Vikan - 22.04.1971, Blaðsíða 25
Yaentam=
legar
hljóm-
plötur
Hljótt hefur verið yfir ís-
lenzkri hljómplötuútgáfu frá
áramótum, enda var mikið að
gera í þeim bransa rétt fyrir
jól og allt fram á Þorláks-
messu, er Fálkinn sendi frá sér
plötu Fiðrildis — án þess að
auglýsa nokkuð! Þó er ekki
öll von úti með að einhverjar
plötur séu væntanlegar, og til
að grennslast nánar fyrir um
þetta mál snerum við okkur til
forráðamanna hljómplötufyrir-
tækjanna hér og spurðumst
fyrir um væntanlegar plötur.
Hjá Fálkanum töluðum við
við Ólaf Haraldsson og feng-
um þær upplýsingar að undir
lok mánaðarins komi út
tveggja laga plata með Tilveru.
það er að segja þeirri Tilveru
sem var til í fyrrasumar og
spilaði Kalla sæta. Lögin á
Síðari plata Péturs er væntanleg
frá LAUF-útgáfunni.
Pósthólf
533
25/3 1971.
Hæ!
Ég var að lesa áðan bréfið
sem þú fékkst frá þessum
nafnlausa bréfritara, um þínar
persónulegu skoðanir. Þú baðst
um álit fleiri lesenda á þættin-
um þínum, ekki satt? Ég ætla
sem sé að segja þér álit mitt.
Ég er þér hjartanlega sammála
þessari plötu eru „Lífið“, og
„Hell Road“, bæði eftir Axel
og bæði mjög góð. Sérstaklega
þó „Lífið“, en þar leikur gít-
arleikari dönsku hljómsveitar-
innar „Savage Rose“ með þeim
á stálgítar. Fleira er ekki
væntanlegt frá Fálkanum í
bili, en nokkrir aðilar s. s. Ríó-
tríóið, eru með plötur í undir-
búningi.
Margir hafa orðið til að
spyrjast fyrir um ástæðuna
fyrir því að Trúbrot sagði
samningnum við Fálkann upp,
og spurðum við Ólaf að því.
„Það þurfti alls ekki að fara
svoleiðis,“ sagði Ólafur, „en
við gátum einfaldlega ekki
komizt að samkomulagi. Frá
okkar sjónarmiði er þetta ekki
svo mikill missir, því að við
höfum aldrei haft sérlega gott
upp úr hljómsveitinni, kostn-
aðurinn gleypir yfirleitt hverja
krónu sem inn kemur af söl-
unni á plötum þeirra."
Og í maí stendur til að taka
upp LP-plötu með Árna John-
sen, sendiherra, og að sögn
hans á hún að innihalda hvorki
meira né minna en 18 lög! (6
aukalög!).
Hjá HSH (Hljóðfæraverzlun
Sigríðar Helgadóttur) hittum
við fyrir Ingiberg Þorkelsson,
og sagði hann að ekkert væri
ákveðið um útgáfu á vegum
fyrirtækisins, það er að segja
ekkert sem væri tímabært að
tala um. „Ég vil ekkert segja
í augnablikinu,“ sagði Ingibérg-
ur, „en við gefum örugglega
eitthvað út í ár.“
Hljómskífugerðin SARAH
gefur á næstunni út tveggja
laga plötu með Einari Vilberg,
sem alþjóð fékk loks að sjá í
sjónvarpi skömmu fyrir síð-
ustu mánaðamót. Þegar þessar
Framhald á bls. 48.
ÞaS er þessi TILVERA sem er væntanleg á annarri plötu sinni frá
Fálkanum.
Einar Vilberg syngur inn á sýna fyrstu plötu fyrir SARAH.
Og „ . . . lifun" Trúbrots er væntanleg eftir rúman mánuð frá Tóna-
útgáfunni.
um frammistöðu Kinks á hljóm-
leikunum. Ég var þar og varð
fyrir miklum vonbrigðum,
fannst þeir hörmulega lélegir,
þótt ég hafi alla jafna haldið
upp á þessa hljómsveit frekar
en hitt. Jæja, það er bezt að
snúa sér að efninu. Það sem
mér finnst aðallega úrbótavant
við þáttinn, er að þú skrifar
oft svo heillangar greinar um
kannski eina hljómsveit, og þá
tekur það upp allt plássið í
opnunni. Þú birtir frekar fáar
myndir og skrifar lítið um inn-
lendar hljómsveitir, nema
kannski stór nöfn eins og Trú-
brot, í því er ég sammála áð-
urnefndum bréfritara.
Sem sagt, mér finnst að þú
ættir að skrifa styttri greinar
en hafa þær þá heldur fleiri.
Það er ekkert athugavert við
að þú segir þitt álit á þeim
sem þú skrifar um. Mér finnst
ópersónulegar frásagnir alltaf
herfilega leiðinlegar. Hvers
vegna skrifar þú ekki fleiri
greinar eins og í fyrra eða hitt-
eðfyrra (ég man ekki hvort það
var), þgear þú fórst í hús að
biðja um vatnsglas og bauðst
stelpunum í bíó? Þær voru
skemmtilegar. Þá er það vist
ekki fleira sem mér liggur á
hjarta.
Blessaður,
Inga Karlsdóttir.
í rauninni er engu við þetta
að bæta, en ég þakka fyrir
bréfið og vænti fleiri bréfa —
þó þau verði mér kannski ekki
öll jafn hliðholl. Ég lofa að at-
huga rækilega með þessa til-
lögu þína og raunar var búið
að skjóta henni að mér áður
— og ég er henni alveg sam-
mála. f þessu blaði vona ég
að óskir þínar rætist að ein-
hverju leyti. Varðandi þessar
tvær greinar sem þú talar um
vil ég einungis segja þér (und-
ir fjögur) að ég er með höfuð-
ið í bleyti.
☆
16. TBL. VIKAN 25