Vikan - 08.04.1971, Blaðsíða 52
IVÍOBIR ,
, FERÐAFELAGAR
KASSETTUTÆKI
ERÁ PHILIPS
1. EL 3302 — rafhlöðu kassettu segulbandstæki,
2. N 2202 „DE LUXE" rafhlöðu kassettu segulbandstæki
3. N 2204 —rafhlöðu/220 v kassettu segulbandstæki,
4. N 2205 — ,,DE LUXE" rafhlöðu/220 v kassettu
segulbandstæki.
Auðvitað 4 gerðir, svo þér getið valið rétta ferða-
félagann til að hafa með, hvert sem yður hentar.
Lrtið við hjá næsta umboðsmanni og veljið yður
Philips kassettutæki. Það mun henta yður.
HEIMILISTÆKI
HAFNARSTRÆTI 3 - SÍMI 20455
VIÐTAL VIÐ HILDI
HAKONARDÚTTUR
Framhald af bls. 29.
niðurrif að neita því og vilja
lifa á sínum eigin tíma? Er
það niðurrif á Jónasi Hall-
grímssyni að yrkja ný kvæði?
—- Hver var aðdragandi þess
að þú hófst handa við list?
—- Ég lagði tvisvar af stað
út í fullorðinsárin. í fyrra
skiptið gaf ég mig að hússtörf-
um eingöngu, ég varð stúdents-
frú, síðan fræðingsfrú og að
lokum doktorsfrú. Þá sneri ég
við blaðinu, komin vel á þrí-
tugsaldur, og byrjaði í skóla á
nýjan leik. Ég fór í Myndlista-
og handíðaskólann, í 1. bekk,
og það veit trúa mín að það
er meira gaman að læra sjálf-
ur en að fylgjast með þegar
aðrir gera það.
— Yar þetta í fyrsta sinn
sem þú fórst að fást við mynd-
list?
—■ Já, en eftir skólagöngu
hér heima hélt ég áfram námi
í Skotlandi. Það eru sárafá
lönd þar sem hægt er um vik
að læra myndvefnað. Af.Aust-
ur-Evrópulöndum eru það eink-
um Pólland og Tékkóslóvakía,
en í Vestur-Evrópu veit ég
ekki um skóla þar sem þetta
pr kennt sem sérfag nema
Listaskólann í Edinborg. Mig
langaði til Tékkóslóvakíu og
var búin að leggja drög að því,
þegar Rússar réðust á Tékka.
Þá lokaðist þar inni sá sendi-
ráðsmaður, sem ætlaði að
hjálpa mér að koma málum í
kring, svo ég gafst upp og fór
til Edinborgar.
—- Byggja Skotar á inn-
lendri erfðavenju í myndvefn-
aði?
- Já og nei. Brezkar hallir
eru fullar af teppum, þótt fæst
sé til að státa af. Brezka krún-
an og aðalsmenn reyndu að
laða til sín vefara frá Briissel.
Það gerðu margar þjóðir, því
að þetta var lenzka og þótti
ekki höll nema hún hefði teppi,
en beir voru siálfir aldrei mót-
andi á þessu sviði. Svo iagðist
be+ta að miklu leyti niður á
síðustu öld. William Morris,
sem var óþriótandi áhugamað-
ur um alla handmennt, kemur
á laegirnar vefstofu í Edin-
borg árið 1912 og flytur þang-
að gamlan gobelinstól frá So-
bn. Svo er farið að safna sam-
an bekkingarbrotum og kenna
lærlingum. Leitað er til Frakk-
lands, þar sem hefðin hefur
■<'iðhaldizt, til að fylla í eyð-
urnar. Nú er þarna fjörlegasta
vefstofa og náið samband milli
hennar og vefdeildarinnar í
listaskólanum. Þessi heppilega
aðstaða er ekki fyrir hendi
annars staðar.
Það var aldrei á eins manns
færi að vefa stór veggteppi.
Þetta voru verkstæði með
fjölda manns í vinnu. Mynd-
hefðin og verkmenntin átti sér
hjá flestum þjóðum líklegri
rætur í Belgíu og Frakklandi
en í eigin þjóðlegum vefnaði.
í Tékkóslóvakíu var t. d.
ákveðið að koma vefstofum á
fót rétt um síðustu aldamót
og fengnir til vefarar og stólar
erlendis. Kannski er helzt hjá
Norðurlandaþjóðunum að þessi
mörk bændavefnaðar og „betri
-teppa“ eru fljótandi.
— Hvað um okkar eigin
vefnað til forna?
— Við ófum lítið nema fata-
efni og brekán, helzt kross-
vefnað, en hann er formfast-
ari en annar myndvefnaður og
mynsturkenndari. En við saum-
uðum refilsaum og sýndum
þar glöggt, að við vorum engra
þjóða eftirbátar við að gera
myndir á þessum tíma, en við
vorum íhaldssöm hvað snertir
breytingar á vefstólnum og óf-
um við kljásteinavefstað fram
á nítjándu öld. Skýringarinnar
á því að við höfum ekki mynd-
vefnað er kannski að leita í
því.
Ertu ánægð með árangur-
inn af starfi þínu sem lista-
kona, með tilliti til þess hve
skammt er síðan þú lagðir út
á þá braut?
— Ég veit ekki hvað segja
skal. Ég skynja sjálfa mig ekki
sem listamanneskju, enda hve-
nær nákvæmlega hefði ég átt
að verða það? Þetta viðhorf,
að greina listafólk frá öðru
fólki, er illa til komið, og ber
vott um þrönga og ófrjóa
menningu. Ef rakið er aftur,
þá er þetta annar veturinn
minn hér heima, svo kemur
einn vetur í Skotlandi og svo
fiórir vetur hér í skólanum.
Þetta er ekki löng saga. Ind-
verskur orskviður hermir að
skáld geti dáið tuttugu og sjö
ára gamalt en samt orðið
ódauðlegt, en vefarinn verði
að ná sextugu til að geta sýnt
hvað í honum býr.
— Hefur áhugi þinn á rót-
tækum umbótahreyfingum
eins og Rauðsokkum ekki haft
gagngerð áhrif á listsköpun
þína?
- Öll verk sem maður
vinnur eru hluti af sömu heild
— manneskjunni sem vinnur
þau. Hafi ég sterkan áhuga á
réttindamáli, hlýtur sá áhugi
að eiga sér samsvörun í af-
stöðunni sem ég tek við sköp-
un á sérhverju verki.
— Líturðu þá á listina sem
baráttuaðferð?
— Listsköpun getur verið
baráttuaðferð. Sumir lista-
menn leggja þó sínar hefð-
bundnu vinnuaðferðir á hill-
52 VIKAN 14. TBL.