Vikan


Vikan - 03.06.1971, Blaðsíða 21

Vikan - 03.06.1971, Blaðsíða 21
r L^g verð að gera eitthvað, sem kemur þeim á .óvart. Ég verð að vinna á þessum óþekkta óvini með hans eigin vopnum. Ég verð að fara til París! í kvöld . . . En enginn má vita það. Og þegar þau komast að því að ég er farin, þá verður það að líta þannig út að mér hafi ekki verið sjálfrátt, eins og allt hitt . . . sem ég hafði ekki gert. Það verður að líta þannig út eins og að þeim sem vill gera mig brjálaða, hafi tekizt það. matinn, sem hún bar fyrir hann. Já, hugsaði hún, það er Ar- mand, sem stendur- á bak við þetta allt. Hann kom frá París, þar sem ég hitti Raoul. Hann heyrir til fortíð Raouls, sem ég vildi gjarnan vita svolítið meira um. Þegar Raoul kom heim frá verksmiðjunni var undarlega kyrrt í húsinu. Hann mundi eftir því að Renée átti frí, en hvar var Helen? Hafði hún lagt sig? Hann lseddist inn í svefnherbergið hennar. Það var ljós á náttborðs- lampanum hennar, en rúmið var óhreyft. — Helen, kallaði hann. — Helen ,hvar ertu? Enginn svaraði. Hann reif upp hurðina á bað- herberginu. Þar var allt skín- andi hreint og fágað. Allt of hreint. Engar snyrtivörur á borðinu. Hann flýtti sér aftur inn í svefnherbergið og reif upp skáphurðirnar. Gráa loð- kápan var þar ekki, ekki held- ur Pucci kjóllinn og háu stíg- vélin. Engin taska var á hill- unni. Helen var farin. Raoul varð að hafa hemil á sér til að rífa ekki í sundur það sem eftir var í skápnum. Þessu hafði hann alls ekki bú- izt við . . . Að Hlen skyldi fara frá honum . . . Hann flýtti sér inn í vinnu- stofu sína og sá strax að mið- skúffan í skrifborðinu var brotin upp. Umslagið með pen- ingunum var horfið. En minn- isbókin var á sínum stað, það var þó gott. Þar hafði henni yfirsézt, en eitt var horfið, — skammbyssan! 13 ue Caravelle er á vinstri bakka Signu. Þetta ný- tízkulega nafn passar illa í þessu umhverfi innan um skakka ljósastaura, ómálaða glugga og hurðaræksnin, sem prýða langar raðir húsanna, sem eru að falli komin. Rue Caravelle er skuggaleg gata, jafnvel um miðjan dag og það var sannarlega ekki notalegt að vera þar á ferli um miðja nótt og að auki í dynjandi rigningu. Helen nam staðar fyrir utan húsið númer 14. Það var myrkur í öllum gluggum. Á múrveggnum við hliðina á dyrunum, hékk ólæsilegt skilti. Helen slökkti á vasa- Ijósinu, sem hú,n hafði haft með sér í töskunni, ýtti upp hurðinni og laumaðist inn í dimman stigaganginn, Römm lykt af hvítlauk og gömlu rauðvíni lagði á móti henni þegar hún fór að læðast upp stigann. Þegar hún var komin upp á aðra hæð, voru dyr opnaðar fyrir neðan. —- Qui est la? spurði reiði- 22. TBL.VIKAN 21

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.