lestinni, sem nálgaðist óðum.
Nú var farið að hvessa, en
í gegnum þokuna yfir ánni
heyrði hún skröltið í lestinni.
— Þessu er lokið, öllu er
lokið . . . hvíslaði hún. — Þarna
fer hann, . . . hann . . . hann
Ó, ef ég gæti aðeins fengið að
sjá hann!
Hún hljóp gegnum garðinn
og út um hliðið, þar sem snjór-
inn var farinn að bráðna í
skógarjaðrinum, — já, þar sem
lestin hlaut að fara fram hjá.
Vindurinn feykti henni á und-
an sér og greinarnar rifu þunn-
an náttserkinn, en hún fann
ekki til kuldans.
Hún var komin á brekku-
brúnina við ána, þegar lestin
kom í ljós. Það ískraði í eim-
vagninum, — Katujsku fannst
þetta ískur væri ætlað sér. Svo
feykti vindurinn reyknum og
eimpípuhljóðinu til annarrar
áttar. Hún sá fyrst eimvagn-
inn, svo vagn sem ekki var
upplýstur og síðan einn af
öðrum, sem allir voru upplýst-
ir. Það var ómögulegt að greina
fólkið sem sat í þessum vögn-
um, en hún vissi að hann var
þar. Hún fylgdi áköf skuggun-
um með augunum, hún kom
auga á vagnstjórann, en hún
sá ekki þann sem hún þráði.
Nú kom síðasti vagninn í
ljós og lestarþjónn stóð á aft-
asta pallinum og þar sem lest-
in hafði farið var nú ekkert að
sjá nema blaðlaus tré og hún
heyrði ekkert nema niðinn í
ánni.
Hún heyrði hávaðann frá
lestinni í nokkrar mínútur og
sá ljósin hverfa. Hún fann
reykjarstybbu og svo varð allt
hljótt.
— En hvers vegna? Ó,
hvers vegna? hrópaði hún og
faldi andlitið í höndum sér.
Hún hljóp grátandi upp að
húsinu og barðist móti vindin-
um, sem feykti óminum af rödd
hennar út í buskann.
☆
KEISARATIGNIN SEM
KOSTAÐI HANN LlFIÐ
Framhald af bls. 21.
tryggja sér að ríkdómar lands-
ins gengju þeim ekki aftur úr
greipum, datt þeim í hug að
setja evrópskan keisara yfir
Mexíkó.
Allir voru sammála um að
Maximilían væri rétti maður-
inn í þá stöðu. Hann var Habs-
borgari, af heimsins göfugustu
höfðingjaætt. Metnað hans og
hugsjónahneigð þekktu allir.
Og 1862 búðu sendimenn Na-
póleons þriðja honum mexi-
könsku keisarakrónuna.
Þeir léku á strengi óánægju
hans og útmáluðu fyrir honum
stærð og glæsileika ríkis hans.
Þeir höfðuðu einnig til göfug-
lyndis Maximilíans: „Aðeins
jafn göfuglyndur höfðingi og
þér getur borgið þessu deyj-
andi ríki.“
Maximilían lét ölvast af keis-
arahugmyndinni. Hann þráði
að sleppa úr hinu innihalds-
snauða letilífi í Miramarhöll,
og gaf sig tilhlökkuninni á vald.
En fréttirnar frá Mexíkó, sem
voru allt annað en góðar, komu
honum til að hika. Hann hik-
aði og tvísteig og hefði senni-
legi haldið því áfram til eilífs
nóns, hefði Karlotta ekki stað-
ið honum til annarrar handar.
Þessari belgísku konungs-
dóttur þótti ákaflega gaman að
halda böll fyrir þjóðhöfðingja
þá og erlenda sendimenn, sem
nú lögðu leið sína til Miramar-
hallar. Og hún lagði sig alla
fram um að dreifa áhyggjum
Maximilíans. Hún vildi fyrir
hvern mun ráða ríki og sjá
mann sinn ráða ríki. Hún vís-
aði öllum viðvörunum á bug.
Karlotta af Brabant hafði
gefizt Maximilían í þeirri trú,
að hásæti fylgdi með í kaup-
unum. Hún hafði þó eirt há-
sætisleysinu meðan þau voru
hamingjusöm saman. En nú
var farið að draga úr þeirri
hamingju.
Opinberlega létu þau að vísu
aldrei annað sjást en þau væru
jafn lukkuleg og nokkurn tíma
áður. En þann leikaraskap
þurftu þau ekki að viðhafa
innan læstra dyra — í svefn-
herberginu.
Sem ungur prins hafði Maxi-
milían brugðið sér til Suður-
Ameríku og komið þá til Rio
de Janeiro. Þar hafði hann orð-
ið sér úti um kynsjúkdóm.
Hann hlaut lækningu að vísu,
en var þaðan af ófrjór. Kar-
lotta gat ekki fyrirgefið hon-
um að hún gat ekki orðið móð-
ir vegna þessarar æskusyndar
hans.
Ekki bætti hér úr skák að
Maximilían tók trúskaparheit
hjónabandsins aldrei nema
mátulega alvarlega. Þessi
glæsilegi erkihertogi, sem
sjálfur átti svo auðvelt með að
hrífast, hreif ekki síður hverja
unga konu, sem í námunda við
hann kom. Hjónin hættu að
sofa saman.
Hugsanlegt er að Karlotta
hafi lofað eiginmanni sínum
vaxandi ástúð, ef hann féllist
á að gerast keisari í Mexíkó.
Allavega átti hún mikinn þátt
í að hann sökk dýpra og dýpra
í mexíkanska fenið.
Tólfta marz 1964 var hún bú-
in að koma honum svo langt,
að hann undirskrifaði í París
samning um að taka við keis-
aratign í Mexíkó — og fleira.
Sá samningur var jafnframt
dauðadómur Maximilíans. Að-
eins heimskingi hefði undir-
skrifað slíkan samning.
Samkvæmt samningnum átti
Maximilían að fá yfir milljarð
króna á ári í tekjur. En Mexí-
kó var gjaldþrota. Mexíkan-
arnir neituðu að borga keisara
sínum. Keisarinn í Mexíkó var
40 VIKAN 14.TBL.