Vikan


Vikan - 03.06.1971, Blaðsíða 48

Vikan - 03.06.1971, Blaðsíða 48
Róberfc AfkFírrssor seaisoP' RÓBETTT ?5RHF3HRS§0R 3 fyrafa aínn tg er frjáls ■■$ttojfákrtar' wnm j« r« mm Wém S<S-hl}<ím>j>4<M4»r Röbert Arnfinnsson Hver man ekki eftir hinni frábæru frammistöðu Róberts i söngleiknum „Fiðlarinn á þakinu"? Og hver hefur ekki notið hins líflega leiks Róberts í hlutverki „Zorba" í samnefndum söngleik, sem nú er verið að sýna í Þjóðleikhúsinu? Nú hefur Róbert sungið tvö lög úr hvorum þessára söngleikja: (í fyrsta sinn og Ég er frjáls úr Zorba og Ef ég væri ríkur og Sól rís, sól sezt úr Fiðlaranum á þakinu) inn á hljómplötu, sem er komin i verzlanir aðeins tólf dögum eftir að hún var hljóðrituð. Og Róbert stendur sig ekki síður á þessari 45 snúninga hljómplötu en hann gerir á fjölum Þjóðleikhússins. SG - liljómplöVur — Gott, sagði hann aðeins. — Þú ert þreytuleg. Hvíldu þig bara. Hún sat í sloppnum og drakk kaffi, gekk svo um gólf eftir að hann var farinn, vökvaði blómin og dundaði. Hana verkjaði enn í höfuðið af áköf- um grátnum, en henni leið vel innra með sér. Hún var líka tóm, ekkert var eftir af bar- áttuvilja, af ástríðum eða öðr- um tilfinningum. Allra, allra lengst niðri var enn eftir ögn af örvæntingunni, sem ætlaði að skjóta upp kollinum og henni fannst hún heyra rödd bróður síns, þegar hún hafði leitað til hans með áhyggjur sínar. — Þú ert huglaus, Anna. Það breytist ekkert við grát og sættir. Ekkert skánar. Þú ímyndar þér það bara. En hún hafði veigrað sér við að hlusta á Pétur þá og hún hafði ekki leitað til hans aft- ur. Hann gerði hana aðeins ringlaða. Ef hún þurfti að tala við einhvern, gat hún talað við Kristínu. Aðeins kona gat skil- ið svona hluti. Hún lá lengi í baðinu og þvoði sér um hárið og hafði sig til. Hún lagði sig um miðj- an daginn, fór út í búðir, eld- aði góðan mat. Hún var kyrr- lát og róleg, kveikti á útvarp- inu til að hlusta á tónlistina, skreytti borðið. En tómleikann réð hún ekki við, þreytuna ekki heldur. Þegar hringt var og hún hafði gengið til dyra og opn- að stóð hún og starði á Krist- ínu og Stefán litla. Það var hún, sem ætlaði að leita til Kristínar, ekki núna, en seinna í vikunni. Og nú kom Kristín til hennar og hún þurfti ekki nema að horfa í augu hennar til að skilja, að eitthvað hafði komið fyrir. — Kristín? sagði hún aðeins. — Já, hér er ég komin. Hún gretti sig og ýtti Stefáni inn. — Megum við ekki koma? Við — röðin er víst komin að okk- ur. Að okkur Stefáni. Anna átti kassa með alls konar leikföngum, krít, kubb- um, bílum og brúðum. Stefán var hrifinn af kassanum. Þetta var kassinn hans. Hann sótti kassann og Kristín horfði á hann og reyndi að hlæja. — Hann sér um sig, sagði hún. -— Ég vildi óska þess, að ég ætti svona kassa. Ekki veitti mér af. Anna hellti kaffi í bolla handa Kristínu og fékk sér sjálf. — Þú sagðir ekkert í gær. • — Þá var nú eiginlega röðin komin að þér, svaraði Kristín. Hún strauk ljóst hárið frá enn- inu og Anna sá, að andlit henn- ar var rakt af köldum svita. — Segðu mér hreinskilnislega sagt, Anna, megum við Stefán vera hjá þér í sólarhring? Ég hef engan annan stað að leita til. — Auðvitað. — 'Ég skal nefnilega segja þér . . . Georg . . . Nei, ég get ekkert sagt, meðan Stefán er þarna. Leyfðu mér að hjálpa þér við eitthvað, leggja á borð, skræla kartöflur eða eitthvað. Eitthvað, sem ég get gert. Ég held það ekki út að sitja hérna og hugsa. — Ég er búin að leggja á borðið, sagði Anna. — En þú getur farið upp á háaloft og sótt rúm handa Stefáni. Það er ekkert sérstaklega þungt. Kristín sótti rúmið. Hún bjó um Stefán í innsta litla her- berginu, sem var sameiginlegt gesta- og vinnuherbergi þeirra. Saumavélin hennar Onnu var þar, pappakassar með þvotti, sem átti að strjúka, aðrir kass- ar með fötum, sem átti að gera við. — Það er óþrifalegt hérna, sagði Anna og fór hjá sér. — Skiptir engu, sagði Krist- ín. — Það er ágætt hérna. Leyfðu mér að gera eitthvað. Ég skal sjá um þetta allt fyrir þig- Nú tókst henni að hlæja, henni tókst meira að segja að tala við kvöldverðarborðið og leika við Stefán. En um leið og hann var kominn í rúmið og sofnaður, féll hún saman i sófanum og rólegt yfirborðið hvarf eins og dögg fyrir sólu. Andlit hennar var náfölt og þreytulegt. — Við Georg ætlum að skilja, sagði hún og leit ekki á þau. — Ég ætti víst að segja: auðvitað. 48 VIKAN 22.TBL

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.