Vikan - 22.04.1971, Qupperneq 41
Bntkr ritrair
HAFA FARIÐ SIGURFÖR UM LANDIÐ
BROTHER RITVÉLAR ERU ÖDÝRUSTU EN JAFNFRAMT VÖNDUÐUSTU RITVÉLAR I
SÍNUM FLOKKI
Við fáum nú 4 tegundir
skólaritvéla auk rafritvélar-
innar, sem allir vilja eiga.
BORGARFELL
Skólavöröustíg 23 Sími 11372
þig. É'g . . . hann vildi það, en
ég vildi það ekki. Það get ég
svarið.... É'g veit ekki hvað
stendur í bréfinu frá honum,
en....
— Það stendur ekkert í
bréfi, ég hef ekki fengið neitt
bréf. Og ef ég þekki Pearson
rétt, þá fæ ég aldrei bréf frá
honum, þú ekki heldur. Hann
virti hana fyrir sér. Þegar
hann tók aftur til máls var
rödd hans óendanlega blíð. —
Var þér þetta ekki ljóst, Jo?
Jo. Ó, hve það var gott að
hann kallaði hana Jo. Hún
hikaði.
— Það er oft gott að treysta
fyrstu áhrifum, Jo.
— Já. Já, það er líklega rétt.
Hún þurrkaði sér um augun
með annarri hendinni en tog-
aði í lásinn með hinni.
— Komdu til mín, ég skal
hjálpa þér.
Hún kraup á kné fyrir fram-
an hann, eins og hún væri að
biðja hann fyrirgefningar.
—■ Svona! Hann dró renni-
lásinn niður og sneri henni svo
að sér. Nú var það ekki laus
koss einhvers staðar við vinstra
eyrað, heldur innilegur koss á
munninn.
Flýttu þér að háfta, sagði
hann.
Þegar hún dró teppið yfir
sig, tautaði hún: — Þú gleymd-
ir að bursta tennurnar. Hún
titraði.
— Fjandinn hafi það. Hann
skreið yfir breitt rúmið og
hvarf inn í baðherbergið. Og
meðan hún lá og beið, dauð-
syfjuð og þreytt, fór hamingju-
straumur í gegnum hana. Hún
hrökk við, þegar eitthvað þungt
féll niður við hlið hennar.
— Hver er þetta? sagði hún.
— Ert það þú, Tim?
— Hver ætti það annars að
vera? muldraði hann og tók
hana í faðm sinn.
☆
HEIMSOKN I HOS-
MÆÐRflSKÖLANN
Framhald af hls. 32.
sér. Ég vona bara að hreyfing-
in skilji hlutverk húsmæðra-
skólanna og styðji við bakið á
þeim, eins og kvenfélögin í
landinu hafa ætíð gert.
Enginn skyldi vanmeta störf
húsmóðurinnar. Við ættum að
vita betur en aðrir, hvað það
er í raun og veru erfitt, um-
fangsmikið og mikils virði. Ný-
lega reiknuðu til dæmis nokkr-
ar stúlkur hér við skólann út
lauslegt kaup húsmóður við
gerð rúllupylsu, miðað við búð-
arverð. Dæmi ðlítur þannig út:
1 kg slög tekin af
heilum skrokk kr. 61,—
Krydd o. fl. — 4,—
1 kg hrá rúllupylsa
úr búð kr. 149,—
1 kg soðin — 363,—
1 — niðursneidd — 430,—
Mismunurinn á því síðasttalda
og heimatilbúnu er kr. 365,—
pr. kg. Sé reiknað með að hús-
móðirin verji 45 mínútum til
starfsins, verður tímakaup
hennar í þessu tilfelli kr.
465,—.“
Því heyrist oft og tíðum
fleygt, að í heimavistarskólum
sé mjög strangur agi.
„Það er nú sjálfsagt upp og
niður, en ekki vil ég neita því,
að hjá okkur er ági,“ sagði
Katrín, þegar við minntumst á
þetta. „En hann er ekki meiri
en nauðsynlegt má teljast, og
stúlkurnar sætta sig við, enda
er heimilisbragur hér góður og
skemmtilegur. Undantekningar-
lítið verður mikil og ánægju-
leg breyting á þeim stúlkum,
sem dveljast hér í skólanum
einn vetur. Stúlkurnar fá sín
ákveðnu frí, eins og í öðrum
skólum. Ég held að óvíða sé
það talið hollt fyrir stúlkur á
þessum aldri að lifa að öllu
leyti eftir eigin geðþótta.“
Þegar við gengum um skól-
ann og ræddum við einstaka
námsmeyjar, voru þær allar á
einu máli um það, að þarna
væri gott að vera. Engin kvart-
aði um innilokun eða of strang-
an aga.
„Mér hefur fundizt ég þrosk-
ast mikið hérna,“ sagði ein, og
ég er viss um, að ég hef haft
mjög gott af því að læra það
sem hér er kennt.“
„Ætlarðu að helga þig heim-
ilinu, þegar þar að kemur?“
„Hvað væri athugavert við
það? Ef maður á heimili, verð-
ur maður að hugsa um það.“
„Þið eruð þá ekki miklar
rauðsokkur hér á Húsmæðra-
skólanum?“
Þær skríktu mikið og svör-
uðu fáu, en loks leit ein upp
og svaraði kotroskin:
„Ne-hei!“ ó. vald.
KEISARINN
HRÆÐILEGI
Framhald af bIs. 15.
Þessi mannskapur var svo mik-
ill með sig, að hann tróð hverj-
um sem var um tær óspart og
að gamni sínu, jafnt öðrum að-
16: TBL. VIKAN 41